Þórdís ekki talin hafa brotið siðareglur en biðst afsökunar

Þátttaka Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur í vin­konu­hitt­ingi um liðna helgi var ekki talið brot á siða­reglum ráð­herra. Hún seg­ist hafa greitt upp­sett verð. Ráð­herrar eigi þó að haga gerðum sínum þannig að þær séu hafnar yfir vafa.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráð­herra, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að hún hafi greitt upp­sett verð fyrir mat, drykk og aðgang að heitum pottum í vin­konu­hitt­ingi sem hún tók þátt í um síð­ustu helgi. Ein úr hópnum, Eva Laufey Kjaran Her­manns­dóttir, er í við­skipta­sam­starfi við Hilton Nordica hót­elið og vegna þess bauðst hópnum frír aðgangur að heilsu­lind og gist­ing á hót­el­inu.

Þórdís segir að hún hafi ekki gist og gert hópnum „frá upp­hafi ljóst að ég myndi borga allan minn kostnað og gerði það. Ég bað ekki um nein sér­kjör, hvorki þarna né ann­ars staðar, og greiddi upp­sett verð fyrir allt.“

[adspot]Vegna fyr­ir­spurna sem henni hafi borist um þátt­töku sína í deg­inum hafi hún óskað eftir að skrif­stofa lög­gjaf­ar­mála í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu legði mat á hvort í þessu máli fælist brot á siða­reglum ráð­herra.

Í áliti hennar, sem Þórdís birtir hluta úr í stöðu­upp­færslu á Facebook, segir:„Eins og mál þetta er vaxið liggur ekk­ert fyrir sem bendir til þess að ráð­herra hafi þegið slíkar gjafir, boðs­ferðir eða afslætti frá Icelandair Hotels eða öðrum umrætt sinn. Ráðherra naut þannig hvorki per­sónu­legra fríð­inda í krafti emb­ættis síns né vegna umrædds sam­starfs. Þá getur ráð­herra ekki borið ábyrgð á því að aðrir gestir sam­sæt­is­ins hafi þegið slík fríð­indi gegn því að birta kynn­ing­ar­efni á sam­fé­lags­miðli. Loks skiptir hér máli að myndir af ráð­herra sjálfri voru ekki merktar sem aug­lýs­ing eða sam­starf, heldur er um að ræða aðrar myndir sem teknar voru sama dag. Miðað við þær for­sendur sem hér er gengið út frá má því ætla að ekki sé um brot á siða­reglum ráð­herra eða öðrum reglum að ræða.“

Þórdís segir að þrátt fyrir þessa nið­ur­stöðu vilji hún árétta að ráð­herrar eigi að haga gerðum sínum þannig að þær séu hafnar yfir vafa. „Ég gerði það ekki, biðst afsök­unar á því og mun læra af því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðareglur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár