Ráðherrar og #samstarf eigi ekki samleið

Ráðherra fékk þau skila­boð í áliti frá skrif­stofu lög­gjaf­ar­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í síð­ustu viku að ekki væri mælt með því að hún tæki þátt í við­burðum sem væru kynntir sem aug­lýs­ing eða sam­starf við einka­að­ila í fram­tíð­inni.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra.
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra fékk þau svör frá skrif­stofu lög­gjaf­ar­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í síð­ustu viku að ekki væri hægt að mæla með því að hún tæki þátt í við­burðum sem væru kynntir sem aug­lýs­ing eða sam­starf við einka­að­ila í fram­tíð­inni, nema sú þát­taka leiddi af og sam­rýmd­ist emb­ætt­is­skyldum hennar.

Þetta kemur fram í áliti skrif­stofu lög­gjaf­ar­mála, sem ráð­herra bað sjálf um að legði mat á það hvort þátt­taka hennar í sam­sæti, sem merkt var sem sam­starf við Icelandair Hotels á sam­fé­lags­miðlum, sam­rýmd­ist siða­reglum ráð­herra. Kjarninn fékk álitið afhent í dag og hægt er að nálg­ast það hér.[links]

Samsætið, sem var á Hilton Nordica-hót­el­inu í Reykja­vík, var tölu­vert til umfjöll­unar í fjöl­miðlum í síð­ustu viku. Helst var það af þeim sökum að það sýndi fram á að tveggja metra reglan svo­kall­aða hafði verið sett óskýrt fram í skila­boðum yfir­valda til almenn­ings, en einnig vakti það upp spurn­ingar að vin­konur ráð­herra höfðu þegið fríð­indi gegn því að taka þátt í sam­starfi með Icelandair Hotels á Instagram.

Eins og fram hefur komið sagði skrif­stofa lög­gjaf­ar­mála, í áliti sínu, að miðað við þær for­sendur sem hún hefði gengið út frá mætti ætla að ekki væri um brot á siða­reglum ráð­herra að ræða.

Ráðherra segist hafa greitt fyrir allt sitt

Við gerð álits­ins var meðal ann­ars gengið út frá því að ráð­herra hafi greitt sjálf upp­sett verð fyrir þá þjón­ustu sem hún naut, þrátt fyrir að hluti vin­kvenna hennar hafi notið fjár­hags­lega góðs af sam­starf­inu, við­skipta­samn­ingi, sem Eva Laufey Kjaran sjón­varps­kona og áhrifa­valdur var með við Icelandair Hotels.

[adspot]

Einnig sagði í álit­inu að ráð­herr­ann gæti ekki borið ábyrgð á því þótt aðrir gestir í sam­sæt­inu hefðu þegið fríð­indi og að það skipti máli að myndir sem birt­ust af ráð­herra á sam­fé­lags­miðlum hefðu ekki verið merktar sem aug­lýs­ing eða sam­starf, heldur ein­ungis aðrar myndir frá sama degi.

Kjarninn sendi Þórdísi Kolbrúnu fyr­ir­spurn og óskaði eftir því að fá að sjá kvitt­anir fyrir því sem ráð­herr­ann greiddi. Í svari sem aðstoð­ar­maður hennar sendi Kjarn­anum sagði: „Varð­andi ósk um afhend­ingu reikn­inga/kvitt­ana þá er það afstaða ráð­herra að ekki sé hægt að ætl­ast til þess að per­sónu­leg útgjöld séu opin­ber gögn; þau verða því ekki afhent.“

Baðst afsökunar

Þórdís Kolbrún birti sjálf brot úr áliti skrif­stofu lög­gjaf­ar­mála á Facebook í síð­ustu viku, þar sem hún einnig baðst afsök­unar á því að hafa ekki hagað gerðum sínum þannig að þær væru hafnar yfir vafa. „Ég gerði það ekki, biðst afsök­unar á því og mun læra af því,“ skrif­aði ráð­herra.

Skrif­stofa lög­gjaf­ar­mála segir í áliti sínu að af siða­reglum ráð­herra verði ráðið að ráð­herra beri að forð­ast allt athæfi sem gefur til kynna að ráð­herra not­færi sér stöðu sína í eig­in­hags­muna­skyni eins og frekast er unnt.

„Getur for­sæt­is­ráðu­neytið því ekki mælt með því að ráð­herra taki þátt í við­burðum sem eru að ein­hverju marki kynntir sem aug­lýs­ing eða sam­starf við einka­að­ila í fram­tíð­inni, nema um sé að ræða þátt­töku sem leiðir af og sam­rým­ist emb­ætt­is­skyldum ráð­herra,“ segir í álit­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðareglur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár