Meðferð brota á siðareglum verði í samræmi „við réttlætisvitund fólksins í landinu“

Þingmenn úr öllum stjórn­ar­and­stöðu­flokkum gagn­rýna að mál inn­við­a­ráð­herra vegna rasískra ummæla hafi verið fellt niður hjá for­sætis­nefnd. Þing­maður Sam­fylk­ingar segir að koma verði upp fyr­ir­komu­lagi þar sem meint brot á siða­reglum fá fag­lega umfjöllun.

Sigurður Ingi Jóhansson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhans­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Vinnu­brögð Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks í máli inn­við­a­ráð­herra hjá for­sætis­nefnd vegna meintra brota ráð­herr­ans á siða­reglum fyrir alþing­is­menn, voru frá­leit að mati Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur, þing­manns Við­reisnar.

Þorbjörg vakti athygli á mál­inu við upp­haf þing­fundar í dag þar sem hún sagði Fram­sókn­ar­flokk og Sjálf­stæð­is­flokk hafa sýnt þing­inu og almenn­ingi að það skipti máli hver á hlut við afgreiðslu mála er varða brot á siða­reglum ráð­herra. Þingmenn flokk­anna tveggja í for­sætis­nefnd hafi komið í veg fyrir að málið fengi umfjöllun í siða­nefnd. „Með því hafa þeir valdið miklum skaða,“ sagði Þorbjörg.

Málinu vísað frá fimm mánuðum eftir að það barst

Greint var frá því fyrir helgi að full­trúar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks í for­sætis­nefnd tóku fyrr í þessum mán­uði ákvörðun um að vísa frá erindi sem nefnd­inni barst um meint brot Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, á siða­reglum fyrir alþing­is­menn. Fimm mán­uðir eru síðan erindið kom inn á borð nefnd­ar­innar.

[links]Erindið snéri að meintum rasískum ummælum sem Sig­urður Ingi á að hafa við­haft um Vig­­­dísi Häsler fram­­­kvæmda­­­stjóra Bænda­­­sam­tak­anna á Bún­­að­­ar­­þingi í vor þegar hann vís­aði til hennar sem „þeirrar svört­u“.

Þorbjörg sagði vinnu­brögðin í mál­inu hafa verið svo frá­leit að ekki hafi einu sinni verið ein­hugur innan rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um afgreiðsl­una. Hún hrós­aði Jódísi Skúla­dóttur, þing­manni Vinstri grænna, fyrir vinnu­brögð hennar í mál­inu. Jódís, sem er vara­for­seti nefnd­ar­innar, lagði fram bókun ásamt Ásthildi Lóu Þórs­dóttur, þing­manni Flokks fólks­ins og vara­for­seta í for­sætis­nefnd, vegna ákvörð­unar nefnd­ar­innar um að vísa frá erindi sem nefnd­inni barst um meint brot Sigurðar Inga.

[adspot]Í bók­un­inni er ákvörðun full­trúa Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks um að vísa mál­inu frá mót­mælt og sagt að engin efni hafi verið til að draga afgreiðslu máls­ins í fimm mán­uði, en erindið barst 8. apríl síð­ast­lið­inn. Töf á afgreiðslu mála sem þess­ara hafi áhrif á trú­verð­ug­leika máls­með­ferðar sem og nið­ur­stöðu. „Hinn eðli­legi far­vegur máls­ins hefði verið að fá ráð­gef­andi siða­nefnd sem fyrst til að leggja mat á mál­ið, og hvort um brot var að ræða og gefa álit sitt að því loknu, frekar en að vísa erind­inu nú frá á grund­velli tak­mark­aðra upp­lýs­inga. Fer þessi máls­með­ferð gegn þeim til­gangi og mark­miðum siða­reglna fyrir alþing­is­menn að efla til­trú og traust almenn­ings á Alþing­i.“

Þvældist fyrir frá upphafi að um ráðherra var að ræða

Þor­g­björg sagði að þar sem þetta er í fyrsta skipti sem mál sem varð­aði brot ráð­herra á siða­reglum fór fyrir for­sætis­nefnd þá blasti það við að um var að ræða ákveðin próf­stein fyrir Alþingi.

„Það skiptir máli að aðhald siða­reglna sé virkt og það skiptir máli að það gildi fyrir alla þing­menn, líka þá þing­menn sem eru ráð­herrar. Frá fyrsta fundi blasti við að það þvæld­ist fyrir að um ráð­herra var að ræða,“ sagði Þorbjörg.

Þingmenn allra stjórn­ar­and­stöðu­flokka tóku til máls í upp­hafi þing­fundar um fund­ar­stjórn og gerðu afgreiðslu for­sætis­nefndar á erindi rasískra ummæla Sigurðar Inga að umtals­efni.

For­sætis­nefnd Alþingis bar­st erindi um meint brot Sig­urðar Inga á siða­reglum fyrir alþing­is­menn þann 8. apríl síð­ast­lið­inn. Þann 7. júní var Sig­urði Inga gef­inn kostur á að koma á fram­færi sjón­ar­miðum sínum við for­sætis­nefnd og upp­lýs­ingum um mál­ið. Hann upp­lýsti nefnd­ina um það í tölvu­pósti sex dögum síðar að hann ætl­aði ekki að bregð­ast frekar við.

Siðareglubrot út af fyrir sig ef ráðherra neitar að svara

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, sagði málið ekki vera flókn­ara en svo að það væri sett í hend­urnar á ráð­gef­andi siða­nefnd „sem í raun spyr ráð­herra bara: Voru þetta ummælin? Já eða nei? Ef já, væri nið­ur­staðan vænt­an­lega sú að farið hefði verið á svig við siða­reglur. Ef nei, hvað er þá málið?“

Ef ráð­herra neitar hins vegar að svara, eins og í þessu til­felli, þá ætti það að vera siða­reglu­brot út af fyrir sig að mati Björns Leví. „Bæði brot á siða­reglum ráð­herra og þing­manna, brot á þeim heið­ar­leika sem við búumst við að ráð­herrar og þing­menn starfi sam­kvæmt.“

„Þarna þurfti að klára málið bara kviss bang búmm“

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, sem er nýliði í for­sætis­nefnd, gagn­rýndi starfs­hætti nefnd­ar­innar þegar ákveðið var að vísa kærunni frá. „Mikið rosa­lega lá á. Klukkan tíu kvöldið áður fengum við í nefnd­inni drög að nið­ur­stöð­unni. Það er svona á mörk­unum að þetta stand­ist þá starfs­hætti sem við viljum við­hafa,“ sagði Andrés Ingi. „Þarna þurfti að klára málið bara kviss bang búmm,“ bætti hann við.

Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði siða­reglur alþing­is­manna og eft­ir­lit með fram­kvæmd þeirra hafa „snú­ist upp í ein­hvers konar skrípa­leik þar sem þing­menn ýmist hvít­þvo hver annan eftir póli­tískur flokkslínum eða ná sér niður á hver öðrum eftir póli­tískum flokkslínum.“

Hann sagði með­höndlun á siða­reglu­málum verða að sjálf­stæðu vanda­máli sem kasti rýrð á Alþingi og ímynd þess og kall­aði eftir því að meint brot á siða­reglum fengju fag­lega umfjöllun. „Þar sem máls­með­ferðin er í ein­hverju lág­marks­sam­ræmi við rétt­læt­is­vit­und fólks­ins í land­inu,“ sagði Jóhann Páll.

„Á köflum vissi maður ekki hvort maður ætti að hlæja eða gráta“

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, sagði afgreiðslu máls­ins hjá for­sætis­nefnd vekja athygli og sýni að siða­reglu­fyr­ir­komu­lagið, eins og það hefur verið við­haft í þing­inu, er í raun ónýtt. „Það bara blasir við þegar þetta er orðið ein­hvers lags bar­efli meiri­hluta­flokk­anna gagn­vart þeim stjórn­ar­and­stæð­ingum sem verður á í mess­unni en að sama skapi sé leitað allra leiða til að kom­ast undan því að sama reglu­verk eigi við þing­menn stjórn­ar­flokka, hvað þá ráð­herra. Veg­ferðin sem farið var í í þessu máli er þannig að á köflum vissi maður ekki hvort maður ætti að hlæja eða gráta út af þeim rökum sem fram voru færð. Ef það er mark­mið stjórn­ar­flokk­anna að eyði­leggja siða­reglu­formatið þá sýn­ist mér það hafa tek­ist full­kom­lega,“ sagði Bergþór.

Þorbjörg tók þá aftur til máls og sagði kjarna máls­ins vera að skoða þurfi nið­ur­stöður og lyktir mála út frá því hvaða reglur sé verið að setja. „Hér var verið að setja þá reglu að það gildir annað um ráð­herra en þing­menn. Reglu­verkið er ónýtt, ef ekki veru­lega hnjaskað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár