Mæðgurnar loksins sameinaðar á ný

„Mamma er komin, ekki sleppa“ sagði Lísa María þriggja ára, þegar hún fékk loks að hitta móður sína aftur eftir tveggja vikna aðskilnað. Móðir hennar, Lilja Rún Krist­jáns­dóttir, lauk sótt­kví um helg­ina og seg­ist vera frels­inu fegin.

Mæðgurnar loksins sameinaðar á ný

Það voru fagn­að­ar­fundir þegar Lilja Rún Krist­jáns­dóttir losn­aði loks úr tveggja vikna sótt­kví og gat farið að sækja þriggja ára gamla dóttur sína, Lísu Maríu. Báðar voru þær búnar að telja niður dag­ana þar til þær gátu hist á ný og síð­ustu sól­ar­hring­ana taldi Lilja Rún líka niður klukku­tím­ana, svo erfið var biðin eftir því að fá að sjá þriggja ára gamla dóttur sína aftur. 

„Lífið er tölu­vert betra núna,“ segir Lilja Rún sem lauk um helg­ina tveggja vikna sótt­kví. Kærast­inn hennar hafði farið í skíða­ferð til Aust­ur­ríkis og þegar svæðið var skil­greint sem háhættu­svæði hafði hann ekki val um annað en að fara í sótt­kví skömmu eftir heim­kom­una. Þar sem Lilja Rún starfar sem rann­sókn­ar­lög­reglu­maður þá varð hún að fara með honum í sótt­kví, þar sem hún var aðskilin dóttur sinni, sem reyndi veru­lega á þær mæðgur, enda hafa þær aldrei verið svo lengi frá hvor annarri. 

Bar sig vel Síðustu dagar í sótt­kví reynd­ust erf­iðir, þótt Lilja Rún hafi alltaf borið sig vel.

Síðustu dagarnir erfiðastir 

Lilja Rún ræddi við Stundina um miðja síð­ustu viku og þá bar hún sig vel. Þá sagði hún að fyrstu dag­arnir hefðu verið erf­ið­astir, því þá var biðin eftir því að hún fengi að sjá dóttur sína aftur svo löng.

Nú segir hún að síð­ustu dag­arnir hafi farið að reyna aftur á. „Mér fannst allt erfitt þessa síð­ustu daga. Bara að setj­ast niður að horfa sjón­varpið, ég var ekki að nenna því. Ég fékk ógeð á öllu. Þess vegna var ég farin að telja niður klukku­tím­ana síð­ustu 72 tím­ana. Ég geri þetta ekki aftur nema að fara í járnum,“ segir hún hlæj­andi. „Ég segi það samt í fyllstu alvöru að ég get ekki hugsað mér að lenda í þessu tvisvar. Fyrir okkur sem lentum svona snemma í sótt­kví er mikil hætta á því að við þurfum að fara aftur. Ég fæ bara hroll við að hugsa um það, eins og ég segi þá geri ég þetta helst ekki aftur nema ég fari inn í járnum, vistuð á ein­hverja stofnun.“ 

Hvað sem því líður þá var alla­vega mik­ill léttir að vera komin út. „Það var mjög kær­komið. Þetta var alveg orðið gott. Þetta er aga­legt.“

Á meðan sótt­kvínni stóð heyrði Lilja Rún dag­lega í dóttur sinni og ræddi við hana í gegnum Facetime kvölds og morgna. „Ég tal­aði við hana tvisvar sinnum á dag og reyndi að hug­hreysta hana. Hún skildi þetta ekki, en hún skildi að við værum veik og að hún gæti smit­ast. Mér fannst betra að segja henni það heldur en að reyna að útskýra fyrir henni hvað sótt­kví er. Jú, hún skilur þetta með bakt­er­í­urnar. Að það sé ekki hægt að fara í sunnu­dags­skól­ann eða sund vegna þess að þar séu bakt­er­íur, en hún skilur ekk­ert mikið meira en það.“ 

Kærkomið knús

Á laug­ar­dags­morgni var Lilja Rún loks­ins laus. Hún hafði ráð­gert að sækja dóttur sína, sem er þriggja ára gömul. Lísa María vakn­aði klukkan sex að morgni og beið móður sinnar, sem var komin til hennar um hálf­ell­efu. „Hún var alveg tryllt úr spenn­ingi. Þetta var mjög kær­komið knús sem við fengum þarna, við mægður og við höfum varla sleppt hvor annarri síðan. Hún er svo mikil mömmu­stelpa að hún var búin að telja niður síð­ustu þrjá dag­ana: Nammidag­ur­inn, þá kemur mamma.“ 

„Mamma er komin, ekki sleppa“ 

Ljós­mynd­ari Stund­ar­innar, Heiða Helga­dóttir, var með í för. „Lísu brá svo þegar það fyrsta sem hún sá var Heiða. Hún stóð bara og horfði á hana. Svo sagði ég: Komdu þarna, þá kom hún hlaup­andi til mín og sagði: Mamma er komin, ekki sleppa. Ég var búin að segja við hana að ég ætl­aði að koma til hennar og aldrei að sleppa henni aftur.“ 

Stundin sem hélt mér gangandi

Sjálf var hún búin að sjá þessa stund fyrir sér. „Ég var búin að lifa fyrir þetta móment síð­ustu tvær vik­urnar, til­hugs­unin um að hitta hana aftur hefur haldið mér gang­andi. Enda hefur hún sagt hund­rað sinnum að hún elski mig síðan hún kom aftur. Hún er bara búin að vera inni í mér. Skilj­an­lega.“ 

Mæðgurnar fóru síðan saman í bak­arí, í búð og loks heim í hádeg­islúr­inn þar sem þær lágu saman og kúrðu. Síðan hafa þær notið þess að vera saman og leika sér. „Við reynum bara að njóta sam­ver­unnar. Ef það er eitt­hvað sem við getum lært af þessu þá er það hvað það er kær­komið að vera með sínum nán­ustu. Það er mjög van­metið að eiga tíma með þeim sem manni þykir vænt um.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Aðskilin vegna veirunnar

FréttirAðskilin vegna veirunnar

„Mig langar bara til að fá að vera með henni um pásk­ana“

„Við erum vön að vera saman og þekkjum ekk­ert annað.“ Þetta segir Ármann Ingimagn Hall­dórs­son. Eig­in­kona hans, Gróa Ingileif Krist­manns­dóttir dvelur á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Dyngju á Egils­stöðum. Gróa, sem er 62 ára, er með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Beckers, hún er í önd­un­ar­vél vegna sjúk­dóms­ins og þarf mikla umönnun sem Ármann hefur sinnt að miklum hluta síðan hún veikt­ist. Vegna heim­sókna­banns hafa hjónin ekki hist í margar vikur.
FréttirAðskilin vegna veirunnar

Kór­óna­veiran á Spáni: Flúði elli­heim­ilið af ótta við að deyja einn

Tala lát­inna vegna kór­óna­veirunnar á Spáni er orðin hærri en í Kína. Á föstu­dag­inn höfðu 1.000 lát­ist á Spáni en nú hafa tæp­lega 3.500 beðið bana. Kór­óna­veiran hefur herjað á mörg elli­heim­ili í land­inu, meðal ann­ars á eitt í Madríd þar sem 89 ára heim­il­is­maður ákvað að taka til sinna ráða áður en röðin kæmi að honum.
FréttirAðskilin vegna veirunnar

Mik­il­vægt að halda í jákvæðn­ina

Kjartan Jarlsson er dval­ar­maður á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Sólvangi. Algjört bann við heim­sóknum aðstand­enda á hjúkr­un­ar­heim­ili vegna COVID-19 far­ald­urs­ins veldur því að kona hans, dætur og barna­börn munu ekki geta heim­sótt hann næstu mán­uði, fari svo að bannið verði ekki end­ur­skoðað. Kjartan lætur þetta þó ekki á sig fá og heldur sem fast­ast í jákvæðn­ina.
FréttirAðskilin vegna veirunnar

Fær ekki að heim­sækja lífs­föru­naut sinn til 60 ára

Birgir Guð­jóns­son læknir segir algjört heim­sókn­ar­bann við heim­sóknum aðstand­enda á hjúkr­un­ar­heim­ili vera allt of harka­legt, auk þess sem það sé með öllu raka­laust út frá lækn­is­fræði­legum for­sendum. Bannið veldur því að hann getur ekki hitt konu sína, lífs­föru­naut til 60 ára sem er með Alzheimer. Birgir segir bann sem þetta koma verst niður á Alzheimer-sjúk­lingum.

Mest lesið undanfarið ár