Drottningarmaður hættur í rauðvíninu!

Líklega hafa margir Danir sperrt eyrun þegar þeir heyrðu frétta­þul danska útvarps­ins, DR, til­kynna þessi tíð­indi í yfir­liti hádeg­is­frétt­anna fyrir nokkrum dögum. Þessi upp­hafs­orð reynd­ust líka vill­andi þegar betur var að gáð. Drottn­ing­ar­mað­ur­inn er sem sé ekki geng­inn í bind­indi heldur búinn að selja vín­gerð­ar­fyr­ir­tæki sitt í Frakk­landi, þar sem er reyndar líka fram­leitt hvítvín.

Henrik drottn­ing­ar­maður var mikið til umfjöll­unar í dönskum fjöl­miðlum í kringum 75 ára afmæli Mar­grétar Þór­hildar. Ástæðan var sú að hann var ekki við­staddur neinar sam­komur eða frétta­manna­fundi vegna tíma­mót­anna ef frá eru talin hátíða­höld í Árósum sem fram fóru viku fyrir afmælið. Á frétta­manna­fundi sem drottn­ingin hélt nokkrum dögum fyrir afmælið greindi hún frá því að eig­in­maður sinn lægi í inflú­ensu. Hann myndi ekki vera með í öllu afmælistil­stand­inu en hefði þó valið rétt­ina sem snæddir yrðu í stóru afmæl­is­veisl­unum tveim, sömu­leiðis drykk­ina.

Við þessu var ekk­ert að gera, allir geta jú fengið inflú­ensu og hún spyr hvorki um stétt né stöðu og enn síður um afmæl­is­daga.

[caption id="attachment_27345" align="alignnone" width="806"] Margrét Þór­hildur Dana­drottn­ing, ásamt fjöl­skyldu sinni á 75 ára afmæl­is­degi drottn­ingar, og Henrik hvergi sjá­an­legur. Mynd: EPA[/caption]

Undrafljótur að ná sér


Hálfum sól­ar­hring eftir að síð­ari afmæl­is­veislu drottn­ingar (fjöl­skyldu­veisl­unni) lauk var Henrik hins vegar kom­inn á kreik og alla leið til Ham­borgar. Margir Danir sögð­ust hafa séð hann þar og karl­inn hefði virst hinn spræk­asti. Sama dag og þessi tíð­indi bár­ust frétt­ist svo af honum í Feneyjum og virt­ist að sögn ekki las­legur þar sem hann sprang­aði um Mark­ús­ar­torgið við vængja­slátt dúfna­sk­ar­ans sem þar gerir sig heima­kom­inn.

Frétt­irnar af hinum undra­skjóta bata urðu til þess að ýmsir fóru að gera því skóna að drottn­ing­ar­mað­ur­inn hefði hreint ekk­ert verið las­inn, hann hefði ein­fald­lega ákveðið að skrópa í afmæl­inu. Öðrum fannst það af og frá að slíkt ætti sér nokkra stoð, hann hefði alltaf staðið þétt við hlið Mar­grétar Þór­hildar og ekki komið til hugar að hlaup­ast undan merkjum á stóraf­mæl­inu. Engin nið­ur­staða fékkst þó úr þessum vanga­veltum og eins og búast mátti við heyrð­ist ekk­ert frá höll­inni.

Hættur í víninu


Varla var búið að vaska upp leir­tauið og hnífa­pörin eftir afmæl­is­veislur drottn­ingar þegar Henrik bóndi hennar var aftur kom­inn á for­síður dönsku miðl­anna. Að þessu sinni voru það hvorki mat­ar­boð né ferð á Mark­ús­ar­torgið sem um var rætt heldur það að drottn­ing­ar­mað­ur­inn kunn­gjörði að hann væri ekki lengur vín­bóndi í Frakk­landi.

Hann hefði selt vín­rækt­ina sem hefði verið sitt stóra hugð­ar­efni í 40 ár. Hann væri kom­inn á níræð­is­aldur (fæddur 1934) og þar sem ljóst væri að synir þeirra Mar­grétar kærðu sig ekki um að taka við búrekstr­inum væri þetta rétt ákvörðun. Gott fólk tæki við þessum búskap og vín­við­ur­inn væri í góðum höndum.

Chateau de Cayx


Vín­ræktin, sem drottn­ing­ar­mað­ur­inn kallar svo, fer fram á búgarð­inum Chateau de Cayx í Cahors í Suður-Frakk­landi. Þau Margrét Þór­hildur og Henrik keyptu búgarð­inn, aðal­bygg­ingin er lítil höll, fyrir um það bil 40 árum. Þá var þar fram­leitt vín sem þótti í slöku með­al­lagi og Danir, sem voru lengi að sætta sig við þennan franska sendi­ráðs­starfs­mann sem rík­is­arf­inn hafði kynnst í mat­ar­boði, gerðu óspart grín að rauð­vín­inu frá Chateau de Cayx.

[caption id="attachment_27347" align="alignnone" width="764"] Henrik drottn­ing­ar­maður við sveita­höll­ina í Chateau de Cayx, með tveimur barna­börnum sínum. Mynd: EPA[/caption]

Sendi­ráðs­starfs­mað­ur­inn fyrr­ver­andi kærði sig koll­óttan um þetta tal og hægt og rólega steig vínið frá búgarði Henriks (drottn­ingin kom aldrei nálægt búskapnum) á ein­kunna­kvarða vín­dóm­ara og nú þykir vínið frá Chateau de Cayx í hópi þess besta frá Cahors hér­að­inu. „Í vín­gerð er þol­in­mæði dyggð,“ sagði Henrik á frétta­manna­fundi fyrir nokkru í til­efni útkomu bókar um búgarð­inn og starf­sem­ina þar og bætti við að 40 ár væru ekki langur tími í því sam­hengi. Hinir nýju eig­endur hafa leyfi til að nota merk­ing­arnar á flösk­unum áfram óbreyttar og Henrik kvaðst mjög ánægður með það, og stoltur.

Eiga sjálfa höllina áfram


Þótt vín­fram­leiðslan sé ekki lengur í höndum Henriks hafa þau hjónin ekki sagt skilið við Chateu de Cayx. Þau eiga höll­ina áfram og hyggj­ast nota hana sem sum­ar­dval­ar­stað fyrir fjöl­skyld­una eins og þau hafa lengi gert. Höllin sem var í mik­illi nið­ur­níðslu þegar þau hjónin keyptu búgarð­inn hefur verið gerð upp og er í „topp­standi“ eins og Henrik orðað það þegar hann sagði frá ákvörð­un­inni um aðrir tækju við vín­rækt­inni.

Hann sagði að nýju eig­end­urnir hefðu spurt sig hvort hann myndi verða þeim innan handar og gefa góð ráð. hann hefði svarað því til að það skyldi hann glaður gera. Gefa góð ráð, án þess að senda reikn­ing fyrir ráð­gjöf­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár