Mynd: Davíð Þór

Tveir handteknir við byggingu hótels í Vesturbænum

Tveir starfs­menn und­ir­verk­taka voru hand­teknir af lög­reglu við Seljaveg í vest­urbæ Reykja­víkur í sept­em­ber, en þar er Bygg­ing­ar­fé­lagið Upprisa ehf. að störfum við að breyta hús­næð­inu í hótel fyrir keðj­una CenterHotels. Und­ir­verk­tak­inn játar lög­brot.

Aðilar frá lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, Vinnu­mála­stofnun og vinnu­staða­eft­ir­liti verka­lýðs­fé­lag­anna fundu í sam­eig­in­legri aðgerð tvo starfs­menn að vinnu í Héð­ins­hús­inu í vest­urbæ Reykja­víkur 12. sept­em­ber sem ekki gátu gert grein fyrir sér. Við yfir­heyrslu kom í ljós að hvor­ugur var með atvinnu­leyfi, en annar þeirra stendur frammi fyrir brott­vísun úr landi, og mögu­lega var­an­legu end­ur­komu­banni sam­kvæmt lög­reglu.

Verk­kaup­andi er CenterHotels, en fram­kvæmda­stjóri hót­el­keðj­unnar seg­ist líta málið alvar­legum augum og að svona verði ekki liðið. For­svars­maður und­ir­verk­tak­ans, sem bar ábyrgð á umræddum starfs­mönnum, játar að hann hafi ekki ætlað að borga þeim laun, en það er meðal ann­ars brot á lögum um atvinnu­rétt­indi útlend­inga sem fylgir allt að tveggja ára fang­els­is­vist. Hann seg­ist hins vegar ekki hafa fengið nein við­brögð frá CenterHotels eða öðrum yfir­mönnum.

Engin viðbrögð frá verkstjóra

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár