Mál Sigurðar Inga vegna rasískra ummæla fellt niður fimm mánuðum eftir að það barst

Hluti for­sætis­nefndar, þar á meðal einn stjórn­ar­þing­maður, gagn­rýnir harð­lega afgreiðslu nefnd­ar­innar á erindi sem henni barst vegna rasískra ummæla inn­við­a­ráð­herra. Máls­með­ferðin fari gegn til­gangi og mark­miðum siða­reglna þing­manna.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra. Mynd: Eyþór Árnason

Full­trúar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks í for­sætis­nefnd tóku fyrr í þessum mán­uði ákvörðun um að vísa frá erindi sem nefnd­inni barst um meint brot Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, á siða­reglum fyrir alþing­is­menn. Erindið snéri að meintum rasískum ummælum sem Sigurður Ingi á að hafa við­haft um Vig­­dísi Häsler fram­­kvæmda­­stjóra Bænda­­sam­tak­anna á Bún­að­ar­þingi í vor þegar hann vís­aði til hennar sem „þeirrar svört­u“.

Tveir vara­for­setar nefnd­ar­innar, Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir úr Flokki fólks­ins og Jódís Skúla­dóttir úr stjórn­ar­flokknum Vinstri grænum, lögðu fram bókun vegna þess­arar ákvörð­unar ásamt áheyrn­ar­full­trú­unum Andrési Inga Jónssyni úr Pírötum og Þor­björgu Sigríði Gunn­laugs­dóttur úr Viðreisn.

Í bók­un­inni er ákvörðun full­trúa Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks um að vísa mál­inu frá mót­mælt og sagt að engin efni hafi verið til að draga afgreiðslu máls­ins í fimm mán­uði, en erindið barst 8. apríl síð­ast­lið­inn. Töf á afgreiðslu mála sem þess­ara hafi áhrif á trú­verð­ug­leika máls­með­ferðar sem og nið­ur­stöðu. „Hinn eðli­legi far­vegur máls­ins hefði verið að fá ráð­gef­andi siða­nefnd sem fyrst til að leggja mat á málið, og hvort um brot var að ræða og gefa álit sitt að því loknu, frekar en að vísa erind­inu nú frá á grund­velli tak­mark­aðra upp­lýs­inga. Fer þessi máls­með­ferð gegn þeim til­gangi og mark­miðum siða­reglna fyrir alþing­is­menn að efla til­trú og traust almenn­ings á Alþingi.“

Ekki tilefni til frekari umfjöllunar

For­sætis­nefnd Alþingis barst, líkt og áður sagði, erindi um meint brot Sigurðar Inga á siða­reglum fyrir alþing­is­menn þann 8. apríl síð­ast­lið­inn. Þann 7. júní var Sigurði Inga gef­inn kostur á að koma á fram­færi sjón­ar­miðum sínum við for­sætis­nefnd og upp­lýs­ingum um málið. Hann upp­lýsti nefnd­ina um það í tölvu­pósti sex dögum síðar að hann ætl­aði ekki að bregð­ast frekar við.

[adspot]Nið­ur­staða for­sætis­nefndar, sem opin­beruð var í dag en var ákveðin á fundi 9. sept­em­ber, var sú að „erindið gæfi ekki til­efni til frek­ari athug­unar“. Það var gert einkum með vísan til þess að í siða­reglum fyrir alþing­is­menn sé til­tekið að for­sætis­nefnd beri að leggja mat á hvort regl­urnar eigi að gilda um þá þing­menn sem séu líka ráð­herrar, líkt og Sigurður Ingi er, þar sem um störf þeirra gildi sér­stakar siða­reglur ráð­herra.

Í nið­ur­stöð­unni segir að for­sætis­nefnd hafi ekki „borist aðrar upp­lýs­ingar um mála­vexti en komið hafa fram í fjöl­miðlum. Kemur þar fram að SIJ hafi beðist afsök­unar á ummælum sínum án þess þó að vilja lýsa þeim nánar eða end­ur­taka. Þá hefur sá aðili sem ummælin vörð­uðu lýst því yfir að hún hafi átt fund með SIJ þar sem hann hafi borið fram „ein­læga afsök­un­ar­beiðni“ sem hún hafi með­tekið.“

Því verði ekki séð, að mati for­sætis­nefndar, að ágrein­ingur sé um þessa mála­vexti. Í nið­ur­stöð­unni er einnig vísað til álits ráð­gef­andi siða­nefndar í máli Ágústs Ólafs Ágústs­sonar, þáver­andi þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, sem varð­aði kyn­ferð­is­lega áreitni gagn­vart þáver­andi blaða­manni Kjarnans. Í því áliti var það talið skipta máli að konan sem hátt­erni Ágúst bitn­aði á hafi ekki leitað til for­sætis­nefndar vegna meints brots á siða­reglum, heldur ein­hver annar. Sama ætti við í máli Sigurðar Inga. Þol­and­inn í mál­inu hafi ekki verið sá sem sendi inn erindið. Því sé það mat for­sætis­nefndar að erindið gefi ekki til­efni til frek­ari umfjöll­unar og að vísa beri því frá.

Undir nið­ur­stöð­una skrifar Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis.

„Afar særandi ummæli“

Umrætt atvik átti sér stað síð­asta dag mars­mán­að­ar. Aðdrag­andi þess var sá að Vig­dís og starfs­menn Bænda­sam­tak­anna vildu fá for­yst­u­­fólk úr Fram­­sókn­­ar­­flokknum til að taka mynd með sér þar sem hún „plank­aði“ á meðan að það hélt á henni. Sam­kvæmt umfjöllun fjöl­miðla, sem byggja á sam­tölum við fólk sem var við­statt, á Sig­­urður Ingi að vísað til Vig­­dísar sem „hinnar svört­u“. ­Sig­urður Ingi hefur aldrei stað­festa sjálfur hvað hann sagði nákvæm­lega.

Umfjöllun um upp­­á­kom­una birt­ist fyrst í Orð­inu á göt­unni á Eyj­unni, slúð­­ur­vett­vangi sem heyrir undir DV þar sem skrifað er nafn­­laust, á sunn­u­dag klukkan 15:30. Klukku­­tíma og þremur mín­útum síðar birt­ist frétt á vef DV þar sem Ing­veldur Sæmunds­dótt­ir, póli­­tískur aðstoð­­ar­­maður Sig­­urðar Inga til margra ára, þvertók fyrir að yfir­­­maður hennar hefði við­haft rasísk ummæli. „Þetta er algjört bull,“ sagði Ing­veld­­ur. Hún hefði verið edrú og staðið við hlið Sig­­urðar Inga þegar til stóð að taka umrædda mynd með Vig­­dísi. Ing­veldur sagði að Sig­­urði Inga hefði ekki lit­ist vel á hug­­mynd­ina og sagt að hann vildi ekki halda á Sjálf­­stæð­is­­manni.

Þessi við­brögð reynd­ust ekki eld­­ast vel þegar Vig­­dís gaf sjálf út yfir­­lýs­ingu á Facebook þar sem hún sagði að „afar sær­andi ummæli“ hefðu verið látin falla og að hún hefði heyrt þau, sem og fleira starfs­­­­­fólk Bænda­­­­­sam­tak­anna. Hún sagði að hún hefði aldrei talið að hún þyrfti að setj­­­­­­­ast niður og skrifa yfir­­­­lýs­ingu af þessu tagi. „Að­­­stoð­­­ar­­­maður ráð­herr­ans var ekki við hlið hans þegar ummælin voru látin falla, eins og hún hefur haldið fram en myndir úr þess­­­ari mynda­­­töku sýna það án alls vafa. Það er sær­andi þegar reynt er að gera lítið úr upp­­­lifun minni og þegar bein­línis rangar skýr­ingar eru not­aðar við það. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­­­dómar eru gríð­­­ar­­­legt sam­­­fé­lags­­mein og grass­era á öllum stigum sam­­­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­l­inga og gjörðir niður í lit eða kyn.“

[adspot]Í kjöl­farið baðst Sig­urður Ingi afsök­unar á „óvið­ur­kvæmi­legum orð­um“ í garð Vig­dísar í stöðu­upp­færslu á Facebook. Nokkrum dögum síðar hitt­ust þau á fundi þar sem hún með­tók afsök­un­ar­beiðni hans. Vig­dís hefur nú eytt stöðu­upp­færsl­unni þar sem hún fjall­aði um „afar sær­andi ummæli“ Sig­urðar Inga.

„Það hefur tekið þungt á mig, mína fjöl­­skyldu og mína vini“

Sig­urði Inga tókst að forð­ast það að svara fyrir málið að mestu næstu vik­urnar með því að forð­ast að veita við­töl við fjöl­miðla. Í lok apríl var þó komið að inn­við­a­ráð­herra að mæta í óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir á Alþingi og þar spurði Arn­­dís Anna Krist­ín­­ar­dóttir Gunn­­ar­s­dótt­ir, þing­­maður Pírata, Sig­urð Inga út í ummæl­in.

[links]Sig­­urður Ingi svar­aði að það væri þung­­bært og þung­­bær­­ara en hann bjóst við, eftir að hafa verið svona lengi í stjórn­­­mál­um, að upp­­lifa það dag eftir dag í þing­inu í til­­­tek­inn tíma af til­­­teknum stjórn­­­mála­­mönnum og af ein­­stökum fjöl­miðlum að vera bor­inn þungum sökum „um eitt­hvað allt ann­að“.

„Ég hef velt því fyrir mér hvort það sé eitt­hvað í mínu fari per­­són­u­­lega eða eitt­hvað sem stjórn­­­mála­­mað­­ur­inn Sig­­urður Ingi hefur staðið fyrir sem bendir til að þetta sé svona. Eða er það bara vegna þess að það eru sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ingar eftir hálfan mánuð og Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn er far­inn að taka fylgi af öðrum flokk­um? Er það virki­­lega svo? Ég á ekki auð­velt með að grín­­ast með þetta mál. Það hefur tekið þungt á mig, mína fjöl­­skyldu og mína vini. Ég hef beðist afsök­un­­ar. Sú afsök­un­­ar­beiðni hefur verið með­­­tek­in. Við vorum sam­­mála um að ræða það ekki frekar og ég mun virða þá ósk.“

Þann 11. apríl var greint frá því að for­sætis­nefnd Alþingis hefði borist kæra gagn­vart Sig­urði Inga fyrir brot á siða­reglum Alþingis vegna ummæl­anna um Vig­dísi. Ekki liggur fyrir hvern lagði fram kæruna.

Í byrjun maí fór Sigurður Ingi í við­tal við Dag­mál á mbl.is og sagði að hann hefði ekki íhugað stöðu sína vegna ummæl­anna sem hann lét falla um Vigdísi. Málið væri að baki og hann vildi ekki ræða það meir.

Í við­tal­inu sagði hann að ummælin hefðu fallið í gleð­skap og hvað þar gerð­ist hafi hann og Vig­dís rætt saman um. „Ég hef beðist bæði opin­ber­lega afsök­unar sem og við Vig­dísi. Við erum sam­mála um að þetta mál sé að baki og við ætlum ekki að ræða það frekar og ég mun ekki gera það.“ Þegar Sig­urður Ingi var spurður út í fjöl­miðlaum­fjöllun um orðin sem hann lét falla svar­aði hann: „Það er allt annað að taka umræðu um hluti sem að skipta máli í sam­fé­lag­inu heldur en um ein­hvern slíkan ein­stakan við­burð og reyna að gera meira úr honum en var. Ég hef lagt áherslu á það og þetta mál er að baki hvað mig varð­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðareglur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár