Niðurskurður í höll Margrétar Þórhildar

Þótt nær dag­lega séu fluttar fréttir af nið­ur­skurði er óhætt að full­yrða að nið­ur­skurð­ar­tíð­indin sem borist hafa úr dönsku kon­ungs­höll­inni hafi nokkra sér­stöðu. Enda snú­ast þær fréttir um titla en ekki pen­inga eða sam­drátt í við­skipta­líf­inu.

Danadrottning með barnabörnunum á svölum Amalíuborgar á 76 ára afmælisdaginn 2016. Í vikunni tilkynnti hún að barnabörnin verða svipt prinsa- og prinsessutitlum frá og með næstu áramótum.
Dana­drottn­ing með barna­börn­unum á svölum Amal­íu­borgar á 76 ára afmæl­is­dag­inn 2016. Í vik­unni til­kynnti hún að barna­börnin verða svipt prinsa- og prinsessutitlum frá og með næstu ára­mótum. Mynd: EPA

Flestir Danir eru áhuga­samir um allt sem við kemur dönsku kon­ungs­fjöl­skyld­unni. Um Margréti Þórhildi drottn­ingu, syn­ina, tengda­dæt­urnar tvær, og eina fyrr­ver­andi, og barna­börnin átta. Það er í raun sama hvert til­efnið er, Danir fylgj­ast grannt með fjöl­skyld­unni. Margir Danir eru yfir­lýstir „roya­listar“ og Billed-bla­det „Danmarks royale ugeblad“ eins og það kallar sig fylgist nán­ast með hverju fót­máli fjöl­skyld­unnar á Amal­íu­borg.

[links]Billed-bla­det kemur út viku­lega. Þótt ekki séu ætíð ein­hverjar stór­fréttir af drottn­ing­unni og hennar fólki leggur starfs­fólk blaðs­ins sig í fram­króka í „frétta­öfl­un­inni“ til að hafa frá ein­hverju að segja. Afmæli, upp­haf skóla­göngu, ferða­lög í fríum, sýn­ing­ar­opn­anir, frum­sýn­ingar á Kon­ung­lega leik­hús­inu, þing­setn­ingar, heim­sóknir erlendra þjóð­höfð­ingja, nýárs­fagn­aðir drottn­ingar og fleira og fleira. Allt ratar þetta, og margt fleira, á síður Billed-bla­det og ann­arra miðla og stærri við­burðir sem drottn­ingin eða aðrir úr fjöl­skyld­unni eru við­staddir má iðu­lega sjá í sjón­varps­fréttum.

Prinsa- og prinsessu ofgnótt

Margrét Þór­hildur á tvo syni. Sá eldri, rík­is­arf­inn Friðrik, ber tit­il­inn krón­prins en sá yngri Jóakim verður að láta sér prins­tit­il­inn nægja. Mary eig­in­kona rík­is­arfans er krón­prinsessa, Marie eig­in­kona Jóakims ber prinsessu­titil. Bræð­urnir eiga sam­tals átta börn, þrjár stúlkur og fimm drengi. Stúlk­urnar eru prinsessur, drengirnir prinsar. Margrét Þór­hildur á tvær systur, Bene­diktu prinsessu og Önnu sem ber drottn­ing­ar­titil, hún er gift Kon­stantin 2. fyrr­ver­andi Grikk­lands­kon­ungi. Þetta gerir einn krón­prins, eina krón­prinsessu, fimm prinsessur og sex prinsa. Samtals þrettán. Alex­andra, fyrri eig­in­kona Jóakims missti prinsessu­tit­il­inn við skiln­að­inn en ber þess í stað tit­il­inn greifynja.

Rétt er að geta þess að Margrét drottn­ing heitir fjórum nöfnum: Margrethe Alex­andrine Þór­hildur Ingrid og syn­irnir og börn þeirra bera einnig fjögur nöfn. Að auki var Monpezat nafnið tekið upp í dönsku kon­ungs­fjöl­skyld­una árið 2008 og kemur aft­ast í nafnarun­unni, eftir kyni greifi (greve) eða greifynja (grevinde). Fullt nafn Friðriks krón­prins er því Frederik André Henrik Christian greve af Monpezat. Synir Mar­grétar Þór­hildar, tengda­dætur hennar og barna­börn bera öll Monpezat nafnið, sem er fjöl­skyldu­nafn Henriks drottn­ing­ar­manns. Hann lést árið 2018.

Margrét Þórhildur gerir kunnugt

Síð­ast­lið­inn þriðju­dag, 27. sept­em­ber, birt­ist á heima­síðu hall­ar­innar (Kongehu­set) til­kynn­ing. Yfir­skrift til­kynn­ing­ar­innar var „Ændrin­ger i titler og til­talefor­mer i den kong­elige familie“ þ.e breyt­ingar á titlum og ávarps­orðum í kon­ungs­fjöl­skyld­unni.

Í til­kynn­ing­unni segir fyrst að árið 2008 hafi drottn­ingin veitt sonum sínum, tengda­dætrum og afkom­endum þeirra heim­ild til að nota Monpezat tit­il­inn. Hann kemur eins og áður sagði aft­ast í nafnarun­unni hjá prins­unum greve af Monpezat, hjá tengda­dætrum og giftum son­ar­dætrum, þegar og ef að því kemur, grevinde af Monpezat og hjá ógiftum son­ar­dætrum komtesse af Monpezat. Þá segir í til­kynn­ing­unni að eins og greint hafi verið frá árið 2016 verði prins Christian, elsta barna­barn Mar­grétar Þór­hildar og til­von­andi rík­is­arfi, eina barna­barnið sem muni fá ,,apanage“ árlegan fram­færslu­eyri frá rík­inu.

Excellence í stað højhed

En það var ekki þetta fram­an­greinda, heldur það sem á eftir fór, sem vakti athygli og hefur sett allt í háa­loft hjá fjöl­skyld­unni á Amal­íu­borg.

Í til­kynn­ing­unni segir að í eðli­legu fram­haldi af Monpezat titl­unum hafi drottn­ingin ákveðið að frá og með næstu ára­mótum geti börn Jóakims ein­ungis notað greifa og komtesse titl­ana, prinsa og prinsessutitlar falli brott. Börn Jóakims verði þannig ávörpuð sem „excellence“ hágöfgi. Þetta ávarp kemur í stað „højhed“ hátign. Ávarpið er sem sé skref niður á við.

Fram hefur komið að áður hafi verið ákveðið að titl­arnir þrír „greve“, „grevinde“ og „komtesse“ skyldu falla niður þegar börn Jóakims ná 25 ára aldri. Nikolai er þeirra elstur, nýorð­inn 23 ára, Felix er tví­tugur, Henrik er 13 ára og Athena 10 ára. Jóakim eign­að­ist Nikolai og Felix með Alexöndru fyrri konu sinni, hún missti prinsessu­tit­il­inn þegar þau Jóakim skildu en ber þess í stað tit­il­inn greifynja. Marie seinni kona Jóakims er móðir þeirra Henriks og Athenu.

Eldri syn­irnir tveir stunda nám við CBS, danska við­skipta­há­skól­ann, en yngri börnin búa hjá for­eldrum sínum í París og ganga þar í skóla. Jóakim vinnur í varn­ar­mála­deild danska sendi­ráðs­ins í borg­inni og Marie vinnur einnig í sendi­ráð­inu, í menn­ing­ar­mála­deild­inni.

Sama og aðrir hafa gert

Í til­kynn­ing­unni áður­nefndu, frá höll­inni, segir að ákvörðun Mar­grétar Þór­hildar sé á svip­uðum nótum og átt hafi sér stað á nokkrum und­an­förnum árum í öðrum kon­ungs­ríkjum. Enn­fremur segir að með þess­ari ákvörðun óski drottn­ingin þess að barna­börnin fjögur geti sjálf mótað sína eigin fram­tíð án þess að vera háð þeim sér­stöku skyldum sem tengj­ast hirð­inni.

Jóakim mjög ósáttur

Það er afar sjald­gæft að fjöl­skyldan á Amal­íu­borg beri ágrein­ing og inn­byrðis deilur á torg. Und­an­tekn­ingar frá slíku er óánægja Henriks drottn­ing­ar­manns með að fá ekki kon­ungs­tign. Jóakim prins lá hins­vegar ekki á skoðun sinni þegar blaða­menn sátu fyrir honum á leið í vinn­una morg­un­inn eftir að til­kynn­ing hall­ar­innar var birt. Hann sagði að börn sín væru afar von­svikin og fynd­ist þau hafa verið svikin. Hann hefði fengið vit­neskju um ákvörðun móður sinnar með fimm daga fyr­ir­vara. Þegar blaða­maður spurði hvaða áhrif ákvörðun móður hans hefði á sam­band þeirra, sonar og móður svar­aði Jóakim að hann teldi að hann þyrfti ekki að útskýra það.

Sýnir klofning í fjölskyldunni

Danskir fjöl­miðlar hafa eytt miklu púðri í umfjöllun um þetta mál. Og sýn­ist sitt hverjum. Sumir frétta­skýrendur hafa talið ákvörðun drottn­ingar rétta og eðli­lega. Hún hafi líka, í ljósi þess að hennar eigin skapa­dægur nálg­ast (hún er 82 ára), viljað losa rík­is­arf­ann við að þurfa að taka ákvörðun af þessu tagi. Aðrir hafa bent á að hægt hefði verið að fara aðra leið, til dæmis að halda sig við 25 ára við­miðið eins og nefnt var hér að framan. Enn aðrir hafa bent á að börn Jóakims séu ekk­ert frjáls­ari að ákveða sína eigin fram­tíð þótt titl­arnir prins, prinsesse og komtesse hverfi. Allir frétta­skýrendur virð­ast á einu máli um að ákvörðun drottn­ingar sýni klofn­ing og ágrein­ing innan fjöl­skyld­unnar á Amal­íu­borg. Þeir eru líka sam­mála um að drottn­ingin muni ekki draga ákvörðun sína til baka, gert sé gert og sagt sé sagt.

Dregur þetta mál dilk á eftir sér?

Þessari spurn­ingu hafa danskir blaða­menn, og frétta­skýrendur velt fyrir sér. Án þess að hafa svar á reiðum höndum. Gam­al­reyndur blaða­maður sagði að sá stirð­leiki sem greini­lega væri kom­inn upp í fjöl­skyldu Mar­grétar Þór­hildar yrði ekki leystur ann­ars staðar en við eld­hús­borðið á Amal­íu­borg. Bætti við að gaman væri að geta verið fluga á eld­hús­veggnum þegar fjöl­skyldan öll kemur næst saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

danadrottning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár