Stór lögregluaðgerð við byggingu hótels: Starfsmenn fluttir burt með lögreglu

Stór aðgerð rík­is­skatt­stjóra og lög­reglu í morgun. Að minnsta kosti sex starfs­menn voru teknir af svæð­inu í fylgd lög­reglu.

Stór lögregluaðgerð við byggingu hótels: Starfsmenn fluttir burt með lögreglu

Umfangs­mikil sam­eig­in­leg aðgerð lög­reglu og eft­ir­lits­full­trúa við Héð­ins­hús í Vest­ur­bænum fór fram á tíunda tím­anum í morgun. Lög­reglu­full­trúi segir aðgerð­ina hafa verið „árang­urs­ríkt eft­ir­lit“ þar sem ekk­ert hafi komið upp úr eft­ir­lit­inu, en engu að síður voru að minnsta kosti sex starfs­menn færðir af svæð­inu í lög­reglu­fylgd. Tveir ein­stak­lingar voru hand­teknir á sama vinnu­stað 12. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Þegar blaða­mann bar að garði var Selja­veg­ur­inn lok­aður. Á annan tug lög­reglu­þjóna voru að störfum á sex bif­reiðum. Sjö ein­stak­lingar á vegum Rík­is­skatt­stjóra, Vinnu­eft­ir­lits­ins og Vinnu­mála­stofn­unar voru á svæð­inu en vildu ekki tjá sig við fjöl­miðla. Mikill erill var á svæð­inu er rætt var við allt starfs­fólkið á vinnu­staðnum.

Eft­ir­lits­full­trúar að störfumFull­trúar frá Rík­is­skatt­stjóra, Vinnu­mála­stofnun og Vinnu­eft­ir­lit­inu ræddu við verk­taka og und­ir­verk­taka CenterHotels.

Einn starfs­maður var færður inn í lög­reglu­bíl sem ók í burtu. Hann var ekki í hand­járnum. Blaða­maður náði tali af einum lög­reglu­þjóni sem gat tjáð sig um stöðu mála. Hann sagði að þessi til­tekni ein­stak­lingur hefði ekki verið með skil­ríki á sér og því hefði verið ekið með hann heim til að sækja þau og sýna fram á að hann hefði rétt til að vinna á land­inu. Lög­reglu­þjónn­inn sagði að þessi starfs­maður fengi að öllum lík­indum að snúa aftur til starfa eftir að sýna skil­ríki sín.

„Árangursríkt eftirlit“

Lög­reglu­þjónn­inn sagði að um væri að ræða „árang­urs­ríkt eft­ir­lit“ lög­reglu, rík­is­skatt­stjóra og eft­ir­lits­full­trúa þar sem ekk­ert hafi komið upp úr því. Hann vildi ekki tjá sig um hvort ferðin væri til­komin vegna ábend­ingar eða hvort uppi væru vís­bend­ingar um grun­sam­legt athæfi.

Sex starfs­menn teknir af svæð­inuSex starfs­menn voru fjar­lægðir af vinnu­stað. Fimm var komið fyrir í lög­reglu­bif­reiðir sem hér sjást.

Skömmu síðar voru fimm aðrir ein­stak­lingar færðir í tvær lög­reglu­bif­reiðir, aðra þeirra ómerkta, sem óku í burtu með hinum lög­reglu­bif­reið­unum í átt að lög­reglu­stöð. Ekki liggur fyrir hvort ein­hver þeirra sé með stöðu grun­aðs. Enginn þeirra var í hand­járnum, en eng­inn þeirra virt­ist ánægður á svip með atburði morg­uns­ins.

Um klukkan ell­efu fóru tveir lög­reglu­þjónar auk fjög­urra óþekktra aðila í vinnu­fatn­aði inn á skrif­stofu verk­taka. Ekki er vitað hvort fleiri starfs­menn hafi verið færðir í burtu af lög­reglu til yfir­heyrslu eða hvort ein­hver sé með stöðu grun­aðs manns.

Frá árinu 2017 hefur CenterHotels unnið að því að umbreyta Héð­ins­hús­inu í hótel. Verka­lýðs­fé­lög hafa reglu­lega komið við og haft umkvart­anir um hvernig staðið er að verk­inu. 12. sept­em­ber síð­ast­lið­inn voru tveir starfs­menn hand­teknir af lög­reglu fyrir að starfa án atvinnu­leyfis. Und­ir­verk­taki ját­aði lög­brot í sam­tali við Stundina.

Uppfært 21. jan­úar kl. 14:59: Samtals voru átta starfs­menn hand­teknir í þess­ari aðgerð grun­aðir um skjala­fals. Níu öðrum var vikið af vett­vangi þar sem þeir voru ekki með skil­ríki á sér. Eftir að hafa fram­vísað gildum skil­ríkjum fengu þeir að snúa aftur til vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár