Svart álit erlendra sérfræðinga: „Staðan á bráðamóttökunni er krónísk katastrófa“

Sænskir læknar í átaks­hópi heil­brigð­is­ráð­herra segja gam­alt fólk þjást vegna stöð­unnar á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, er sagður hafa ranga for­gangs­röðun og að hann þurfi að grípa til aðgerða. Vandinn sé „af risa­vax­inni stærð­argráðu“.

Svart álit erlendra sérfræðinga: „Staðan á bráðamóttökunni er krónísk katastrófa“
Páll Matth­í­as­son Sænsku lækn­arnir segja for­stjóra Land­spít­al­ans bera ábyrgð á að hrinda nauð­syn­legum breyt­ingum í fram­kvæmd. Mynd: Kristinn Magnússon

„For­stjóri Land­spít­al­ans þarf að taka stefnu­mót­andi ákvörðun um það að sjúk­lingar á leið af bráða­mót­tök­unni séu í algjörum for­gangi. Allar aðrar spurn­ingar sem varða ekki þennan hóp sjúk­linga þurfa að vera aftar í for­gangs­röð­inni. Þessa ákvörðun þarf að taka strax og skýrt og koma áleiðis innan stofn­un­ar­innar í heild.“

Þetta segir í harð­orðu áliti erlendra sér­fræð­inga til Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra um ástand bráða­mót­töku Land­spít­al­ans sem Stundin hefur undir höndum. Álitið skrifa Johan Permert, skurð­læknir og pró­fessor við Karol­inska sjúkra­húsið í Stokk­hólmi og Markus Castegren, sér­fræð­ingur á sviði svæf­inga- og gjör­gæslu­lækn­inga við Karol­inska, sem báðir voru skip­aðir í átaks­hóp heil­brigð­is­ráð­herra um lausnir á vanda bráða­mót­tök­unnar.

Í álit­inu kemur fram að 20 til 40 sjúk­lingar á dag bíða í meira en sól­ar­hring á bráða­mót­tök­unni eftir að kom­ast inn á deild. „Að vera fastur á bráða­mót­tök­unni í bið eftir sjúkra­rými er sjúk­ling­unum hættu­legt,“ segir í álit­inu. „Slíkir sjúk­lingar eru í auk­inni lífs­hættu, smit­hættu og eru lík­legri til að dvelja lengi á sjúkra­hús­inu. Kostn­að­ur­inn vegna þess­ara sjúk­linga er hár, bæði fyrir sjúkra­húsið og sam­fé­lagið. Á Land­spít­al­anum eru þessir sjúk­lingar oft við­kvæmt eldra fólk með fjölda kvilla og flóknar þarfir. Lengd þessa bið­tíma eykst með árunum. Því eldri sem sjúk­ling­arnir eru, því lengur bíða þeir!“

„Því eldri sem sjúk­ling­arnir eru, því lengur bíða þeir!“

Lækn­arnir bæta því við að þessi vandi sé þekktur utan Íslands og Land­spít­al­ans. „En það verður að leggja áherslu á það að stærð vand­ans og fjöldi þeirra sjúk­linga sem bíða á bráða­deild Land­spít­al­ans eftir rúmum, er af risa­vax­inni stærð­argráðu, sem leiðir til þján­ingar og lík­lega alvar­legra fylgi­kvilla fyrir ein­staka sjúk­linga. Það veldur áhyggjum að vís­bend­ingar eru um að vanda­málið sé að vaxa. Þar af leið­andi er aðkallandi að gripið verði til aðgerða til að bæta ástandið.“

Permert og Castegren leggja áherslu á að vanda­málið liggi ekki hjá starf­semi bráða­deild­ar­innar sjálfrar eða starfs­fólks hennar. For­stjóri Land­spít­al­ans, Páll Matth­í­as­son, þurfi að breyta um for­gangs­röðun. „Jafnvel þó vanda­málið og ástandið á spít­al­anum hafi legið ljóst fyrir í lengri tíma og sé for­stjóra Land­spít­al­ans vel kunn­ugt, þá hafa engar aug­ljósar aðgerðir komið fram til að leysa vand­ann,“ segir í álit­inu. „Aðgerð­irnar hafa frekar beinst að afleiddum áhrifum, frekar en rót vand­ans. Skilaboð stjórn­enda Land­spít­al­ans hafa verið að vand­inn sé meira sam­fé­lags­legur vandi en vanda­mál sem Land­spít­al­inn sjálfur getur leyst eða haft áhrif á.“

„Sjúk­lingar, gamlir og við­kvæmir, þjást upp til hópa vegna núver­andi ástands“

Segja þeir að þrátt fyrir að stjórn­endur Land­spít­al­ans geti ekki leyst vand­ann einir og sér þá þurfi þeir að leiða veg­inn. „Staðan á bráða­mót­tök­unni er krónísk kata­st­rófa og hún á sér stað innan spít­al­ans. Sjúk­lingar, gamlir og við­kvæmir, þjást upp til hópa vegna núver­andi ástands.“

Bráða­mót­taka Land­spít­al­ansSænsku lækn­arnir eru afger­andi í áliti sínu um ábyrgð stjórn­enda Land­spít­al­ans hvað varðar lausn vand­ans.

Loks segja Permert og Castegren að stjórn­endur Land­spít­al­ans þekki þær til­lögur sem liggi fyrir og séu kunn­ugir þeim hug­myndum sem komið hafa upp innan Land­spít­al­ans og heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins til að vinna á vand­anum. Þeir leggja fram 10 skrefa áætlun til að bæta úr ástand­inu.

„Að breyta stöð­unni og koma á var­an­legum breyt­ingum í þágu sjúk­ling­anna er fyrst og fremst áskorun fyrir stjórn­endur sem Land­spít­al­inn þarf að mæta hratt“

„Aug­ljós­lega hafa stjórn­endur valið aðra leið til að koma á breyt­ingum og aðra for­gangs­röðun,“ segir í álit­inu. „Að okkar mati þurfa for­stjór­inn og aðrir stjórn­endur að setja ástandið í for­gang, taka nauð­syn­legar ákvarð­anir og standa með þeim þar til staðan batnar. Stjórn­endur þurfa að tryggja það með öllum leiðum að Land­spít­al­inn taki virkan og leið­andi þátt í kerf­inu í heild með það að mark­miði að bæta stöð­una fyrir hóp við­kvæmra sjúk­linga sem nú bera byrð­arnar vegna ófull­nægj­andi umönn­unar innan spít­al­ans. Að breyta stöð­unni og koma á var­an­legum breyt­ingum í þágu sjúk­ling­anna er fyrst og fremst áskorun fyrir stjórn­endur sem Land­spít­al­inn þarf að mæta hratt.“

Tekið skal fram að álit­inu var skilað á ensku. Þýðingar eru blaða­manns. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár