Þegar drottningin ræskti sig

Að ræskja sig hefur sjaldn­ast annan til­gang en að hreinsa kverka­skít. Þegar Margrét Þór­hildur Dana­drottn­ing ræskti sig á fundi með for­sæt­is­ráð­herra Dana árið 1993 var til­gang­ur­inn þó annar og hafði afdrifa­ríkar afleið­ingar í dönskum stjórn­málum.

Margrét Þórhildur Danadrottning.
Margrét Þór­hildur Dana­drottn­ing. Mynd: EPA

Eins og flestum er lík­lega kunn­ugt átti Margrét Þór­hildur Dana­drottn­ing merk­is­af­mæli sl. fimmtu­dag, 16. apríl. Varð átt­ræð. Öll hátíða­höld sem ráð­gerð höfðu verið víða í Danmörku, af þessu til­efni, voru blásin af vegna kór­ónu­veirunnar sem nú herjar á heims­byggð­ina. Sjón­varps­stöðv­arnar, DR og TV2 voru báðar með fjöl­breytta dag­skrá bróð­ur­part­inn úr afmæl­is­deg­inum þar sem rifjað var upp fjöl­margt úr ævi drottn­ing­ar­innar og fjöl­skyld­unnar á Amali­en­borg, í máli og myndum. Þar er af nógu að taka enda hefur drottn­ingin og fjöl­skylda hennar verið vin­sælt umfjöll­un­ar­efni fjöl­miðla um ára­tuga­skeið. 

Þótt margir lýstu von­brigðum með að við­burðir vegna tíma­mót­anna féllu niður nefndu ýmsir sem rætt var við í blöðum og ljós­vaka­miðlum að það gæf­ist brátt annað tæki­færi til að sam­gleðj­ast drottn­ing­unni. 15. jan­úar árið 2022 verða nefni­lega liðin fimm­tíu ár síðan Margrét Þór­hildur varð þjóð­höfð­ingi Dan­merkur. Sérstök laga­breyt­ing sem gerð var árið 1953 heim­il­aði að hún yrði þjóð­höfð­ingi að föður hennar, Friðrik IX, gengnum. Hefði sú breyt­ing ekki verið lög­fest hefði Knútur, yngri bróðir Friðriks föður Mar­grétar Þór­hildar, tekið við krún­unni.

Breytt hlutverk þjóðhöfðingjans

Margrét Þór­hildur var tæp­lega 32 ára þegar faðir hennar lést. Hún var að miklu leyti óskrifað blað þótt danska þjóðin þekkti auð­vitað vel til hennar. Hún hafði fimm árum fyrr gifst Frakk­anum Henrik, sem eftir gift­ing­una fékk tit­il­inn prins. Þau eign­uð­ust tvo syni, krón­prins­inn Friðrik, fæddan 1968, og ári síðar Jóakim.

Í tíð Friðriks IX (1899 – 1972) föður Mar­grétar Þór­hildar, breytt­ist hlut­verk þjóð­höfð­ingj­ans mikið. Afskipti kon­ungs af stjórn­málum urðu langtum minni en áður hafði tíðkast, stjórn rík­is­ins var ekki lengur í hans höndum. Danskir sagn­fræð­ingar hafa gjarna orðað það svo að þjóð­höfð­ing­inn væri eins konar örygg­is­vent­ill en jafn­framt sam­ein­ing­ar­tákn þjóð­ar­innar, hvað sem póli­tík­inni liði.

[adspot]Friðrik IX var vel lið­inn af þegnum sínum. Hann hafði alla tíð mik­inn áhuga á sjó­mennsku, gegndi her­þjón­ustu í flot­anum og þar eign­að­ist hann vini til lífs­tíðar. Þótti alla tíð alþýð­legur og gerði ekki manna­mun. Keðjureykti, og bölv­aði af minnsta til­efni „svo manni þótti nóg um“ sagði drottn­ingin í við­tali í danska sjón­varp­inu, DR, fyrir nokkrum árum.

Ingiríður drottn­ing (1910 – 2000) móðir Mar­grétar Þór­hildar naut mik­illar virð­ingar og vin­sælda meðal Dana. Það kom í hennar hlut að breyta mörgum alda­gömlum siðum hirð­ar­innar og færa þá til nútíma­legra horfs. Ingiríður var dóttir Gústafs IV Adolfs Svía­kon­ungs (1882 – 1973) og fyrri eig­in­konu hans Mar­grétar af Connaught (1882 – 1920) og þekkti því vel til hirð­lífs­ins.

Vikulegir fundir með forsætisráðherra

Þótt Margrét Þór­hildur hafi ekki bein afskipti af stjórn­málum hefur hún alla tíð fylgst vel með. Einu sinni í viku kemur for­sæt­is­ráð­herr­ann á fund hennar á Amali­en­borg þar sem „farið er yfir málin“ eins og sumir þeirra níu sem gegnt hafa emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra í tíð Mar­grétar Þór­hildar hafa kom­ist að orði. Hvað fram fer á þessum fundum er „tveggja tal“ sagði Mette Frederik­sen nýlega í við­tali. Þegar kosn­ingar nálg­ast leitar for­sæt­is­ráð­herra sam­þykkis þjóð­höfð­ingj­ans varð­andi þing­rof og kjör­dag. Að kosn­ingum loknum ræða for­menn flokka, sem fengið hafa full­trúa kjörna, við drottn­ing­una (kallað dronn­inger­unde) um hverjum skuli falin stjórn­ar­myndun. Þetta er svipað fyr­ir­komu­lag og hér á Íslandi.

Í Danmörku er kjör­tíma­bilið fjögur ár, en sú staða getur komið upp að stjórnin „springur“ og þá getur for­sæt­is­ráð­herra óskað eftir því, við drottn­ingu, að þing verði rofið og boðað til kosn­inga. Svo getur það gerst að for­sæt­is­ráð­herra gangi á fund drottn­ingar og biðj­ist lausnar en leggi jafn­framt til að ekki verði boðað til kosn­inga.

Tamílamálið

Einn mesti skandall (skandale) danskrar stjórn­mála­sögu, að minnsta kosti á síð­ari tímum, er hið svo­kall­aða Tamíla­mál.

Árið 1986 komu um það bil 3 þús­und Tamílar til Dan­merkur frá Sri Lanka. Þeir voru að flýja átök í heima­land­inu. Lögum um útlend­inga hafði tveimur árum fyrr verið breytt í Danmörku og í kjöl­farið fjölg­aði flótta­fólki sem leit­aði til Dan­merkur. Á þessum tíma var við völd í Danmörku fjög­urra flokka stjórn (Firkløver­reger­ingen) undir for­ystu Poul Schlüter for­manns Íhalds­flokks­ins.

Miklar umræður urðu á þessum tíma í danska þing­inu, Fol­ket­inget, um hverjir teld­ust flótta­menn og hverjir ekki. Sumarið 1987 und­ir­rit­uðu stríð­andi öfl á Sri Lanka frið­ar­sam­komu­lag (hið fyrsta af nokkrum) og í kjöl­far þess hóf danski dóms­mála­ráð­herr­ann, Erik Ninn-Hansen, und­ir­bún­ing þess að senda Tamílana til baka til Sri Lanka. Sem lið í þess­ari áætlun kom dóms­mála­ráðu­neytið í veg fyrir að Tamíl­arnir fengju dval­ar­leyfi og afgreiddu þess vegna ekki beiðnir þeirra um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu. Þing­kosn­ingar fóru fram í sept­em­ber 1987 en stjórn Schlüter sat áfram, og Erik Ninn-Hansen var áfram dóms­mála­ráð­herra. Ekki hafði enn verið tekin ákvörðun um heim­send­ingu Tamíl­anna og þess vegna áttu þeir rétt á, og ítrek­uðu, fyrri beiðni um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu.

Dóms­mála­ráð­herr­ann Erik Ninn-Hansen skip­aði emb­ætt­is­mönnum sínum, með leynd, að stöðva afgreiðslu þess­arar beiðni.

Schlüter reynir að bjarga í horn

Eftir að Danska flótta­manna­hjálpin hafði spurst fyrir, og eftir kvart­anir frá nokkrum úr hópi Tamíl­anna, ákvað Hans Gammeltoft-Hansen, nýskip­aður Umboðs­maður þings­ins, að skoða málið. Það var árið 1988. Í árs­byrjun 1989 hillti undir að skýrsla umboðs­manns yrði til­búin og for­sæt­is­ráð­herr­ann hafði grun um að hún yrði ekki neinn skemmti­lestur fyrir dóms­mála­ráða­herr­ann Erik Ninn-Hansen. 10. jan­úar 1989 til­kynnti Poul Schlüter að Erik Ninn-Hansen myndi hætta sem dóms­mála­ráð­herra en yrði for­seti þings­ins. Í lok mars kom svo skýrsla umboðs­manns, og hún var áfell­is­dómur yfir Erik Ninn-Hansen.

Miklar umræður urðu í þing­inu og fjöl­miðlar fjöll­uðum vart um annað dögum saman. 25. apríl 1989 flutti Poul Schlüter ræðu í þing­inu, þar sem hann sagði að dóms­mála­ráð­herr­ann og rík­is­stjórnin bæru ábyrgð á Tamíla­mál­inu, málið væri upp­lýst og reyndi að full­vissa þing­menn um að í Tamíla­mál­inu hefði engu verið leynt. Ræða þessi hefur æ síðan verið kölluð Gólf­tepp­a­ræðan vegna orða­vals for­sæt­is­ráð­herr­ans „der er ikke fejet noget ind under gul­vtæppet“. Þingmenn sættu sig ekki við þessi mála­lok og í októ­ber 1989 sam­þykkti þingið að svipta Erik Ninn-Hansen for­seta­stólnum í þing­inu.

Nokkru síðar var sýndur í sjón­varp­inu þáttur um emb­ætt­is­færslur Erik Ninn-Hansen og í kjöl­farið sam­þykkti meiri­hluti þing­manna að fram skyldi fara rann­sókn á störfum hans. Þess má geta að þing­kosn­ingar fóru fram í Danmörku 1988 og líka árið 1990. Stjórn Poul Schlüter hélt velli í báðum þessum kosn­ingum en eftir kosn­ing­arnar 1990 hafði fækkað mjög í stjórn­ar­flokkalið­inu og auk Íhalds­flokks­ins átti ein­ungis Venstre flokk­ur­inn aðild að stjórn­inni sem naut stuðn­ings flokka af hægri vængnum.

Hornslet rannsóknin og afsögn Poul Schlüter

Hópur undir stjórn hæsta­rétt­ar­dóm­ar­ans Mogens Hornslet hóf rann­sókn­ar­vinnu sína 10. júlí 1990 og skýrslan var birt 14. jan­úar 1993. Í henni var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, Erik Ninn-Hansen, hefði vís­vit­andi brotið lög. H.P.Clausen eft­ir­maður hans í dóms­mála­ráðu­neyt­inu hefði reynt að villa um fyrir umboðs­manni og rann­sókn­ar­nefnd­inni og fleiri þing­menn voru enn­fremur gagn­rýndir í skýrsl­unni.

[adspot]Poul Schlüter for­sæt­is­ráð­herra hefði að minnsta kosti einu sinni sagt nefnd­inni ósatt og mikið ósam­ræmi í svörum hans. Hann til­kynnti síðar þennan sama dag, 14. Janúar 1993 að hann myndi biðj­ast lausnar fyrir sig og ráðu­neyti sitt. Þá höfðu þeir flokkar sem stutt höfðu stjórn­ina lýst yfir að sá stuðn­ingur væri ekki lengur fyrir hendi.

Drottningin hlustaði en ræskti sig svo

Fylgi Íhalds­flokks­ins hafði dalað nokkuð í kosn­ing­unum 1988 og 1990 og Poul Schlüter ótt­að­ist áfram­hald­andi fylg­is­hrun. Hann taldi að staða flokks­ins yrði sterk­ari ef hann yrði áfram í stjórn, fram að kosn­ingum, en þær yrði að halda eigi síðar en 1994. Þegar Poul Schlüter gekk á fund Mar­grétar Þór­hildar og til­kynnti um afsögn stjórn­ar­innar kom hann jafn­framt með upp­á­stungu um fram­haldið. Hún var sú að fela Uffe Ellemann-Jensen for­manni Venstre og utan­rík­is­ráð­herra í frá­far­andi stjórn að taka við stjórn­ar­taumunum en auk Venstre myndi Íhalds­flokk­ur­inn eiga aðild að stjórn­inni. Poul Schlüter hafði kannski gert sér í hug­ar­lund að flokk­arnir sem snúið höfðu baki við stjórn­inni myndu styðja hana fram að kosn­ingum ári síðar. Á það reyndi þó ekki því þegar hann hafði sleppt orð­inu varð and­ar­taks þögn en síðan ræskti Margrét Þór­hildur sig, án þess þó að segja neitt. Poul Schlüter, sem þekkti drottn­ingu vel, skynj­aði að henni hafði ekki hugn­ast upp­á­stunga hans um stóla­skiptin og sú hug­mynd var þar með úr sög­unni. Hún fól stjórn­inni hins­vegar að sitja áfram, sem starfs­stjórn.

Sós­í­alde­mókratar, undir for­ystu Poul Nyrup Rasmus­sen voru lang stærsti flokk­ur­inn á þingi, hafði 69 þing­menn, Íhalds­flokk­ur­inn átti 30 þing­menn og Venstre 29.

Nið­ur­staðan varð sú að við tók fjög­urra flokka stjórn undir stjórn Poul Nyrup Rasmus­sen, sú stjórn sat fram að kosn­ingum 1994. Stjórn undir for­ystu Poul Nyrup Rasmus­sen var við völd fram til árs­ins 2001.

Eftirmál

11. júní 1993 ákvað danska þingið að mál Erik Ninn-Hansen færi fyrir Landsdóm (Rigs­retten) sem dæmir í málum þar sem ráð­herrar eiga í hlut. Dómur féll tveimur árum síðar, Erik Ninn-Hansen hlaut fjög­urra ára fang­els­is­dóm, skil­orðs­bund­inn. Málið varð til að eyði­leggja póli­tískan frama nokk­urra þing­manna, þar á meðal H. P. Clausen sem margir höfðu talið að ætti fram­tíð­ina fyrir sér í stjórn­málum.

Poul Schlüter sagði af sér for­mennsku í Íhalds­flokknum árið 1993 og hætti þing­mennsku árið 1994. Hann var kjör­inn til setu á Evr­ópu­þing­inu sama ár og sat þar til árs­ins 1999 en hætti þá beinum afskiptum af stjórn­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár