Umfjallanir um liprunarbréf Jakobs Frímanns og „Karlmennskuspjallið“ ekki brot á siðareglum

Hvorki DV né 24.is brutu gegn siða­reglum Blaða­manna­fé­lags Íslands með umfjöll­unum sínum um Jakob Frímann Magn­ús­son ann­ars vegar og „Karl­mennsku­spjallið“ hins vegar.

Greint er frá sýkn­unum í tveimur aðskildum úrskurðum Blaða­manna­fé­lags­ins í málum sem voru til með­ferðar hjá nefnd­inni eftir kvart­anir. Úrskurð­irnir voru kveðnir upp um miðjan des­em­ber en birtir á heima­síðu Blaða­manna­fé­lags­ins fyrir helgi.

Í þeim fyrri kærði útgef­and­inn Huginn Þór Grét­ars­son vef­mið­il­inn 24.is vegna umfjöll­unar um Facebook-hóp­inn „Karl­mennsku­spjallið“, hóp þar sem „karl­menn ræða á niðr­andi hátt um konur, karl­femínista og þolendur kyn­fer­is­brota“, líkt og sagði í frétt 24.is. Samsett mynd af nokkrum með­limum hóps­ins, þar á meðal Hugin, birt­ist með frétt­inni og taldi hann mynd­birt­ing­una vera til­efn­is­lausa og sær­andi.

Ekki var vísað í Hugin í umræddri frétt en eftir að kæra hans barst til siða­nefndar BÍ birti mið­ill­inn frétt þess efnis þar sem segir jafn­framt að alltaf hafi staðið til að birta hin ýmsu ummæli eftir Hugin þar sem sé af nægu að taka.

Í úrskurði nefnd­ar­innar kemur fram að 24.is hafi ekki brugð­ist við kærunni þrátt fyrir ítrekun. Í frétt­inni sem 24.is birti eftir að kæran kom fram er hins vegar fjallað um málið auk þess sem birt eru ummæli eftir Hugin auk þess sem mið­ill­inn biðst afsök­unar á að ummælin skuli ekki hafa birst í „afhjúpum um Karl­mennsku­spjallið og harmar um leið ef það hefur valdið honum skaða.“

Siða­nefndin segir í úrskurði sínum að ljóst að Huginn hafi til­heyrt umræddum hópi um karl­mennsku­spjall og geti því ekki vik­ist undan því að vera tengdur hópnum í umfjöllun 24.is, jafn­vel þótt ekki séu þar til­færð ummæli hans.

Átti erindi við almenning

Aðkoma Jakobs Frímanns Magn­ús­sonar, þing­manns Flokks fólks­ins, að svoköll­uðu liprunar­bréfi er til umfjöll­unar í seinni úrskurð­inum. Jón Ósmann Arason kærir, fyrir hönd ólög­ráða sonar síns, umfjöllun DV um aðkomu Jakobs Frímanns að liprunar­bréfi til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins vegna ferða­lags son­ar­ins. Björn Þor­láks­son, rit­stjóri DV og Heimir Hann­es­son blaða­maður, eru kærðir en Erla Hlyns­dóttir, frétta­stjóri DV, sem skrif­aði yfir­lýs­ingu DV ásamt rit­stjóra vegna umfjöll­un­ar­innar, er ekki kærð.

Í úrskurði nefnd­ar­innar segir að fréttin hafi snú­ist um aðkomu Jakobs Frímanns að mál­inu en ekki kærendur sem hvergi voru nafn­greindir. Leiddi það meðal ann­ars til þess að utan­rík­is­ráðu­neytið aft­ur­kall­aði bréfið og baðst afsök­unar á vinnu­brögðum sínum. Siða­nefndin metur, að í ljósi þeirrar stjórn­sýslu­með­ferðar sem málið hlaut, hafi það átt erindi til almenn­ings og verið nægi­lega vandað til verka í fram­setn­ingu og úrvinnslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðareglur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár