Mynd: Bára Huld Beck

Siðanefnd skoðar ekki ummæli Björns Levís um að Ásmundur hafi dregið að sér fé

Fyrir tveimur árum komst siða­nefnd og for­sætis­nefnd Alþingis að þeirri nið­ur­stöðu að þing­maður Pírata hefði brotið siða­reglur fyrir að nota orða­lagið „rök­studdur grunur“.

For­sætis­nefnd Alþingis hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekki sé til­efni til þess að taka til umfjöll­unar innan hennar eða hjá ráð­gef­andi siða­nefnd Alþingis hvort að Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, hafi gerst brot­legur við siða­reglur Alþingis. Björn Leví hafði sjálfur sent erindi til nefnd­ar­innar og óskað eftir áliti hennar á ummælum sem hann lét falla í pistli í Morg­un­blað­inu. Þar sagði hann að „rök­studdur grunur“ væri um að „Ásmundur Frið­riks­son hafi dregið að sér fé, almannafé og við erum ekki að sjá við­brögð þess efnis að það sé verið að setja á fót rann­sókn í þeim efnum.“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, var talin hafa brotið gegn siða­reglum þing­manna, að mati for­sætis­nefndar og ráð­gef­andi siða­nefndar, þegar hún not­aði sama orða­lag, að „rök­studdur grunur“ væri uppi um að Ásmundur hefði dregið að sér fé með end­ur­greiðslum úr rík­is­sjóði vegna akst­urs síns, í nið­ur­stöðu sem var birt árið 2019.

Í nið­ur­stöðu for­sætis­nefndar nú segir að í erindi Björns Levís felist „beiðni um að fjallað verði um sama álita­efni öðru sinni. Fellur slíkt utan til­gangs siða­reglna fyrir alþing­is­menn. Það er því nið­ur­staða for­sætis­nefndar að erindi þitt gefi ekki nægi­legt til­efni til athug­unar.“

Þórhildur Sunna fyrst til að brjóta siðareglur

Fyrir rúmum tveimur árum síðan, nánar til­tekið 10. jan­úar 2019, óskaði Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks eftir því að tekið yrði til skoð­unar hvort þing­­menn Pírata, Björn Leví Gunn­­ar­s­­son og Þór­hildur Sunna Ævar­s­dóttir, hefðu með ummælum sínum á opin­berum vett­vangi um end­­ur­greiðslur þings­ins á akst­­ur­s­­kostn­aði Ásmundar brotið í bága við siða­regl­­ur Alþingis.

Siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu, í maí sama ár, að ummæli þing­flokks­for­manns Pírata, Þór­hildar Sunnu Ævars­dótt­ur, sem hún lét falla þann 25. febr­úar 2018 í Silfrinu hafi ekki verið í sam­ræmi við siða­reglur fyrir alþing­is­menn. Sama gilti um ummæli sem hún lét falla á í stöðu­upp­færslu á Facebook í kjöl­farið. Siða­nefndin taldi aft­ur á móti að Björn Leví Gunn­ars­son hafi ekki gerst brot­leg­ur við regl­urn­ar.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir varð fyrsti þingmaður Íslands sem talin er hafa brotið gegn siðareglum alþingismanna.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir varð fyrsti þing­maður Íslands sem talin er hafa brotið gegn siða­reglum alþing­is­manna.

Ummælin sem um ræðir lét Þór­hildur Sunna falla í Silfrinu á RÚV þann 25. febr­úar 2018 og hljóða þau svo:

„Við sjáum það að ráð­herrar þjóð­ar­innar eru aldrei látnir sæta afleið­ingum, þing­menn þjóð­ar­innar eru aldrei látnir sæta afleið­ingum. Nú er uppi rök­studdur grunur um það að Ásmundur Frið­riks­son hafi dregið að sér fé, almannafé, og við erum ekki að sjá við­brögð þess efnis að það sé verið að segja á fót rann­sókn á þessum efnum.“

Eins sagði hún á Facebook-síðu sinni:

„Almenn hegn­ing­ar­lög inni­halda heilan kafla um brot opin­berra starfs­manna í starfi, þessi lög ná eftir atvikum líka yfir þing­menn og ráð­herra, að ógleymdum lögum um ráð­herra­á­byrgð. Almenn­ingur í land­inu á það skilið að rík­is­sak­sókn­ari taki það föstum tökum þegar uppi er grunur um brot æðstu ráða­manna í starfi.

Tökum nokkur dæmi. Í 248. gr. almennra hegn­ing­ar­laga er fjár­svip refsi­vert.

248. gr. Ef maður kemur öðrum manni til að haf­ast eitt­hvað að eða láta eitt­hvað ógert með því á ólög­mætan hátt að vekja, styrkja eða hag­nýta sér ranga eða óljósa hug­mynd hans um ein­hver atvik, og hefur þannig fé af honum eða öðrum, þá varðar það fang­elsi allt að 6 árum. Sé brotið framið af opin­berum starfs­manni kemur það til refsi­aukn­ingar sbr. 138. gr. sömu [sic] laga.

Það er því full­kom­lega eðli­legt að skoða grun­sam­legt akst­urs­bók­hald Ásmundar Frið­riks­sonar í þessu ljósi, það er full­kom­lega eðli­legt í rétt­ar­ríki að hann sæti rann­sókn vegna þessa, rétt eins og annar sem upp­vís verður að vafa­samri fjár­söfnun úr vösum skatt­greið­enda. Það er í verka­hring sak­sókn­ara að rann­saka það. Almenn­ingur ber ekki sönn­un­ar­byrð­ina hér.“

Þór­hildur Sunna varð með þessu fyrsti þing­maður þjóð­ar­innar sem talin hefur verið hafa brotið gegn siða­reglum Alþingis frá því að þær voru settar.

Ásmundur endurgreiddi ofteknar greiðslur

Mikið var fjallað um akstur Ásmundar í byrjun árs 2018 en þann 9. febr­úar sama ár var upp­lýst um að hann væri sá þing­­maður sem fékk 4,6 millj­­ónir króna end­­ur­greiddar vegna akst­­­ur­s­­­kostn­aðar árið 2017. Það þýddi að hann fékk um 385 þús­und krónur á mán­uði í end­­­ur­greiðslu úr rík­­­is­­­sjóði vegna keyrslu sinn­­ar. Alls keyrði Ásmundur 47.644 kíló­­metra árið 2017 og fékk end­­ur­greitt frá rík­­inu vegna kostn­aðar fyrir þann akst­­ur. Frá því að Ásmundur sett­ist á þing árið 2013, og út síð­asta ár, hefur sam­an­lagður akst­urs­kostn­aður hans verið 31,4 millj­ónir króna.

Í lok nóv­em­ber 2018 end­ur­greiddi Ásmundur skrif­­stofu Alþingis 178 þús­und krónur vegna ferða sem honum hafði verið end­­ur­greiddar á árinu 2017. Þetta gerði hann vegna þess að honum hafi orðið það ljóst „að það gæti orkað tví­­­mælis að blanda saman ferðum mínum um kjör­­dæmið og ferðum á sama tíma með töku­­fólki ÍNN.“

Þór­hildur Sunna sætti sig illa við nið­ur­stöð­una. Í stöðu­upp­færslu á Facebook síðu sinni í kjöl­far þess að nið­ur­staða siða­nefndar var birt sagði hún að fengi nið­ur­staðan að standa væri skila­boðin til okkar allra þau að það sé verra að benda á vanda­málin en að vera sá sem skapar þau. „Ég er alger­lega búin að fá nóg af slíkri með­virkni.“

For­sætis­nefnd Alþingis féllst á nið­ur­stöð­una rúmum mán­uði síðar.

Björn Leví gerir það sama og Þórhildur Sunna

Þann 3. apríl skrif­aði Björn Leví pistil sem birt­ist í Morg­un­blað­inu. Í honum sagði hann meðal ann­ars að það væri „rök­studdur grunur um að Ásmundur Frið­riks­son hafi dregið að sér fé, almannafé og við erum ekki að sjá við­brögð þess efnis að það sé verið að setja á fót rann­sókn í þeim efnum.“

Í pistl­inum setti Björn Leví því fram sömu ásak­anir og Þór­hildur Sunna gerði í við­tal­inu í Silfrinu í febr­úar 2018 og not­aði sama hug­tak, að „rök­studdur grunur“ væri um að Ásmundur hefði dregið að sér fé.

Björn Leví sendi sjálfur erindi til for­sætis­nefndar 18. apríl og bað um álit nefnd­ar­innar á því hvort að ummælin væru á skjön við siða­reglur. Þá óskaði hann eftir því að þeim yrði vísað til ráð­gef­andi siða­nefndar, líkt og gert var þegar Ásmundur óskaði eftir áliti á ummælum Þór­hildar Sunnu.

Í lið­inni viku komst for­sætis­nefnd að nið­ur­stöðu og hún var loks birt í gær, 12. maí. Undir nið­ur­stöð­una skrifar Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. Nið­ur­staðan varð sú að skil­yrði brysti til þess að nefndin tæki erindið til athug­unar á grund­velli siða­reglna fyrir alþing­is­menn.

Beiðni um endurtekna umfjöllun

Í rök­stuðn­ingi for­sætis­nefndar segir að siða­reglur alþing­is­manna hafi meðal ann­ars þann til­ganf að efla ábyrgð­ar­skyldu þing­manna og traust og til­trú almenn­ings á Alþingi. Þeim sé ætla að „standa vörð um þessi sið­ferði­legu verð­mæti og hvetja þing­menn til góðra verka. Á þessum grund­velli er í siða­reglur settar fram meg­in­reglur um hátt­erni og hátt­ern­is­skyldu alþing­is­manna.“

Nefndin metur það svo að í erindi Björns Leví felist skírskotun og sam­an­burður við nið­ur­stöðu hennar í máli Þór­hildar Sunnu. „Þó svo að gerður sé sá grein­ar­munur að styðja ummælin við opin­ber gögn er í raun verið að óska eftir umfjöllun um sama álita­efni og var til umfjöll­unar í máli Þór­hildar Sunnu[...]Í erindi þínu felst á hinn bóg­inn beiðni um að fjallað verði um sama álita­efni öðru sinni. Fellur slíkt utan til­gangs siða­reglna fyrir alþing­is­menn. Það er því nið­ur­staða for­sætis­nefndar að erindi þitt gefi ekki nægi­legt til­efni til athug­unar.“

Miðflokksmenn líka brotlegir

Síðan að nið­ur­staða var birt í máli Þór­hildar Sunnu hefur ráð­gef­andi siða­nefnd Alþingis einu sinni til við­bótar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þing­menn hafi brotið siða­reglur þegar Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, voru taldir hafa gert það. Í því til­felli voru til umfjöll­unar ummæli sem þeir létu falla á barnum Klaustri þann 20. nóv­em­ber 2018.

Siðanefnd Alþingis tók ummæli fjögurra þingmanna Miðflokksins til athugunar og komst að því að tveir þeirra hefðu brotið gegn siðareglum. Mynd: Samsett
Siða­nefnd Alþingis tók ummæli fjög­urra þing­manna Mið­flokks­ins til athug­unar og komst að því að tveir þeirra hefðu brotið gegn siða­reglum. Mynd: Samsett

Aðrir þing­menn sem tóku þátt í sam­tal­inu, Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þing­menn Mið­flokks­ins, og Karl Gauti Hjalta­son og Ólaf­ur Ísleifs­son, sem voru í Flokki fólks­ins þegar sam­talið átti sér stað en gengu síðar til liðs við Miðflokk­inn, brutu ekki gegn siða­regl­um að mati nefnd­ar­innar.

Siða­nefndin fór yfir ummæli Bergþórs um Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, Írisi Róberts­dóttur, bæj­ar­stjóra í Vest­manna­eyjum, Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, og Lilja Alfreðs­dóttur, mennta­mála­ráð­herra.

Siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Bergþórs væru „öll af sömu rót­inni sprottin“. Þau væru ósæmi­leg og í þeim fólst van­virð­ing er laut að kyn­ferði þeirra kvenna sem um var rætt. Einnig væru þau til þess fallin að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess.

Nefndin fór einnig yfir ummæli Gunnars Braga um Albertínu og Lilju auk Ragn­heiðar Run­ólfs­dóttur, fyrr­ver­andi sund­konu. Komist va að sömu nið­ur­stöðu og í máli Bergþórs, að í ummæl­unum fælist van­virð­ing í garð umræddra kvenna og þau væru til þess fallin að skaða ímynd Alþingis.

Hægt er að lesa ummælin hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið undanfarið ár