Ásmundur Friðriksson sá þingmaður sem keyrði mest allra árið 2020

Ásmundur Frið­riks­son er sá þing­maður sem keyrði mest á síð­asta ári, líkt og árin á undan. Kostn­aður vegna akst­urs þing­manna dróst saman um fimmt­ung milli ára.

Í upp­haf­legri útgáfu þess­arrar frétta­skýr­ingar kom fram að Guðjón S. Brjáns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar úr Norð­vest­ur­kjör­dæmi, væri sá þing­maður sem var með mestan akst­urs­kostnað á árinu 2020. Eftir að hún birt­ist hefur Alþingi stað­fest að rangar tölur hafi birst um akst­urs­kostnað Guðjóns á síð­asta ári. Hægt er að lesa um það hér. Frétta­skýr­ingin hefur verið upp­færð með þessum upp­lýs­ingum.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi, er sá þing­maður sem er með mestan sam­an­lagðan akst­urs­kostnað á árinu 2020. Hann var með heild­ar­kostnað upp á 2.218 þús­und krónur. Hann fór ekki fram á neina end­ur­greiðslu fyrir notkun á eigin bif­reið á árinu 2020 heldur not­aði bíla­leigu­bíla. 

Í öðru sæti var Guðjón S. Brjáns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, með kostnað upp á tæpar tvær millj­ónir króna. Guðjón not­aði sína eigin bif­reið ekk­ert heldur er kostn­að­ur­inn allur til­kom­inn vegna notk­unar á bíla­leigu­bílum og elds­neytis­kostn­aðar. 

Akst­ur­kostn­aður Ásmundar dregst umtals­vert saman milli ára, en hann var 3,8 millj­ónir króna árið 2019, rúm­lega 320 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði. Það var fyrsta árið sem allur akstur Ásmundar fór fram á bíla­leigu­bílum en árin á undan hafði hann að mestu keyrt um landið á eigin bif­reið og fengið kostnað vegna þess end­ur­greiddan frá Alþingi. Frá því að Ásmundur sett­ist á þing árið 2013 hefur sam­an­lagður akst­urs­kostn­aður hans verið 31,4 millj­ónir króna.

Mestur var hann árið 2014, þegar Ásmundur fékk alls um 5,4 millj­ónir króna end­ur­greiddar vegna keyrslu á eigin bif­reið, eða 450 þús­und krónur á mán­uði.

Í þriðja sæti á list­anum yfir þá þing­menn sem voru með mesta akst­urs­kostnað í fyrra er Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sem keyrði fyrir 1.827 þús­und krónur á árinu, eða 152 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði. Allur sá akstur fór fram á bíla­leigu­bílum.

Kostnaðurinn dróst saman um fimmtung

Samtals keyrðu þing­menn lands­ins fyrir 23,2 millj­ónir króna í fyrra. Það er umtals­vert minna en árið 2019 þegar akstur þeirra sem greiddur var úr sam­eig­in­legum sjóðum kost­aði 30,2 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn var mjög svip­aður árið 2018, eða 30,7 millj­ónir króna, og árið 2017, þegar hann var 29,2 millj­ónir króna. Hann dróst því saman um rúm­lega 20 pró­sent á árinu 2020 miðað við árið áður.

Líklegt verður að telj­ast að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, sem hefur leitt af sér umfangs­miklar sam­komu­tak­mark­anir og kröfur um ýmis konar sótt­varna­ráð­staf­anir þegar fólk hitt­ist, skipti þar miklu. Þingmenn hafa ekki getað hitt vænt­an­lega kjós­endur á sama hátt og áður. Það hefur hluti nefnd­ar­starfa farið fram í gegnum fjar­fund­ar­búnað sem gerir það að verkum að við­vera lands­byggð­ar­þing­manna í höf­uð­borg­inni hefur ekki verið jafn knýj­andi og áður.

Alls keyrðu ellefu þingmenn fyrir eina milljón króna eða meira á síðasta ári. Þeir eru:

  1. Ásmundur Frið­riks­son Sjálf­stæð­is­flokki 2.217.867 krónur
  2. Guðjón S. Brjáns­son Sam­fylk­ing­unni tæp­lega tvær millj­ónir krónur
  3. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir Vinstri græn 1.827.141 krónur
  4. Vil­hjálmur Árnason Sjálf­stæð­is­flokki 1.694.043 krónur
  5. Birgir Þór­ar­ins­son Mið­flokki 1.653.749 krónur
  6. Sigurður Páll Jónsson Mið­flokki 1.643.859 krónur
  7. Haraldur Bene­dikts­son Sjálf­stæð­is­flokki 1.580.226 krónur
  8. Lilja Rafney Magn­ús­dóttir Vinstri grænum 1.390.240 krónur
  9. Halla Signý Krist­jáns­dóttir Fram­sókn­ar­flokki 1.283.788 krónur
  10. Albertína Frið­björt Elí­as­dóttir Sam­fylk­ing­unni 1.124.066 krónur
  11. Líneik Anna Sæv­ars­dóttir Fram­sókn­ar­flokki 1.069.035 krónur
Fyrirspurn Björns Leví Gunnarssonar leiddi til þess að aksturskostnaður þingmanna varð loks opinber snemma árs 2018.
Fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar leiddi til þess að akst­urs­kostn­aður þing­manna varð loks opin­ber snemma árs 2018.

Fjöl­miðlar reyndu árum saman reynt að fá upp­­lýs­ingar um hvaða þing­­menn fái end­­ur­greiðslu vegna akst­­urs, en án árang­­urs. Kjarn­inn fjall­aði til að mynda um málið í frétta­­skýr­ingu árið 2015 þar sem fram kom að alls 28 þing­­menn hefðu fengið end­­ur­greiðslu á árinu 2014, þar af 18 yfir eina milljón króna. Ekki var hins vegar hægt að fá upp­­lýs­ingar um hvaða þing­­menn var að ræða. Þær upp­­lýs­ingar þóttu þá of per­­són­u­­leg­­ar.

Í byrjun febr­úar 2018 svar­aði for­seti Alþingis fyr­ir­­spurn Björns Leví Gunn­­ar­s­­sonar, þing­­manns Pírat­­ar, um akst­­ur­s­­kostn­að. Í svari for­­seta var greint frá því hversu háar greiðslur þeir tíu þing­­menn sem fengu hæstu skatt­lausu end­­ur­greiðsl­­urnar þáðu á síð­­­ustu fimm árum. Ekki var hins vegar greint frá nafni þeirra. Í töl­unum mátti þó sjá að fjórir þing­menn sem þáðu hæstu end­ur­greiðsl­urnar fengu sam­tals 14 millj­ónir króna, eða tæp­lega helm­ing allra end­ur­greiðslna vegna akst­urs.

Upp­lýs­ing­arnar vöktu upp mikla reiði og ásak­anir um mögu­lega sjálftöku þing­manna. Sér­stak­lega þegar fyrir lá að Ásmundur Frið­riks­son hafði sagst keyra 47.644 kíló­metra á árinu 2017 einu saman vegna vinnu sinnar sem þing­maður, og fékk kostnað vegna þeirrar keyrslu end­ur­greiddan, alls 4,6 millj­ónir króna.

Krafa um að allt kæmi upp á borðið

Í kjöl­farið varð það krafa þings, þjóðar og fjöl­miðla að allar greiðslur vegna akst­urs yrðu gerðar opin­berar og að þær yrðu per­sónu­grein­an­leg­ar. Þá varð það einnig krafa að allar aðrar greiðslur sem þing­menn fá vegna starfa sinna yrðu gerðar opin­ber­ar, sund­ur­lið­aðar og mörg ár aftur í tím­ann. Hvort sem um væri að ræða hús­næð­is­styrk, greiðslur vegna flugs eða kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla. Allt ætti að koma upp á borð­ið.

For­sætis­nefnd ákvað að bregð­ast við og allar upp­lýs­ingar um kostnað sem fylgir störfum þing­manna er nú birtur mán­að­ar­lega. Auk þess var ákvæði í reglum um þing­fara­kostnað, sem fjallar um bíla­leigu­bíla, gert skýr­ara til að tryggja að slíkir séu frekar teknir en að þing­menn séu að nota eigin bif­reið­ar. Breyt­ing­arnar náðu einkum til þing­manna sem falla undir svo­­kall­aðan heim­an­akst­­ur, þ.e. akstur til og frá heim­ili dag­­lega um þing­­tím­ann. Það eru þing­­menn sem búa í nágrenni Reykja­víkur (á Suð­­ur­­nesjum, Vest­­ur­landi, Árnes­­sýslu o.s.frv.). Akstur á eigin bif­­reið­um, sem kemur til end­­ur­greiðslu, varð eftir breyt­ing­arnar bund­inn hámarki við 15.000 km. Eftir þann kíló­metra­fjölda á skrif­stofa Alþingis láta umræddum þing­manni í té bíla­leigu­bíl.

Mesta breyt­ingin sem orðið hefur síð­ast­liðin ár er því sú að þing­menn keyra nú mun meira á bíla­leigu­bílum en áður. Sú til­hneig­ing hefur stökk­breyst eftir að akst­urs­greiðsl­urnar voru opin­ber­aðar í fyrsta sinn í byrjun árs 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár