Maðurinn sem vildi verða kóngur

Henrik prins, eig­in­maður Dana­drottn­ingar, hefur aldrei sætt sig við stöðu sína sem maki þjóð­höfð­ingja. Fréttir af ummælum hans hafa komið á óvart en engar þó eins og sú nýjasta: hann vill ekki hvíla við hlið eig­in­kon­unnar þegar hér­vist­inni lýkur.

Henrik drottningarmaður. Og eiginkona hans Margrét Þórhildur.
Henrik drottn­ing­ar­maður. Og eig­in­kona hans Margrét Þór­hildur. Mynd: EPA

Stór­frétt lið­innar viku í dönskum fjöl­miðlum, og reyndar víða um heim, var sú ákvörðun Henriks prins að þegar kallið kæmi myndi hann ekki hvíla við hlið Mar­grétar Þór­hildar. Drottn­ingin verður, eins og kon­ung­lega hefðin býður, jarð­sett í Hró­arskeldu, en þvert á það sem gengið hafði verið að sem vísu verður eig­in­mað­ur­inn Henrik ekki við hlið hennar. Hvar hann verður lagður til hinstu hvílu hefur ekki verið til­kynnt, að öðru leyti en því að það verði í Danmörku.

Kínverski spámaðurinn

Henrik (Henri) prins sem er 83 ára, fæddur í Frakk­landi 11. júní 1934, ólst upp í Frakk­landi og franska Indokína (Laos, Kambodíu og Víetnam). For­eldrar hans voru efna­fólk, með fyr­ir­tækja­rekstur í Frakk­landi og Asíu. Henrik lauk her­skyldu, eins og lög gerðu ráð fyrir, og síðar magister­prófi í frönskum bók­menntum og asískum tungu­málum.

Árið 1958 fór Henrik, sem þá var í Asíu, til kín­versks spá­manns ásamt vin­konu sinni. Spá­mað­ur­inn til­kynnti Henrik að hann myndi ekki gift­ast þess­ari vin­konu sinni en hann myndi gift­ast konu sem byggi langt í burtu. „Líf þitt verður spenn­andi en fullt af hindr­unum og ýmsum erf­ið­leikum. Þú verður þekktur og ríkur og þú eyðir megn­inu af ævi þinni í landi umkringdu vatni.“

Nýtt hlutverk

Árið 1962 varð Henrik starfs­maður Asíu­deildar franska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og var árið eftir sendur til starfa við sendi­ráð Frakk­lands í London. Þar kynnt­ist hann, í kvöld­verð­ar­boði árið 1964, danska rík­is­arf­anum Margréti Þórhildi. Þau hitt­ust aftur skömmu síðar og 10. júní árið 1967 voru þau gefin saman í Hólmsins kirkju í Kaup­manna­höfn. Henrik var nú nefndur prins en hlut­verk hans sem eig­in­manns rík­is­arfa og síðar þjóð­höfð­ingja (1972) var ann­ars algjör­lega ómótað. „Það var engin upp­skrift, engin hefð, autt blað“ sagði Henrik síðar í við­tali. Hann sagði einnig í við­tali, skömmu eftir gift­ing­una að sér væri hlut­verk sitt sem maka rík­is­arfans vel ljóst og hann sætti sig fylli­lega við að „ganga alltaf tveimur skrefum á eftir drottn­ing­unni.“ Það átti eftir að breyt­ast.

Skyldur þjóð­höfð­ingj­ans og makans eru margar og marg­vís­legar en þau hjónin hafa líka áhuga­mál sem þau hafa lagt rækt við. Margrét Þór­hildur hefur löngum feng­ist við mynd­list, bæði hefð­bundin mál­verk og hún hefur margoft gert leik­myndir og bún­inga­teikn­ingar, meðal ann­ars fyrir Kon­ung­lega leik­húsið og Tívolí.

Henrik hefur haft mörg járn í eld­inum. Hann sótti árum saman tíma í þrí­vídd­ar­mynd­mennt í Kon­ung­lega lista­há­skól­anum og eftir hann liggur fjöld­inn allur af brons­verkum. Hann hefur sent frá sér átta ljóða­bækur, sumar með eigin mynd­skreyt­ingum. Hann er lið­tækur píanó­leik­ari og hefur samið nokkur tón­verk. Henrik er mik­ill áhuga­maður um mat og mat­ar­gerð, hefur skrifað amk. þrjár mat­reiðslu­bækur og svo var hann um ára­bil vín­bóndi í Frakk­landi.

Af hverju ekki kóngur?

Þótt svo að Henrik hafi í upp­hafi sagt að hann sætti sig full­kom­lega við hlut­verk sitt sem eig­in­maður drottn­ingar fór hann fyrir mörgum árum, fyrst 1992, að láta í ljós óánægju með eitt og annað varð­andi þetta hlut­skipti sem hann hafði tek­ist á hendur. Henrik hefur margoft í við­tölum lýst undrun og óánægju með að hann skuli ekki vera titl­aður kóngur. „Hvers konar jafn­rétti er það að eig­in­konur kónga séu drottn­ingar en eig­in­maður dönsku drottn­ing­ar­innar, þjóð­höfð­ingj­ans, verður að láta sér lynda að vera prins?“ Þótt mörgum þyki þetta kannski ekki skipta öllu máli hefur þetta angrað Henrik og það erg­elsi hefur auk­ist með árunum. Af hverju þetta er svona, prins en ekki kóngur, er ein­fald­lega hin evr­ópska hefð og Henrik að þessu leyti eins settur og Filippus eig­in­maður Elísa­betar Eng­lands­drottn­ingar. Margrét Þór­hildur hefur ætíð neitað að ræða þessi titla­mál við fjöl­miðla.

Drottningarmaður

Eftir að barna­börn Mar­grétar Þór­hildar og Henriks komu til sög­unnar (eru nú átta) var orðið mikið prinsa- og prinsessu­kraðak á Amali­en­borg. Árið 2005 var því ákveðið að Henrik skyldi hér eftir bera tit­il­inn „prins­gemal“, drottn­ing­ar­maður. Drottn­ing­ar­mað­ur­inn tjáði sig ekki oft um þessa breyt­ingu en ítrek­aði þó, að minnsta kosti einu sinni, í við­tali óánægju sína með að fá ekki að heita kóngur.

Afmælið og eftirlaunin

16. apríl 2015 varð Margrét Þór­hildur 75 ára. Af því til­efni var efnt til mik­illar og fjöl­mennrar veislu í höll­inni. Þar var margt kónga­fólk ásamt öðrum gestum sam­an­komið. Einn, sem flestir hefðu talið sjálf­sagt að tæki þátt í gleð­inni, var hins­vegar fjar­ver­andi: Henrik drottn­ing­ar­maður. Fjarvera hans vakti mikla athygli en skýr­ingin sögð sú að hann væri las­inn. Tveimur dögum síðar sást hins vegar til hans í Feneyjum þar sem hann virt­ist hinn hress­asti. Danskir fjöl­miðlar veltu vöngum yfir þess­ari fjar­veru drottn­ing­ar­manns­ins og lögðu flestir út á sama veg: Henrik væri í lang­tíma­fýlu sem hann léti æ oftar í ljós með sífellt skýr­ari tákn­rænum hætti.

Í ára­móta­ávarpi sínu til dönsku þjóð­ar­innar 31. des­em­ber 2015 til­kynnti Margrét Þór­hildur að Henrik myndi frá og með árs­byrjun 2016 fara á eft­ir­laun (drossle ned) og eft­ir­leiðis taka þátt í færri við­burðum, opin­berum mót­tökum, veislum o.þ.h. Flestir virt­ust, að sögn dönsku fjöl­miðl­anna, hafa skiln­ing á þessu, mað­ur­inn jú kom­inn vel yfir átt­rætt.

Aftur prins, gullbrúðkaup

Í apríl 2016 til­kynnti Henrik að nú vildi hann ekki lengur bera tit­il­inn prins­gemal. Í sam­ræmi við þær breyt­ingar sem orðið hefðu (eft­ir­launin) væri eðli­legt að hann yrði aftur prins Henrik.

Um svipað leyti til­kynnti full­trúi drottn­ingar að gull­brúð­kaup Mar­grétar Þór­hildar og Henriks yrði fagnað „prí­vat“, ein­ungis með fjöl­skyld­unni. Sú fjöl­skyldu­veisla fór fram 10. júní sl. nákvæm­lega hálfri öld eftir að drottn­ingin og prins­inn ját­uð­ust hvort öðru í Hólmsins kirkju.

Danir í senn undrandi og reiðir

Eins og getið var í upp­hafi þessa pistils hefur Henrik prins oft komið þjóð­inni á óvart með ummælum sínum. Aldrei þó eins og sl. fimmtu­dag þegar hann til­kynnti að hann vildi ekki liggja við hlið drottn­ingar í Hró­arskeldu eftir and­lát. Ástæðan sem hann gaf upp er ein­föld: „maður sem ekki stendur jafn­fætis konu sinni verð­skuldar ekki að hvíla við hlið hennar í gröf­inni.“

Við­brögðin hafa ekki látið á sér standa. Yfir­gnæf­andi meiri­hluta Dana er ósáttur við ákvörðun prins­ins, margir segja hana lýsa eig­in­girni og til­lits­leysi manns sem hugsi fyrst og síð­ast um sjálfan sig. Þótt margir Danir seg­ist skilja óánægju Henriks með að fá ekki að heita kóngur hafi hann núna farið langt yfir strikið. Svikið bæði eig­in­kon­una og þjóð­ina. Tals­maður drottn­ingar sagði að hún virti ákvörðun bónda síns en væri síður en svo sátt.

Hvar?

Síðan hin óvænta til­kynn­ing prins­ins birt­ist sl. fimmtu­dag hafa fjöl­miðl­arnir velt því fyrir sér hvar hann vilji hvíla þegar jarð­vist hans lýkur. Góður vinur Henriks sagði frá því í við­tali að prins­inn hefði spurt sig hvort hann vildi vita hvar hann hygð­ist láta jarða sig. Vinurinn svar­aði því til að það vildi hann ekki „ég sagði Henrik að ég gæti þá misst það út úr mér í hugs­un­ar­leysi og best væri fyrir mig að vita það ekki. En ég spái að það verði við dóm­kirkj­una í Hró­arskeldu, í nágrenni við leg­stað drottn­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár