Offjölgun í dönsku konungsfjölskyldunni

Það er lík­lega flestum kunn­ugt að Margrét Þór­hildur Dana­drottn­ing varð 75 ára sl. fimmtu­dag. Tug­þús­undir hylltu þjóð­höfð­ingj­ann í til­efni dags­ins en fjöl­skylda drottn­ingar sem var með henni á svölum Amal­íu­borgar er stærri en dæmi eru um í sögu Dan­merkur, ef frá er tal­inn Kristján IV, sem átti 25 börn. Hann er jafn­framt sá kon­ungur Dana sem lengst hefur ríkt, rétt tæp 60 ár.

Hátíða­höldin í til­efni afmælis Mar­grétar Þór­hildar stóðu, með hléum, í rúma viku. Löng hefð er fyrir því hér í Danmörku að fagna afmælum þjóð­höfð­ingj­ans og margir útlend­ingar sagðir undr­andi á því að götur og torg höf­uð­borg­ar­innar skuli fyll­ast af fólki, og fánum, á stóraf­mælum. Kannski ræður hefðin tals­verðu um þetta en lík­lega ekki síður hitt að Margrét Þór­hildur er mjög vin­sæl meðal þegna sinna. Vin­sæld­irnar virð­ast ekki fara dvín­andi með árunum en 43 ár og þrír mán­uðir eru síðan hún varð drottn­ing. Margrét á tvær yngri systur, Bene­dikte og Anne- Marie.

Margrét Þór­hildur og Henrik drottn­ing­ar­maður eiga tvo syni, Friðrik krón­prins og Jóakim. Friðrik og krón­prinsessan Mary eiga fjögur börn, elstur er Christian (Kristján), þá Isabelle og svo tví­burarnir Vincent og Jos­ephine. Jóakim á einnig fjögur börn, dreng og stúlku með eig­in­kon­unni Marie prinsessu og tvo syni með fyrr­ver­andi eig­in­konu, Alexöndru greifynju. Barna­börn drottn­ingar eru því átta tals­ins. Það var þess vegna fremur þröngt á svöl­unum á Amal­íu­borg (Schacks Palæ) þegar fjöl­skyldan, að und­an­skildum Henrik drottn­ing­ar­manni sem lá í inflú­ensu, stóð og veif­aði til mann­fjöld­ans.

Krúnuerfingjahópurinn er fjölmennur


Danska krúnu­erf­ingja­röðin fer eftir til­teknum reglum. Fremstur í þeim flokki er Friðrik, eldri sonur Mar­grétar Þór­hildar, þá koma börn hans fjögur í ald­urs­röð, númer sex er Jóakim prins og svo börn hans fjögur. Þar fyrir aftan kemur Bene­dikte, yngri systir Mar­grétar drottn­ingar, og aft­ast í þess­ari röð er Elisa­beth, faðir hennar var Knud, föð­ur­bróðir Mar­grétar. Anne-Marie systir drottn­ingar (yngst þeirra systra) afsal­aði sér til­kalli til krún­unnar þegar hún gift­ist Kon­stantin Grikk­lands­kon­ungi árið 1964. Krúnu­erf­ingj­arnir eru því sam­tals tólf.

Hirðin kostar sitt


Allir sem eiga til­kall til krún­unnar (og reyndar fleiri ætt­ingjar drottn­ingar) eiga lögum sam­kvæmt rétt á launum, apanage. Þær greiðslur nema árlega rúmum eitt hund­rað millj­ónum danskra króna , tæpum tveimur millj­örðum íslenskum. Þar með er þó ekki öll sagan sögð, ekki einu sinni hálf. Tvö dag­blöð hér í Danmörku tóku saman það sem þau kalla "ekki allan heild­ar­kostnað" vegna hirð­ar­innar. Samkvæmt útreikn­ingum þeirra nema þau útgjöld rúm­lega hálfum millj­arði danskra króna árlega (um tíu millj­örðum íslenskum) sem er drjúgur skild­ingur. Blöðin segja að þarna sé þó ekki allt talið, það vanti til dæmis upp­lýs­ingar um kostnað vegna lög­gæslu, sem sé umtals­verður. Ekki sé heldur tal­inn með allur sá kostn­aður sem lendir á hernum vegna gæslu og eft­ir­lits við ýmsar opin­berar athafnir. Sömu­leiðis séu við­gerðir og við­hald á hús­eignum kon­ungs­fjöl­skyld­unnar ekki nema að litlu leyti inni í þessum útreikn­ingum. Og fleira er tínt til.

Hvað á allt þetta kóngafólk að gera?


Barna­börn Mar­grétar drottn­ingar eru átta tals­ins, skemmti­legir og frísk­legir krakkar sem iðu­lega sjást í sjón­varpi og blöðum við ýmis konar athafnir sem tengj­ast hirð­inni. Elstur í þessum hópi er Nicolai sonur Jóakims, hann er reyndar eng­inn krakki, verður 16 ára eftir nokkra mán­uði. Blaða­maður dag­blaðs­ins Politi­ken velti því fyrir sér í langri grein í blað­inu hvað allt þetta unga og efni­lega fólk eigi að taka sér fyrir hendur þegar skóla­göngu lýkur og full­orð­ins­árin taka við. Svona stór hópur geti ekki allur verið eins­konar vara­lið þjóð­höfð­ingj­ans, þótt það heiti svo í orði kveðnu.

Verður að skipta máli


Í áður­nefndri grein segir blaða­mað­ur­inn að þótt unga kónga­fólkið fari kannski ekki í áhuga­sviðs­próf til að ákveða hvað það eigi að taka sér fyrir hendur sé mik­il­vægt að það finni sér starfs­vett­vang. Það sé hrein­lega ekki þörf fyrir allan þennan fjölda til að vera við­staddur alls kyns athafnir, hverju nafni sem þær nefn­ast. Og, það sé ekki ein­ungis brýnt fyrir ung­mennin sjálf að finna sér starfs­vett­vang, það sé líka mik­il­vægt ef kon­ungs­fjöl­skyldan eigi áfram að skipa þann sess í hugum og hjörtum Dana sem hún geri í dag. Blaða­mað­ur­inn full­yrðir að mörgum þyki nóg um, en sætti sig þó við, allan þann kostnað og umstang sem fylgi hirð­inni. Það muni breyt­ast ef kon­ungs­fjöl­skyldan stækki bara og stækki og verði á fram­færi þjóð­ar­innar án sýni­legs til­gangs. Ef fjöl­skyld­unni á Amal­íu­borg mis­tak­ist eða hætti að ganga í takt við þjóð­ina eigi hún ekki fram­tíð­ina fyrir sér.

Stærsti leikhópur landsins


Sagn­fræð­ingur við Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla segir í við­tali við danskt dag­blað að danska kon­ungs­fjöl­skyldan sé stærsti leik­hópur lands­ins. Þessi leik­hópur sýni þó hvorki Hamlet né Makbeð heldur eins­konar til­bú­inn raun­veru­leika. Almenn­ingur fylgist með kon­ungs­fjöl­skyld­unni í sjón­varpi og útvarpi, dag­blöðin flytji reglu­lega af henni fréttir og hér séu viku­blöð sem fjalli ekki um neitt annað en kónga­fólkið og kjól­ana, eins og hann kemst að orði. "Gallinn við þennan leik­hóp"segir sagn­fræð­ing­ur­inn "er að þetta er alltaf sama sýn­ingin, bara nýir bún­ingar".

Danir vilja viðhalda hefðinni


Hvað sem öllu tali um leik­sýn­ingar og gagns­leysi líður er það stað­reynd að mik­ill meiri­hluti Dana er mjög hlynntur kon­ungs­fjöl­skyld­unni. Kannanir sýna að sú afstaða hefur lítið breyst í marga ára­tugi. Margir velta fyrir sér hvort þetta kunni að breyt­ast þegar að því kemur að Mar­grétar Þór­hildar nýtur ekki lengur við. Þótt krón­prins­inn þyki hafa margt til síns ágætis er það margra álit að hann jafn­ist á engan hátt við móð­ur­ina. Aðrir segja það ókomið í ljós hvernig hann muni spjara sig, þótt hann sé öðru­vísi en móðir hans og fari aðrar leiðir í mörgu sé það ekki endi­lega slæmt eða nei­kvætt. Hann hefur ekki sama áhug­ann á menn­ingu og listum og hún en hins­vegar mik­inn áhuga á íþróttum og úti­veru. Það muni líka reyna mikið á krón­prinsess­una Mary sem fær, þegar þar að kemur, tit­il­inn drottn­ing. Hún þarf því ekki að ergja sig yfir því að fá ekki kon­ung­legan titil, öfugt við Henrik drottn­ing­ar­mann sem er enn, annað slagið að minnsta kosti, í hálf­gerðri fýlu yfir að bera ekki kon­ungs­titil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár