„Kannski hefði mátt passa betur upp á tveggja metra regluna“

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag sagði Þórólfur Guðnason að hann héldi að Þórdís Kolbrún hefði ekki brotið sótt­varna­lög. Hann sagði það á ábyrgð hvers og eins að halda tveggja metra fjar­lægð frá næsta manni.

„Ég held að hún hafi ekki verið að brjóta lögin eins og þau segja nákvæm­lega fyrir um en vissu­lega hefði mátt kannski passa betur upp á tveggja metra regl­una þarna,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag um vin­konu­hitt­ing Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur, ferða­mála-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráð­herra, sem fjallað var um um helg­ina.

Þórólfur var spurður að því hvort að Þórdís Kolbrún hefði brotið tveggja metra reglu um helg­ina. Hann sagði síð­ustu aug­lýs­ingu ekki endi­lega snúa að fólki sem ekki deilir heim­ili heldur hafi þar verið að finna kröfur til rekstr­ar­að­ila, um að þeir geti boðið fólki upp á að við­halda tveggja metra fjar­lægð.

„Síðan er það nátt­úr­lega á ábyrgð hvers ein­stak­lings að halda þessa tveggja metra reglu eða ekki. Í þessu til­felli án þess að ég geti nokkuð fjallað meira um það þá sýnir þetta bara það að fólk verður að bera ábyrgð á sínum athöfnum,“ sagði Þórólfur og bætti við að reglan ætti kannski frekar við um ein­stak­linga sem maður þekkir engin deili á.

Langþráður frídagur

Um helg­ina gerði Þórdís Kolbrún sér daga­mun með vin­konum sínum. Frétta­blaðið sagði frá sam­veru vina­hóps­ins vegna þess að þar var tveggja metra reglan ekki í hávegum höfð. Í frétt Frétta­blaðs­ins segir að hluti þeirra mynda sem birt­ist af hópnum á sam­fé­lags­miðlum hafi nú verið eytt.

Þórdís Kolbrún brást við frétta­flutn­ingnum með stöðu­upp­færslu á Facebook í gær þar sem hún sagði frí­dag­inn hafa verið lang­þráðan. Hún hefði hlakkað mikið til dags­ins og hann hafi verið nær­andi. „En dag­ur­inn í dag síður og ein­fald­ara hefði verið að ákveða að vera ekki með þeim,“ sagði Þórdís meðal ann­ars í stöðu­upp­færslu sinni. Hún sagði einnig að umfjöll­unin hefði bein­línis verið röng, þær hafi ekki farið út á lífið eins og full­yrt var í frétt­inni.

Í hádeg­is­fréttum RÚV í dag sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að hegðun Þórdísar hefði verið óheppi­leg. „Ég held að ráð­herr­ann hafi svo sem svarað fyrir þetta að það hafi verið óheppi­legt að það væri ein­hver vafi á um það hvort að öllum reglum væri fylgt,“ sagði Bjarni í hádeg­is­fréttum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár