Drottningin sníkti afmælisgjöfina

Í til­efni átt­ræð­is­af­mælis Mar­grétar Þór­hildar Dana­drottn­ingar, 16. apríl síð­ast­lið­inn, fékk danska hirðin veg­lega gjöf. Athygli hefur vakið að drottn­ingin bað sjálf um gjöf­ina sem kost­aði and­virði 128 millj­óna íslenskra króna.

Mynd frá afhendingu stólanna í febrúar. Lengst til hægri á myndinni er húsgagnasmiðurinn Ejnar Pedersen. Hann sá stólana aldrei notaða í veislum drottningar, þar sem kórónuveiran lagði hann að velli 31. mars.
Mynd frá afhend­ingu stól­anna í febr­úar. Lengst til hægri á mynd­inni er hús­gagna­smið­ur­inn Ejnar Pedersen. Hann sá stól­ana aldrei not­aða í veislum drottn­ingar, þar sem kór­ónu­veiran lagði hann að velli 31. mars. Mynd: Kongehuset

Síðustu tvö stóraf­mæli Mar­grétar Þór­hildar drottn­ingar hafa verið með öðru sniði en van­inn er á Amali­en­borg. Árið 2010 sá Eyja­fjalla­jök­ull til þess að fæstir þeirra gesta sem boðið hafði verið til sjö­tugs­af­mælis drottn­ingar gátu mætt i veisl­una og nú, tíu árum síðar, varð kór­ónu­far­ald­ur­inn til þess að afmæl­is­veisl­unni var aflýst. Í bæði áður­nefnd skipti hafði fjölda fólks verið boðið til veislu.

Til stóð að veislan vegna átt­ræð­is­af­mælis Mar­grétar Þór­hildar yrði sér­lega veg­leg. Ekki síst vegna þess, ef marka má orð drottn­ingar sjálfrar, að lík­lega hefði þetta orðið síð­asti stóri afmæl­is­fagn­aður hennar. En kór­ónu­far­ald­ur­inn kom í veg fyrir þetta allt saman. 12. mars, dag­inn eftir að Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti að ákveðið hefði verið að loka Danmörku, barst til­kynn­ing frá Amali­en­borg. Þar sagði ein­fald­lega að þeim fjöl­mörgu við­burðum sem fyr­ir­hug­aðir hefðu verið vegna afmæl­is­ins, og spannað allt sum­arið og fram á haust, væri hér með aflýst. Þeir fjöl­mörgu Danir sem höfðu hlakkað til að geta glaðst með þjóð­höfð­ingj­anum höfðu skiln­ing á þess­ari ákvörðun, þótt hún ylli von­brigðum. Víða um land hafði und­ir­bún­ingur vegna fyr­ir­hug­aðrar heim­sóknar drottn­ingar staðið um margra mán­aða skeið en far­ald­ur­inn gerði þann und­ir­bún­ing að engu.

17. mars flutti drottn­ingin útvarps- og sjón­varps­ávarp til þjóð­ar­innar. Að þjóð­höfð­ing­inn ávarpi þjóð­ina, fyrir utan hið hefð­bundna ára­móta­ávarp, er mjög sjald­gæft. Svo sjald­gæft að það gerð­ist síð­ast 5. maí 1945 (befri­el­ses­dagen) þegar Þjóð­verjar, sem höfðu her­setið Danmörku, lýstu yfir upp­gjöf sinni. Í ávarp­inu, sem var stutt, sagði drottn­ingin að allir yrðu að sýna ábyrgð og fara að fyr­ir­mælum stjórn­valda, annað væri ábyrgð­ar­leysi.

Veggteppin

Á tíma­mótum í lífi danska þjóð­höfð­ingj­ans hafa jafnan borist góðar gjafir. Bæði svo­kall­aðar „prí­vat“ gjafir og gjafir til hirð­ar­innar. Í valda­tíð Mar­grétar Þór­hildar ber lík­lega hæst gjöf­ina á fimm­tugs­af­mæli hennar árið 1990. Þar höfðu fjöl­mörg fyr­ir­tæki og stofn­anir tekið höndum saman og fengið einn þekktasta lista­mann Dana, Bjørn Nørgaard til að gera upp­drætti að 17 stórum gobelin vegg­teppum sem prýða skyldu veggi Ridd­ara­sal­ar­ins Í Krist­jáns­borg­ar­höll­inni í Kaup­manna­höfn. Það tók lista­mann­inn tólf ár að gera upp­drætt­ina en teppin voru ofin á tveimur þekkt­ustu vef­stofum Frakk­lands, Manufactures des Gobelins og Manufacture de Beauvais. Þótt gef­endur verks­ins hefðu talið sig hafa tím­ann fyrir sér varð­andi gjöf­ina höfðu þeir ekki áttað sig á hve tíma­frekt verkið reynd­ist. Eins og áður sagði tók það lista­mann­inn tólf ár að gera upp­drætt­ina, vefn­að­ar­vinnan tók ell­efu ár en sam­tals unnu 60 vef­arar við gerð tepp­anna. Verkinu lauk ekki fyrr en árið 2000 og 12. apríl það ár (þegar drottn­ingin var rétt að verða sex­tug) voru teppin afhjúpuð og drottn­ingin ánafn­aði þau dönsku þjóð­inni. Vegg­teppin, sem eru sam­tals um það bil 300 fer­metrar þykja miklar ger­semar, en á þeim er sögð saga Dan­merkur síð­ast­liðin eitt þús­und ár.

Ástæður þess að vegg­teppin urðu fyrir val­inu var sú að árið 1926, þegar verið var að leggja síð­ustu hönd á gerð Ridd­ara­sal­ar­ins, var tóma­hljóð í danska rík­is­kass­anum og engir pen­ingar til veggskreyt­inga. Þá var brugðið á það ráð að taka vegg­teppi úr Rósen­borg­ar­höll­inni í Kaup­manna­höfn og hengja þau upp tíma­bundið, eins og það var orðað, í nýju höll­inni Krist­jáns­borg. Þessu „tíma­bundna“ ástandi lauk árið 2010.

Gullstólarnir

Vorið 2007 mætti þing­mað­ur­inn Svend Auken gömlum manni sem var að rog­ast með gylltan borð­stofustól niður tröpp­urnar á Krist­jáns­borg­ar­höll­inni. „Hvert ert þú að fara með þennan stól?“ spurði þing­mað­ur­inn. Gamli mað­ur­inn svar­aði „á bálið“. Þessi gamli maður var hinn 84 ára gamli Ejnar Pedersen, einn þekkt­asti hús­gagna­smiður og fram­leið­andi Dan­merkur. Stóllinn sem hann hélt á var einn hinna svo­nefndu gull­stóla hirð­ar­innar. Gull­stól­arnir eru veislu­stólar hirð­ar­innar, veik­byggðir gull­brons­aðir pinna­stólar.

Upphaf gull­stól­anna hjá hirð­inni má rekja til loka nítj­ándu aldar. Þá voru keyptir sex stólar, mál­aðir með gull­bronsi. Árið 1929 voru keyptir 1.012 gull­brons­aðir stólar, 212 var komið fyrir á Amali­en­borg og 800 í Krist­jáns­borg­ar­höll. Flestir gætu kannski ímyndað sér að 1.012 stólar myndu duga, jafn­vel í fjöl­menn­ustu boðum. En það var aldeilis ekki svo, árið 1994 voru keyptir 710 nýir stólar til við­bótar þeim sem fyrir voru. Veislu­stól­arnir orðnir 1722 tals­ins. Fyrir utan Amali­en­borg og Krist­jáns­borg eru stól­arnir enn­fremur í höll­inni á Fredens­borg.

Eins og áður sagði eru gull­stól­arnir svo­nefndu veik­byggðir pinna­stólar, fremur litlir. Það sem verra er, þeir þykja óþægi­legir „ótta­leg hænsna­prik“ sagði danskur þing­maður ein­hverju sinni í við­tali.

Hugmynd húsgagnasmiðsins

Árið 2007 voru 13 ár í átt­ræð­is­af­mæli Mar­grétar Þór­hildar. Ejnar Pedersen, gamli mublu­smið­ur­inn sem Svend Auken þing­maður mætti á tröppum Krist­jáns­borgar þá um vorið hafði lengi látið „hænsna­prikin“ fara í taug­arnar á sér. Þegar hann var að rog­ast með stól­inn áður­nefnda niður hall­ar­tröpp­urnar hafði hann fengið hug­mynd. Hún var sú að hanna og smíða nýja veislu­stóla fyrir Margréti Þórhildi. Ejnar Pedersen var, ásamt bróður sínum Lars Peder Pedersen, stofn­andi og eig­andi eins þekktasta hús­gagna­verk­stæðis Dan­merkur, PP Møbler. Fyr­ir­tækið var stofnað árið 1953, það hefur frá upp­hafi verið fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki og á verk­stæð­inu í Allerød hafa mörg af þekkt­ustu hús­gögnum þekktra danskra hönn­uða verið fram­leidd í ára­tugi. Til að hanna nýjan stól fyrir drottn­ing­una fékk Ejnar Pedersen til liðs við sig þekktan hús­gagna­hönnuð, Søren Ulrik Petersen og í sam­vinnu þeirra varð til nýr stóll. Þeir kynntu sér hvaða hug­myndir Margrét Þór­hildur hefði í þessum efnum. Drottn­ingin gerði þrjár kröfur varð­andi stól­inn ef til þess kæmi að hann yrði einn góðan veð­ur­dag veislu­stóll í höll­inni: hann yrði úr dönskum viði, smíð­aður í Danmörku af dönskum smiðum og hönn­unin dönsk.

Eins og áður var nefnt eru gull­stólar hirð­ar­innar veik­byggðir og þegar verið er að und­ir­búa veislu hefur þótt nauð­syn­legt að yfir­fara þá stóla sem nota skal til að þeir detti ekki í sundur þegar tignir gestir setj­ast.

Langur undirbúningstími

Að smíða og full­klára 400 vand­aða stóla er ekki hrist fram úr erminni. Það vissi Ejnar Pedersen vel. Vandaðir stólar kosta líka sitt og Ejnar Pedersen ræddi þau mál við Friðrik krón­prins og hof­mar­skálk­inn á Amali­en­borg. Þeir voru sam­mála um leita leiða til að fjár­magna kaupin, án þess að pyngja drottn­ingar kæmi þar við sögu. Yrði gjöf í til­efni tíma­mót­anna. Nið­ur­staða þre­menn­ing­ana var að leita til nokk­urra danskra stór­fyr­ir­tækja. Ejnar Pedersen sagði krón­prins­inum og hof­mar­skálknum að hann sjálfur gæti ekki, af aug­ljósum ástæðum, tekið að sér að tala við hugs­an­lega gef­endur. Þre­menn­ing­arnir urðu sam­mála um að krón­prins­inn skyldi ræða við drottn­ing­una og leita álits hennar varð­andi kaupin. Nið­ur­staðan varð að starfs­fólk hall­ar­innar leit­aði til sex fyr­ir­tækja og kann­aði hvort þau myndu vilja heiðra drottn­ing­una með því að punga út fyrir stól­unum. Nokkrir danskir fjöl­miðlar full­yrða að drottn­ingin hafi sjálf haft sam­band við tvö þess­ara fyr­ir­tækja. Fyr­ir­tækin, þar á meðal LEGO, Hempel, og Carlsberg, tóku beiðn­inni vel og ákveðið var að hvert fyr­ir­tæki legði fram eina milljón króna í þessu skyni. Þessi ákvörðun lá fyrir snemma árs 2018. PP Møbler gaf alla hönn­unar- og und­ir­bún­ings­vinn­una, en þar hafði sonur stofn­and­ans tekið við stjórn­inni af öldruðum föður sínum.

Afhentir í febrúar

Frá upp­hafi var miðað við að nýju stól­arnir yrðu til­búnir þegar Margrét Þór­hildur byði til veislu á átt­ræð­is­af­mæl­inu. Um miðjan febr­úar voru stól­arnir form­lega afhentir Margréti Þórhildi. Full­trúar gef­end­anna voru við­staddir og þar var líka Ejnar Pedersen ásamt nokkrum starfs­mönnum PP Møbler. Allir voru sam­mála um að stól­arnir væru ein­stak­lega vel heppn­aðir: fal­legir, traustir og þægi­legir.

Efnið er kirsju­berja­tré, lit­ur­inn grá­hvítur og setan fléttuð úr dimmrauðum borða. Ejnar Pedersen sagði blaða­mönnum sem við­staddir voru afhend­ingu stól­anna að hann hlakk­aði ákaf­lega til að fylgj­ast með útsend­ingu sjón­varps­ins frá veisl­unni og sjá hvernig stól­arnir tækju sig út. Það átti hins­vegar ekki fyrir honum að liggja.

Veislunni aflýst og meistarinn dó

Eins og áður var getið aflýsti drottn­ingin öllum veislu­höldum vegna átt­ræð­is­af­mæl­is­ins. Ejnar Pedersen sá því fram á að bið yrði á hann fengi að sjá stól­ana í sjón­varp­inu. Það kæmi önnur veisla, þótt síðar yrði. Það er örugg­lega rétt en þá situr Ejnar Pedersen ekki við sjón­varpið því hann lést 31. mars. Kór­ónu­veiran lagði hann að velli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

danadrottning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár