Aksturskostnaður Guðjóns leiðréttur af Alþingi – Ásmundur keyrði mest

Guðjón S. Brjáns­son var ekki sá þing­maður sem keyrði mest allra á síð­asta ári. Alþingi gerði mis­tök í útreikn­ingi á akst­urs­kostn­aði hans og bók­færði hluta kostn­aðar vegna áranna 2018 og 2019 á árinu 2020.

Alþingi gerði mis­tök við útreikn­ing á akst­urs­kostn­aði Guðjóns S. Brjáns­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, fyrir árið 2020. Mistökin fólust í því að þegar bíla­leigu­bíll sem tek­inn hafði verið á leigu fyrir Guðjón fyrir rúmum þremur árum var gerður upp þá reynd­ist hann hafa ekið aðeins meira á ári en gert hafði verið ráð fyrir í lang­tíma­leigu­samn­ingnum.

Við það mynd­að­ist við­bót­ar­kostn­aður vegna áranna 2018, 2019 og 2020 upp á um eina milljón króna. Þau mis­tök voru hins vegar gerð af skrif­stofu Alþingis að sá kostn­aður var allur gjald­færður á árinu 2020, þegar hann hefði átt að dreifast yfir árin 2018 og 2019 líka.

[links]Fyrir vikið lækkar akst­ur­kostn­aður Guðjóns á árinu 2020 úr 2.669 þús­und krónum í rætt tæpar tvær millj­ónir króna. Þetta stað­festir Eggert Jónsson, for­stöðu­maður fjár­mála­skrif­stofu Alþingis, í sam­tali við Kjarnann, en Guðjón bað um að farið yrði yfir áður upp­gefnar tölur um akstur hans þar sem honum fannst þær ekki passa. Við það komu ofan­greind mis­tök í ljós.

Það þýðir að Guðjón og Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi, hafa sæta­skipti á list­anum yfir þá þing­menn sem keyrðu mest á árinu 2020. Ásmundur, sem hefur árum saman setið á toppnum yfir þá þing­menn sem hafa myndað mestan akst­urs­kostnað sem greiddur er sam­eig­in­legum sjóðum. Alls kost­aði akstur Ásmundar 2.218 þús­und krónur á síð­asta ári sam­kvæmt birtum tölum á vef Alþingis.

Tölur teknar saman reglulega

Kjarninn hefur reglu­lega tekið saman upp­lýs­ingar um akst­ur­kostnað þing­manna und­an­farin ár. Forsaga þess er að fjöl­miðlar reyndu árum saman að nálg­ast þær upp­lýs­ingar, en án árang­urs. Á því varð breyt­ing í byrjun febr­úar 2018 þegar birtar voru upp­lýs­ingar um að fjórir þing­menn sem fengu hæstu end­ur­greiðsl­urnar úr sjóðum Alþingis fyrir keyrslu á árinu 2017 hefðu fengið sam­tals 14 millj­ónir króna. Þar af hefði Ásmundur fengið 4,6 millj­ónir króna fyrir að keyra eigin bif­reið 47.664 kíló­metra.

[adspot]Í kjöl­farið varð það krafa þings, þjóðar og fjöl­miðla að allar greiðslur vegna akst­urs yrðu gerðar opin­berar og að þær yrðu per­sónu­grein­an­leg­ar. Þá varð það einnig krafa að allar aðrar greiðslur sem þing­menn fá vegna starfa sinna yrðu gerðar opin­ber­ar, sund­ur­lið­aðar og mörg ár aftur í tím­ann. Hvort sem um væri að ræða hús­næð­is­styrk, greiðslur vegna flugs eða kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla.

For­sætis­nefnd ákvað að bregð­ast við og allar upp­lýs­ingar um kostnað sem fylgir störfum þing­manna er nú birtur reglu­lega.

Síðast voru þær tölur upp­færðar seint í síð­ustu viku þegar kostn­aður vegna síð­asta árs­fjórð­ungs 2020 var bætt við. Þær tölur sýndu að Guðjón S. Brjáns­son væri nýr akst­ur­s­kóngur Alþingis.

Keyrði minna vegna faraldurs

Í sam­tali við Kjarnann segir Guðjón að það hafi horft skakkt við honum. Hann hefði enda keyrt minna í fyrra en árið áður vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins en samt var kostn­aður vegna bíla­leigu­bíls sem Alþingi leigir fyrir hann meiri. Þegar hann hafi athugað málið á skrif­stofu Alþingis hafi ofan­greind mis­tök komið í ljós. Hluti akst­urs­kostn­aðar fyrir árið 2018 og 2019 hafði verið bók­færður á árið 2020 með þeim afleið­ingum að akst­urs­kostn­aður hans á því ári sýnd­ist meiri en hann raun­veru­lega var.

Ekki er búið að upp­færa töl­urnar á vef Alþingis og sam­kvæmt honum er Guðjón enn sá þing­maður sem keyrði mest. Eggert Jónsson, for­stöðu­maður fjár­mála­skrif­stofu Alþingis, stað­festi hins vegar mis­tökin við Kjarnann.

Aðrar fréttir Kjarnans sem byggðu á upp­lýs­ingum á vef Alþingis hafa verið upp­færðar til sam­ræmis við þessa breyt­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár