Fordæmalaus húsleit í Mar-a-Lago

Banda­rískir alrík­is­lög­reglu­menn fram­kvæmdu í gær hús­leit á heim­ili Donalds Trump í Flórída og höfðu þaðan með sér ein­hver gögn. Aldrei fyrr hefur verið farið í lög­gæslu­að­gerð af þessu tagi gegn fyrr­ver­andi for­seta Banda­ríkj­anna.

Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti.
Donald Trump fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seti. Mynd: EPA

Stjórn­mála­sviðið í Banda­ríkj­unum leikur nú á reiði­skjálfi, í kjöl­far þess að alrík­is­lög­reglan FBI fékk heim­ild til hús­leitar á heim­ili Donalds Trump í Flór­ídaríki í gær.

Lítið er vitað með vissu um ástæður þess að alrík­is­lög­reglan fór fram á og fékk hús­leit­ar­heim­ild hjá for­set­anum fyrr­ver­andi, en sam­kvæmt frétta­flutn­ingi New York Times og fleiri fjöl­miðla virð­ist hús­leitin hafa snú­ist um gögn sem Trump tók með sér úr Hvíta hús­inu eftir að hann lét af for­seta­emb­ætt­inu.

Samkvæmt fregnum ýmissa fjöl­miðla höfðu alrík­is­lög­reglu­menn með sér nokkra kassa á brott frá Mar-a-Lago-setr­inu og stað­festi Christina Bobb, lög­maður Trumps sem var við­stödd aðgerð FBI, að alrík­is­lög­reglu­menn hefðu lagt hald á ein­hver gögn við leit­ina.

Meðferð Trumps á embættisgögnum til rannsóknar

Fyrr á þessu ári fór þjóð­skjala­safn Banda­ríkj­anna fram á það að Donald Trump yrði tek­inn til rann­sóknar hjá dóms­mála­ráðu­neyt­inu vegna með­ferðar sinnar á vinnu­gögnum for­seta­emb­ætt­is­ins, en öllum gögnum á borð við vinnu­skjöl, bréf og tölvu­pósta skal halda til haga og skila til þjóð­skjala­safns­ins, banda­rískum lögum sam­kvæmt.

[adspot]

Í febr­úar opin­ber­aði þjóð­skjala­safnið að stofn­unin hefði verið í sam­skiptum við Trump vegna gagna sem hann hefði tekið með sér úr Hvíta hús­inu og á setur sitt í Flórída, en ekki skilað til stofn­un­ar­innar eins og lög segja til um. Sagt var frá því að kass­arnir hefðu verið 15 tals­ins og sumir inni­haldið trún­að­ar­gögn. Þessi mál hafa verið til rann­sóknar.

Talar um pólitískar ofsóknir

Alrík­is­lög­reglan hefur til þessa ekk­ert tjáð sig um hús­leit­ina og ekki dóms­mála­ráðu­neytið heldur, en fregnir af henni fóru sem eldur í sinu um banda­rískt þjóð­fé­lag síð­degis í gær, eftir að Trump sjálfur sagði í yfir­lýs­ingu að hópur FBI-manna hefði ráð­ist inn á heim­ili hans og kall­aði aðgerð­ina algjör­lega ónauð­syn­lega og óvið­eig­andi, þar sem hann hefði verið í sam­vinnu við við­eig­andi rík­is­stofn­anir um lausn máls­ins.

„Þeir brut­ust meira að segja inn í örygg­is­skáp­inn minn,“ sagði Trump í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér í gær­kvöldi, en þar spar­aði hann ekki stóru orðin og tal­aði um „vopna­væð­ingu dóms­kerf­is­ins,“ árás frá „rót­tækum vinstri demókrötum“ sem hann segir að vilji alls ekki að hann bjóði sig fram til for­seta á ný árið 2024.

„Árás sem þessi gæti ein­ungis átt sér stað í skemmdum þriðja heims ríkjum. Hryggi­lega eru Banda­ríkin nú orðið eitt þeirra landa, spill­ingin hefur aldrei verið jafn mikil. Þeir brut­ust meira að segja inn í örygg­is­skáp­inn minn! Hver er mun­ur­inn á þessu og Watergate, þegar brot­ist var inn í höf­uð­stöðvar land­nefndar Demókra­ta­flokks­ins? Hér snýst taf­lið við, demókratar hafa brot­ist inn á heim­ili 45. for­seta Banda­ríkj­anna,“ skrif­aði Trump.

Þetta er í fyrsta sinn sem nokkur fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna hefur staðið frammi fyrir opin­berum aðgerðum af þessu tagi, og hafa sam­herjar Trumps í póli­tík látið að því liggja að um sé að ræða mis­beit­ingu valds í póli­tískum til­gangi, eins og Trump sjálfur vill meina.

Gæti sannað brot komið í veg fyrir framboð Trumps?

Strax í gær­kvöldi var þeim kenn­ingum fleytt fram að ef Donald Trump yrði fund­inn sekur um að hafa mis­farið með gögn for­seta­emb­ætt­is­ins, myndi það koma í veg fyrir að hann gæti tekið emb­ætti for­seta að nýju, en hann hyggur á fram­boð árið 2024. Ef laga­greinar sem þetta varða eru lesnar virð­ist það vera rök­rétt nið­ur­staða, en það er þó málum blandið.

Samkvæmt umfjöllun New York Times skoð­uðu lög­spek­ingar vest­an­hafs þetta álita­mál árið 2015, þá í tengslum við mál sem teng­ist Hillary Clinton, sem hafði notað sitt einka­net­fang en ekki opin­beran tölvu­póst­þjón stjórn­valda til að reka erindi er hún var utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna.

Nið­ur­staðan flestra þerira varð þá sú að jafn­vel þótt Clinton myndi hljóta dóm fyrir tölvu­pósta­málið, þá væri kveðið á um kjör­gengi til emb­ættis for­seta í stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna. Ákvæði hegn­ing­ar­laga tromp­uðu ekki þau ákvæði sem sett væru fram í stjórn­ar­skrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár