Innviðaráðherra kærður fyrir brot á siðareglum Alþingis

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur verið kærður fyrir brot á siða­reglum Alþingis vegna ummæla sem hann við­hafði. Ekki liggur fyrir hver kærði.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

For­sætis­nefnd Alþingis hefur borist kæra gagn­vart Sigurði Inga Jóhanns­syni for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra fyrir brot á siða­reglum Alþingis. Þetta stað­festir Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis við frétta­stofu RÚV í dag.

Fram kemur hjá RÚV að gert sé ráð fyrir að erindið verði tekið fyrir á næsta fundi for­sætis­nefndar. Ekki liggi fyrir hver lagði inn kæruna.

Forsagan er sú að Sigurður Ingi við­hafði rasísk ummæli um Vig­dísi Häsler fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna í þar síð­ustu viku á Bún­að­ar­þingi þegar hann vís­aði til hennar sem „þeirrar svört­u“.

Sig­urður Ingi hefur ekki viljað end­ur­taka hvað hann sagði nákvæm­lega og ekki útskýrt af hverju aðstoð­ar­maður hans, Ing­veldur Sæmunds­dóttir, sagði að hún hefði orðið vitni að atburð­inum og að það væri „al­gjört bull“ að ummælin hefðu fall­ið. Síðar kom í ljós að hún var ekki nálægt þegar Sigurður Ingi lét ummælin falla.

Vissi hvað hún heyrði

Vig­dís sendi frá sér yfir­lýs­ingu á mánu­dag­inn í síð­ustu viku þar sem hún sagð­ist vita hvað hún heyrði og hvað var sagt. „Ég hef aldrei látið húð­lit, kyn­þátt, kyn­­ferði eða annað skil­­greina mig. Ég hef alltaf talið að verk mín og gjörðir töl­uðu fyrir sig sjálf, en núna tel ég mig knúna til að tjá mig um það sem gerð­is­t. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­­dómar eru gríð­­ar­­legt sam­­fé­lags­­mein og grass­era á öllum stigum sam­­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­l­inga og gjörðir niður í lit eða kyn,“ sagði hún í yfir­lýs­ing­unni.

Þá fund­uðu þau Sigurður Ingi síð­ast­lið­inn föstu­dag og birti Vigdís færslu á Facebook í fram­hald­inu þar sem hún sagði að þau hefðu átt „hrein­skilið, heið­ar­legt og opið sam­tal“.

Sagðist Vig­dís hafa með­tekið af­sök­un­ar­beiðni Sig­urðar Inga og að hún hefði upp­lifað hana sem ein­læga. Mál­inu væri lokið af henn­ar hálfu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðareglur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár