Þöggunarmenningin svo rótgróin og djúpstæð „að við sjáum hana ekki einu sinni“

Þing­maður Pírata telur að tján­ing­ar­frelsið sé ekki virt í íslensku sam­fé­lagi. Dæmin sýni það.

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, gerði þögg­un­ar­menn­ingu, siða­reglur og tján­ing­ar­frelsi að umtals­efni á Alþingi í dag undir liðnum störf þings­ins.

„Ef þing­maður getur farið með almannafé og þarf að beita til þess sinni eigin dóm­greind þá segir það sig sjálft að þing­maður getur mis­notað það vald. Ef annar þing­maður sem er í stjórn­ar­and­stöðu kall­aði eftir rann­sókn á því hvernig stjórn­ar­þing­maður fer með almannafé þá er stjórn­ar­and­stöðu­þing­mað­ur­inn sekur um brot á siða­reglum Alþingis,“ sagði þing­mað­ur­inn í upp­hafi ræðu sinnar.

Forsaga máls­ins er sú að siða­nefnd Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu í maí 2019 að ummæli þáver­andi þing­flokks­for­manns Pírata, Þór­hildar Sunnu Ævars­dótt­ur, um Ásmund Friðriks­son, þing­mann Sjálf­stæðis­flokks­ins, sem hún lét falla í febr­úar 2018 í Silfrinu hefðu ekki verið í sam­ræmi við siða­reglur fyrir alþing­is­menn.

Benti Helgi Hrafn á að þetta væri staðan sem alþing­is­menn byggju við í dag. „Þegar við settum okkur siða­reglur var það í þeirri von að það myndi bæta störf okkar, ekki að skýla meiri hlut­anum fyrir aðhaldi minni hlut­ans. En það er staðan sem við búum við í dag.“

Blaðamaður talinn hafa brotið siðareglur fyrir það eitt að tjá sig

Þing­mað­ur­inn nefndi annað dæmi um „mis­heppn­aðar siða­reglur“ og vís­aði í nýlegan úrskurð siða­nefndar Rík­is­út­varps­ins frá 26. mars, í kæru­máli Samherja gegn Helga Seljan frétta­manni. Helgi Hrafn sagði í kald­hæðn­is­tón að frétta­mað­ur­inn hefði dirfst „að tjá skoð­anir sínar opin­ber­lega“.

„Það var kært af fyr­ir­tæki sem heitir Samherji og hefur orðið fyrir mik­illi umfjöllun frá téðum blaða­manni. Samherji kærir mjög marga starfs­menn Rík­is­út­varps­ins fyrir brot á siða­reglum og eftir stendur að tekið er undir það að Helgi Seljan, hæst­virtur blaða­maður, hafi brotið siða­reglur um að tjá sig á almanna­færi um sínar eigin póli­tísku skoð­anir. Ekki fyrir það að segja ósatt, ekki fyrir óvönduð vinnu­brögð í sínum frétta­flutn­ingi heldur fyrir það eitt að tjá sig,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Telur hann að þessi tvö dæmi séu ein­kenni þess að „við búum í þögg­un­ar­menn­ingu og höfum að mínu viti alltaf gert. Hún er svo rót­gróin og svo djúp­stæð að við sjáum hana ekki einu sinni, klöppum okkur jafn­vel á bakið fyrir að búa í sam­fé­lagi þar sem tján­ing­ar­frelsið sé svo mik­ils virt. Virðu­legi for­seti. Svo er ekki og það sanna dæmin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðareglur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár