„Sannleikssamfélagi“ Trump lýst sem hörmung

Sam­fé­lags­mið­ill Donalds Trump, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seta, hefur ekki gengið sem skyldi frá því að hann var gef­inn út í febr­úar. Tveir reynslu­miklir frum­kvöðlar í tækni­geir­anum hafa sagt skilið við Truth Social og Trump er ævar­eiður.

Donald Trump á fjöldafundi í Suður-Karólínu í síðasta mánuði. Samfélagsmiðill hans, Truth Social, hefur ekki gengið eins vel og forsetinn fyrrverandi vonaðist til.
Donald Trump á fjölda­fundi í Suður-Karólínu í síð­asta mán­uði. Sam­fé­lags­mið­ill hans, Truth Social, hefur ekki gengið eins vel og for­set­inn fyrr­ver­andi von­að­ist til. Mynd: EPA

Donald Trump, fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, til­kynnti í októ­ber að hann ætl­aði að stofna „bylt­ing­ar­kennt tækni­fyr­ir­tæki“. Úr varð nýr sam­fé­lags­mið­ill, Truth Social.

„Ég stofn­aði Truth Social til að standa uppi í hár­inu á alræði stóru tækni­fyr­ir­tækj­anna,“ sagði Trump þegar hann greindi frá sam­fé­lags­miðl­inum síð­ast­liðið haust. „Við lifum í heimi þar sem talí­banar hafa greiðan aðgang að Twitter en á sama tíma hefur verið þaggað niður í upp­á­halds for­set­anum ykkar.“

Trump not­aði sam­fé­lags­miðla óspart í kosn­inga­bar­áttu sinni til emb­ættis Banda­ríkja­for­seta sem og eftir að hann náði kjöri. Trump var oft sak­aður um grófar, sví­virði­legar og falskar upp­lýs­ingar í færslum sínum og voru sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tæki á borð við Facebook og Twitter oft krafin um að banna Trump á miðlum sínum eða tak­marka efni sem hann birti. Það gerð­ist hins vegar ekki fyrr en að for­seta­tíð hans lauk og eftir árás­ina á þing­húsið í byrjun jan­úar 2021. Bann Trump á Facebook gildir í að minnsta kosti tvö ár en Trump var settur í lífs­tíð­ar­bann á Twitter.

Sam­fé­lags­mið­ill­inn Truth Social, „Sann­leiks­sam­fé­lagið“, fór í loftið 21. febr­úar, á sjálfum for­seta­deg­inum, sem þótti styrkja þær sögu­sagnir að Trump stefni á for­seta­fram­boð 2024.

Nærri ein og hálf milljón á biðlista

En vand­ræðin hafa hlað­ist upp síð­ustu sex vikur. Sú ein­kenni­lega staða er til að mynda uppi núna að nýir not­endur fá ekki aðgang að miðl­inum en enda þess í stað á biðlista. Blaða­maður BBC sem bjó til aðgang að Truth Social varð að láta sér nægja að vera númer 1.419.631 í röð­inni. Ástæðan er sögð tækni­legir örð­ug­leikar.

Truth Social minnir um margt á Twitter en aðgengið er tak­markað. Ekki er hægt að hlaða smá­forrit­inu niður í snjall­tækjum með Android-stýri­kerfi og mið­ill­inn er óað­gengi­legur að mestu leyti utan Banda­ríkj­anna.

„Þetta er algjör hörm­ung,“ segir Joshua Tucker, yfir­maður sam­fé­lags­miðla- og stjórn­mála­stofn­unar New York háskóla. Banda­maður Trump úr röðum repúblik­ana, sem vill ekki láta nafns síns getið, segir engan vita hvað sé í raun og veru á seyði.

Daginn sem Truth Social var gefið út var það á meðal mest sóttu smá­forrit­anna í App Store, en margir sem sóttu mið­il­inn gátu ekki notað hann. Búist var við að fljótt yrði greitt úr þessum byrj­un­arörð­ug­leikum og að fylgj­endur for­set­ans fyrr­ver­andi gætu fljótt fylgst með „sann­leiks­færslum“ hans. En hvor­ugt gerð­ist. Truth Social hefur hrunið niður vin­sæld­ar­list­ann á App Store og nær ekki lengur inn á lista yfir 100 vin­sæl­ustu smá­forritin á meðan YouTube, TikTok, Instagram og Facebook halda sínum sætum yfir tíu vin­sæl­ustu smá­forritin.

Umræða um Truth Social hefur skap­ast á öðrum sam­fé­lags­miðlum. „Trump verður orð­inn for­seti aftur áður en ég kemst af biðlist­anum og far­inn að nota Truth Social fyrir alvöru,“ tístir einn.

Trump ævareiður og spyr af hverju notendurnir séu ekki fleiri

Engar skýr­ingar hafa verið gefnar á tækni­legu örð­ug­leik­unum. Ein­hverjir hafa bent á að sam­starf Truth Social við Rumble, mynd­skeiða­for­rit sem nýtur vin­sælda meðal hægri sinn­aðra Banda­ríkja­manna, hægt á virkni mið­ils­ins. Á sama tíma er bent á að það útskýri ekki sex vikna tækni­lega örð­ug­leika.

Tveir helstu tækni­frum­kvöðlar Truth Social sögðu upp störfum á mánu­dag. Josh Adams, yfir­maður tækni­mála, og Billy Boozer, yfir­maður vöru­þró­unar, eru reynslu­miklir frum­kvöðlar í tækni­geir­anum og íhalds­samir í stjórn­mála­skoð­unum sínum, nokkuð sem er ekki algengt í tækni­geir­anum. Þeir voru því akkúrat það sem Trump þurfi á halda, en hafa nú sagt skilið við hann og sann­leiks­sam­fé­lagið.

Fylgj­endur Trump á miðl­inum eru um 750 þús­und en sjálfur hefur hann ekki birt „sann­leika“ í meira en mánuð. „Verið við­búin! Upp­á­halds for­set­inn ykkar mun sjá ykkur fljót­lega!“ segir í síð­ustu færslu hans á sann­leiks­sam­fé­lag­inu sem birt­ist í byrjun mars. Síðan þá hefur ekk­ert gerst. Trump er sagður ævar­eiður og spyr hvers vegna fleiri séu ekki að nota Truth Social?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár