Trump ákærður af fulltrúadeildinni í annað sinn – Sá fyrsti sem er ákærður tvisvar

Donald Trump varð í kvöld fyrsti for­set­inn í sögu Banda­ríkj­anna til að verða tví­vegis ákærður af full­trúa­deild Banda­ríkj­anna fyrir emb­ætt­is­brot. Ástæðan er hvatn­ing hans með lygum sem leiddi til þess að æstur múgur réðst inn í þing­hús Banda­ríkj­anna.

Donald J. Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald J. Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Full­trúa­deild Banda­ríkja­þings hefur sam­þykkt að ákæra Donald J. Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, fyrir emb­ætt­is­brot. Á meðal þess sem Trump er ákærður fyrir er að ógna öryggi Banda­ríkj­anna, með því að hvetja með lygum til þess að æstur múgur lét til skar­ar skríða síð­asta mið­viku­dag.

Alls sam­þykktu 231 þing­menn að ákæra Trump en 197 voru á móti. Þeir sem sam­þykktu ákæruna eru allir þing­menn Demókra­ta­flokks­ins auk tíu þing­manna Repúblikana­flokks­ins.

Í ákæru­skjal­inu segir að for­set­inn hafi ógnað heil­indum lýð­ræð­is­kerf­is­ins, haft afskipti af frið­sam­legum valda­skiptum og stefnt þing­inu í hættu með því að hvetja æstan múg til ofbeld­is­verka gegn rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna, með ræðu sinni á mót­mæla­fundi í Washington fyrir viku síðan.

[adspot]Nú fær­ist málið til öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings þar sem þing­menn kjósa um hvort for­set­anum skuli vikið úr emb­ætti eða ekki, en ein­ungis sjö dagar eru nú þar til Joe Biden tekur við sem næsti for­seti Banda­ríkj­anna. Þeim rétt­ar­höldum verður stýrt af for­seta Hæsta­réttar.

Öld­unga­deildin á ekki að koma saman fyrr en 19. jan­úar, degi áður en Biden tekur form­lega við, og Mitch McConnell, leið­togi repúblík­ana í deild­inni, hefur sagt að hún verði ekki kölluð til fyrr þrátt fyrir að ákæran yrði sam­þykkt.

Því er nær öruggt að málið mun ekki leiða til emb­ætt­is­missis fyrir Trump verði hann sak­felldur, enda mun hann verða hættur sem for­seti þegar nið­ur­staða fæst.

[links]Hins vegar er hægt að tryggja að þeir for­setar sem verða sak­felldir fyrir emb­ætt­is­brot geti ekki boðið sig fram að nýju í emb­ætti, en Trump hefur viðrað þá hug­mynd að reyna aftur við for­seta­fram­boð eftir fjögur ár.

Þetta er í annað sinn sem Trump er ákærður af full­trúa­deild Banda­ríkja­þings fyrir emb­ætt­is­brot. Hann er fyrsti for­seti í sögu Banda­ríkj­anna sem það hefur hent. Raunar er þetta ein­ungis í fjórða sinn sem for­seti er ákærður fyrir emb­ætt­is­brot og því mun helm­ingur þeirra mála vera gegn Trump.

Síðast var Trump ákærður í des­em­ber í fyrra fyrir að þrýsta á um rann­sókn á Joe Biden, þá for­seta­fram­bjóð­anda, en líka með því að fylgja ekki form­legum leiðum í sam­skiptum við önnur ríki, í þessu til­felli Úkra­ín­u. Með athæfi sínu var Trump tal­inn hafa tekið sér­hags­muni sína fram yfir þjóð­ar­hags­muni í sam­skiptum við annað þjóð­ríki.

Öld­unga­deildin sýkn­aði hann þá af ákærunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár