„Maðurinn með leppinn“ sakfelldur fyrir árásina á bandaríska þinghúsið

Leiðtogi víga­sveit­ar­innar Oath Keepers, mað­ur­inn sem er með lepp af því að hann skaut sjálfan sig í augað, hefur verið sak­felldur fyrir árás­ina á banda­ríska þing­húsið í jan­úar í fyrra. Hann á yfir höfði sér 20 ára fang­els­is­dóm.

Stewart Rhodes, stofnandi og leiðtogi öfga- og vígasamtakanna The Oath Keepers.
Stewart Rhodes, stofn­andi og leið­togi öfga- og víga­sam­tak­anna The Oath Keepers. Mynd: Facebook

Elmer Stewart Rhodes, stofn­andi öfga- og víga­sam­tak­anna the Oath Keepers, hefur verið fund­inn sekur um upp­reisn­ar­á­róður gegn banda­ríska rík­inu fyrir að skipu­leggja aðgerðir til að koma í veg fyrir emb­ætt­is­töku Joe Biden sem Banda­ríkja­for­seta.

Rétt­ar­höld yfir Rhodes og fjórum öðrum liðs­mönnum the Oath Keepers hafa staðið yfir síð­ustu tvo mán­uði vegna aðildar þeirra í óeirð­unum á þing­húsið. Fyrir áeggjan Donalds Trump, sem þá bjó sig undir að láta af emb­ætti for­seta, braust æstur múgur inn í þing­húsið 6. jan­úar 2021.

[adspot]6. jan­úar á þessu ári, þegar ár var liðið frá árásinni, ávarp­aði Biden þjóð­ina og sagði Trump ábyrgan fyrir árásinni á þing­húsið og sak­aði hann um að hafa reynt að gera út af við lýð­ræði í Banda­ríkj­un­um.

[links]„Hann reyndi að koma í veg fyrir frið­sam­leg valda­skipti ættu sér stað þegar æstur múgur réðst á þing­hús­ið. En þeim mistókst. Þeim mistókst. Og á þessum degi þegar við minn­umst þess verðum við að tryggja að árás eins og þessi ger­ist aldrei aft­ur,“ sagði Biden í ávarpi sínu þar sem hann var afar harð­orður í garð Trump. „Löskuð sjálfs­mynd hans skipti hann meira máli en lýð­ræðið eða stjórn­ar­skráin okk­ar, hann getur ekki við­ur­kennt tap,“ sagði Biden.

Stofnaði vígasamtökin eftir kjör Obama

Dag­inn sem öld­unga­deild­ar­þingið stað­festi kjör Biden hélt Trump fjölda­fund við Hvíta húsið þar sem hann hvatti stuðn­ings­menn sína til að „bjarga landi þeirra“. Stuðn­ings­menn tóku hann á orð­inu og réð­ust inn í þing­hús­ið, sumir vopn­aðir í hefð­bundnum skiln­ingi en fleiri vopn­aðir snjall­símum þar sem atburð­ar­rásinni var streymt á sam­fé­lags­miðl­um.

Þrír liðs­manna the Oath Keepers, þau Jessica Watkins, Kelly Meggs og Kenneth Harrel­son, fóru inn í þing­húsið í óeirð­unum. Meggs var sak­felld fyrir upp­reisn­ar­á­róður líkt og Rhodes. Bæði eiga þau yfir höfði sér 20 ára fang­els­is­dóm.

Harrel­son, Watkins og fimmti liðs­mað­ur­inn, Thomas Caldwell, voru ekki sak­felld fyrir upp­reisn­ar­á­róður en öll fimm voru sak­felld fyrir að hindra störf opin­berra starfs­manna og emb­ætt­is­manna. Kvið­dóm­ur­inn var þrjá daga að kom­ast að nið­ur­stöðu.

Víga­sveitin the Oath Keepers eru öfga­hægri-sam­tök þar sem her­þjálfun er grunn­þáttur. Starf­semi slíkra vopn­aðra sveita er form­lega ólög­leg í öllum ríkjum Banda­ríkj­anna en þær hafa fengið að starfa að mestu óáreittar. Rhodes stofn­aði sam­tökin eftir að Barack Obama var kjör­inn for­seti árið 2008. Rhodes sagði skoð­anir Obama stang­ast á við banda­rísku stjórn­ar­skránna og vildi grípa til sinna ráða.

Fyrrverandi fallhlífarhermaður sem skaut sjálfan sig í augað

Mikill fjöldi víga­manna í sveitum sem þessum eru fyrrum eða núver­andi her- og lög­reglu­menn. Stewart Rhodes er 57 ára fyrr­ver­andi fall­hlífa­her­maður með lög­fræði­gráðu frá Yale-háskóla. Útlit og eldræður Rhodes hafa vakið tölu­verða eft­ir­tekt en hann er með lepp fyrir vinstra aug­anu. Árið 1993 varð hann fyrir því óhappi að skjóta sjálfan sig í augað með 22 kali­bera skamm­byssu sem hann átti. Rhodes er með gervi­auga en kýs oft­ast að nota lepp sem hefur orðið að eins konar ein­kenn­is­tákni og er hann orð­inn þekktur sem „mað­ur­inn með lepp­inn“.

Rhodes hætti í hernum eftir að hann varð fyrir meiðslum við æfingar og nam stjórn­mála­fræði og starf­aði sem aðstoð­ar­maður Ron Paul, þing­manns Repúblik­ana, árið 2001. Hann útskrif­að­ist sem lög­fræð­ingur frá Yale-háskóla árið 2004 og starf­aði sem lög­maður til árs­ins 2015 þegar hann var sviptur lög­manns­rétt­indum fyrir að brjóta gegn siða­reglum Hæsta­réttar í Montana. Frá 2015 hefur hann því alfarið ein­beitt sér að Oath Keepers.

Lét eins og „hershöfðingi á vígvelli“

Rhodes hætti sér ekki sjálfur inn í þing­húsið en sak­sókn­arar sögðu Rhodes hafa hagað sér eins og „hers­höfð­ingi á víg­velli“ fyrir utan þing­húsið á meðan óeirð­unum stóð. Ætl­un­ar­verk Rhodes hafi verið skýrt: Að hvetja til óeirða og ofbeldis til að hindra emb­ætt­is­skipti Joes Biden og Donalds Trump og tryggja þannig að Trump yrði enn í emb­ætti.

Það mistókst og Rhodes á nú yfir höfði sér 20 ára fang­els­is­dóm.

Í rétt­ar­höld­unum kom meðal ann­ars fram að Rhodes og liðs­menn hans komu tugum vopna fyrir á hót­el­her­bergi í Virginíu, handan við Potomac-ána sem skilur að Washington D.C. og Virginíu. Liðsmenn the Oath Keepers bjuggu sig því undir að víg­bú­ast frekar ef þörf væri á.

Lögmenn Rhodes not­uðu það í vörn sinni að það að vopnin voru aldrei flutt til borg­ar­innar sýndu að aðgerðir víga­sveit­ar­innar voru fyrst og fremst varn­ar­sinn­aðar. Ætlun þeirra hafi verið að vernda mót­mæl­endur og halda frið­inn fyrir utan þing­húsið, jafnt sem innan þess.

Lögmenn Rhodes ávörp­uðu fjöl­miðla fyrir utan dóms­húsið þegar nið­ur­staðan lá fyrir og sögð­ust ekki sáttir við nið­ur­stöð­una sem væri þó ekki óum­deildur sigur fyrir ákæru­valdið. Lögmenn fimm­menn­inn­g­anna hyggj­ast áfrýja öllum sak­fell­ingum máls­ins.

Fyrsta sakfellingin um uppreisnaráróður í tæp 30 ár

Sak­fell­ing fyrir sam­særi um upp­reisn­ar­á­róður er sjald­gæf í Banda­ríkj­unum. Síðast var sak­fellt fyrir þessar sakir árið 1995 þegar tíu íslamskir víga­menn voru dæmdir fyrir að reyna að koma fyrir sprengjum við þekkt kenni­leiti í New York.

Til að vera sak­felldur fyrir sam­særi um upp­reisn­ar­á­róður gegn alrík­inu þurfa sak­sókn­arar að sýna fram á að tveir, eða fleiri, hafi lagt á ráðin um að „steypa af stóli, nið­ur­lægja eða koma vald­höfum frá völdum með átökum,“ eða sanna að við­kom­andi hafi skipu­lagt að beita afli til að and­mæla stjórn­völdum.

Alan Rozenshtein, laga­pró­fessor við háskól­ann í Minnesota og fyrr­ver­andi lög­fræð­ingur í banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­inu, segir sak­fell­ingu Rhodes vera þýð­ing­ar­mikla þar sem hún sýni fram á „raun­hæfa og lög­lega leið til að refsa fyrir allra alvar­leg­ustu and­lýð­ræð­is­legu hegðun“ í land­inu.

Rann­sóknin á árásinni á þing­húsið er ein sú umfengs­mesta í sögu Banda­ríkj­anna. Búast má við að sak­fell­ingin verði for­dæm­is­gef­andi. Um 900 manns í nær öllum 50 ríkjum Banda­ríkj­anna hafa verið hand­tekin fyrir að taka þátt í árásinni á þing­húsið.

Rhodes bæt­ist nú í hóp fjölda óreirð­ar­seggja sem dæmdir hafa verið fyrir þátt­töku sína eða skipu­lag á árásinni á þing­húsið. Meðal þeirra má nefna „Qa­non-seið­mann­inn“ Jacob Chansley, sem varð fljótt að eins konar tákn­gerv­ingi árás­ar­innar. Chansley var hand­tek­inn þremur dögum eftir árás­ina og var upp­haf­lega birt ákæra í sex lið­um, meðal ann­ars fyrir að setj­ast í ræðu­stól Mike Pence vara­for­seta. Hann ját­aði aðild sína að árásinni og hlaut 41 mán­aðar fang­els­is­dóm.

Rétt­ar­höld yfir fleiri liðs­mönnum the Oath Keepers fara fram fyrir ára­mót, auk rétt­ar­halda yfir liðs­mönnum ann­arra öfga­sam­taka, the Proud Boys. Ekki liggur fyrir hvenær dómur verður kveð­inn upp yfir Rhodes.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár