Eignaðist perluvinkonu, þökk sé Marilyn Manson

Fata- og textíl­hönn­uð­ur­inn Tanja Huld Levý Guð­munds­dóttir lýsir því hvernig henni áskotn­að­ist ævi­löng vin­átta, þökk sé skamm­lífu goth-tíma­bili.

Þegar ég var þrettán ára og nýbyrjuð í Haga­skóla þá ætl­aði ég aldeilis að vekja athygli og sýna hver ég væri. Ég var enn þá að finna mig, en á þessu tíma­bili ákvað ég að vera got­hari. Ég var í risa­stórum svörtum buxum sem feng­ust í Spúútnik og svörtum bol með svartan „eyeliner“. Ég sat fyrir utan skóla­stof­una að bíða eftir næsta tíma og gaf frá mér orku sem sagði að ég nennti ekki að vera hérna, að ég væri of töff fyrir það.

Þá virti stelpa, sem ég þekkti ekki, mig fyrir sér og spurði hvort ég fíl­aði Marilyn Manson. Ég svar­aði ját­andi og þá sagði hún: „Sjáðu þetta“ og benti á Marilyn Manson-lykla­kipp­una sína. Eftir það urðum við bara perlu­vin­konur. Það þótti ekki rosa­lega töff að vera Man­son­isti, eins og við vorum kall­aðar, á þessum tíma. Við mynd­uðum síðan hóp í kringum okkur, sem var kallað djúpa liðið, af því að við vorum alltaf að ræða djúpa hluti, en það þótti ekki heldur vera kúl á þessum tíma.

Við erum enn þá bestu vin­konur í dag og erum í vin­kvenna­hópi sem hitt­ist reglu­lega. Þetta er saga sem við rifjum oft upp og hlæjum að, en það sam­einar okkur einmitt að þora að máta mis­mun­andi tján­ingu á sjálfs­vit­und okkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár