Mynd: Bára Huld Beck

Sex þingmenn ganga inn á bar ... og voru teknir upp af Báru

Klaust­urs­málið er stærsta póli­tíska hneyksl­is­mál þess árs sem nú er senn að ljúka. Póli­tískar afleið­ingar þess, að minnsta kosti til skamms tíma.

Þriðju­dag­inn 20. nóv­em­ber fóru sex þing­menn – fjórir úr Mið­flokki og tveir úr Flokki fólks­ins – á bar­inn Klaustur, í námunda við Alþing­is­húsið. Þar sett­ust þeir niður, drukku áfengi og töl­uðu með niðr­andi og meið­andi hætti um sam­starfs­fólk sitt í stjórn­málum.

Þeir stærðu sig einnig að póli­tískum hrossa­kaupum með sendi­herra­stöður, þing­menn Mið­flokks­ins reyndu að telja þing­menn Flokks fólks­ins um að ganga til liðs við sig auk þess sem nið­ur­lægj­andi orð eru látin falla um Freyju Har­alds­dóttur, fyrr­ver­andi vara­þing­mann og þekktan bar­áttu­mann fyrir auknum rétt­indum fatl­aðra sem glímir við sjald­gæfan bein­sjúk­dóm, og þekktan sam­kyn­hneigðan tón­list­ar­mann.

Það sem þing­menn­irnir sex, þeir Sig­­mundur Dav­íð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins , Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður hans, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, rit­ari flokks­ins, Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins og Karl Gauti Hjalta­­son og Ólafur Ísleifs­­son úr Flokki fólks­ins, vissu ekki var að í nálægð við þá sat ein­stak­lingur sem upp­haf­lega kall­aði sig bara „Marvin“.Sá tók upp það sem fram fór. Og sendi á vald fjöl­miðla.

Fréttir af tali Klaustursmanna birtar

Þann 28. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn hófu fjöl­miðl­arnir DV, Stundin og Kvenna­blaðið að birta fréttir upp úr upp­töku af sam­tali þing­mann­anna. Þær stóðu yfir í nokkra daga. Sam­fé­lagið fór á hlið­ina.

Fyrstur þeirra sem tóku þátt í sam­sæt­inu til að bregð­ast við var Sig­mundur Davíð. Hann setti inn stöðu­upp­færslu á Facebook sama kvöld. Þar sagði:

Daginn eftir var þó komið annað hljóð í strokk­inn. Mið­flokks­þing­menn­irnir sendu frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem þeir báðu „þá sem farið var ónær­gætnum orðum um í þeim einka­sam­tölum sem þar fóru fram ein­læg­legrar afsök­unar. Það var ekki ætlun okkar að meiða neinn og ljóst má vera að sá talsmáti sem þarna var á köflum við­hafður er óaf­sak­an­legur. Við ein­setjum okkur að læra af þessu og munum leit­ast við að sýna kurt­eisi og virð­ingu fyrir sam­ferð­ar­fólki okkar. Jafn­framt biðjum við flokks­menn Mið­flokks­ins og fjöl­skyldur okkar afsök­unar á að hafa gengið fram með þessum hætti.“

Sama dag, 29. nóv­em­ber, óskaði hópur þing­manna eftir því að for­sætis­nefnd tæki upp mál sex­menn­ing­anna.

Næstu daga gerð­ust hlut­irnir hratt. Karl Gauti og Ólafur voru reknir úr Flokki fólks­ins vegna „alvar­legs trún­að­ar­brests“. Gunnar Bragi og Bergþór, til­kynntu þann 30. nóv­em­ber að þeir myndu fara í leyfi frá þing­störfum.

Nánast allir landsmenn vilja afsögn

Á öðrum degi des­em­ber­mán­aðar birt­ist grein eftir Freyju Har­alds­dóttur á Kjarn­anum. Þar greindi hún frá sím­tali sem hún hafði fengið frá Sigmundi Davíð og sagði m.a.: „Ég frá­bið mér frek­ari sím­töl þar sem ófatl­aður karl­maður í valda­stöðu talar niður til mín og reynir að útskýra fyrir mér hvað eru fötl­un­ar­for­dómar og hvað ekki. Eina eðli­lega sím­talið í stöð­unni væri að biðj­ast ein­læg­lega afsök­un­ar, án nokk­urra útskýr­inga eða mála­leng­inga, og segj­ast í ljósi gjörða sinna ætla að axla ábyrgð á ofbeld­inu sem við vorum beittar og segja af sér.“

Þann 3. des­em­ber var birt könnun frá Maskínu. Þar kom fram að á milli 74 og 91 pró­sent Íslend­inga eru hlynnt afsögn alþing­is­mann­anna sex. Flestum fannst að Gunnar Bragi ætti að segja af sér en næstum jafn háu hlut­falli fannst að Berg­þór ætti einnig að gera það. Þá töldu 86 pró­sent lands­manna að Sig­mundur Davíð ætti að víkja.

Sama dag var greint frá því að for­sætis­nefnd Alþingis hefði ákveðið að hefja skoðun á Klaust­ur­mál­inu sem mögu­legu siða­brota­máli. Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, bað, fyrir hönd þings­ins, þing­menn sem nefndir voru í upp­tök­unum, aðra þing­menn en þá sem í hlut áttu að máli, fjöl­skyldur þeirra, og þjóð­ina alla afsök­unar á mál­inu. „Ég vil biðja starfs­fólk okkar, konur, fatl­aða, hinsegin fólk og þjóð­ina alla, afsök­unar,“ sagði hann.

Eig­in­kona Sig­mundar Davíðs bland­aði sér í umræð­una dag­inn eftir og sagði í ummælum á Facebook að hún teldi að íslenskt sam­fé­lag væri komið á villi­göt­ur. „Hat­rið og þörfin fyrir að smána aðra til upp­hefja sjálfan sig,“ skrifar hún­. „Ég ætla ekki að segja ykkur hvað hefur gengið á í partýum meðal stjórn­mála­manna síð­ustu árin en það kannski segir allt að við SDG höfum gengið út. Þakka ykkur enn og aft­ur. Ég stend stolt með Sig­mundi mínum enda veit ég hvaða mann hefur að geyma og veit hver líðan hans er nún­a.“

Afdrifaríkur 5. desember

Fyrir lá að Klaust­urs­málið var að valda sex­menn­ing­unum miklum póli­tískum skaða. Í fyrstu könnun sem gerð var á fylgi flokka eftir að það kom upp, sem var birt í Frétta­blað­inu að morgni 5. des­em­ber, kom fram að Mið­flokk­ur­inn myndi ein­ungis fá 4,3 pró­sent fylgi ef kosið yrði þá og þar með falla með öllu út af þingi. Flokkur er í dag með sjö þing­menn eftir að hafa fengið 10,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í fyrra. Í síð­ustu mæl­ingu MMR áður en að Klaust­urs­málið kom upp hafði Mið­flokk­ur­inn mælst með 13 pró­sent fylgi, og hafði aldrei mælst með meira.

Flokkur fólks­ins mæld­ist einnig með fylgi undir kjör­fylgi og á þeim slóðum að afar tæpt yrði að flokk­ur­inn myndi ná inn manni.

Þegar leið á dag­inn tjáði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra sig um fund sem Sig­mundur Davíð hafði átt með honum og Bjarna Bene­dikts­syni til að ræða áhuga Gunnars Braga á að vera skip­aður sendi­herra, en í frá­sögn Mið­flokks­mann­anna af þessu máli á Klaustri mátti skilja að þeir teldi Bjarna skulda sér greiða vegna þess að Gunnar Bragi hefði skipað Geir H. Haarde sendi­herra á sínum tíma.

Guð­laugur stað­festi fund­inn í stöðu­upp­færslu á Facebook. Þar sagði hann:

Einn þeirra stjórn­mála­manna sem mikið var rætt um á Klaust­urs­upp­tök­unni, á kyn­ferð­is­legan og niðr­andi hátt, er Lilja D. Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Á upp­tök­unum heyr­ist Gunnar Bragi meðal ann­ars segja: „Hjólum í hel­vítis tík­ina“ þegar rætt er um Lilju.

Lilja fór í við­tal í Kast­ljósi 5. des­em­ber síð­ast­lið­inn sem hefur mælst afar vel fyrir þvert á póli­tískar línur. Þar var hún mjög afger­andi í afstöðu sinni gagn­vart fram­ferði Klaust­ur­fólks­ins., sagði tal þeirra vera „algjört ofbeldi“ og að hún væri „ofboðs­lega“ ósátt við það.

Sigmundur Davíð sár

Sig­mundur Davíð brást við við­tal­inu við Lilju dag­inn eftir, 6. des­em­ber, með stöðu­upp­færslu á Facebook. Þar sagð­ist hann meðal ann­ars hafa verið kall­aður fleiri ljótum nöfnum en hann hafi tölu á. Hann minn­ist þess hins vegar ekki að hafa áður verið kall­aður ofbeld­is­mað­ur. „Ekk­ert sem um mig hefur verið sagt í póli­tík hefur sært mig eins mik­ið.“

Föstu­dags­morg­un­inn 7. des­em­ber hafði málið staðið yfir í viku og ýmsum kenn­ingum verið fleytt um hvernig staðið hafði verið að upp­tök­unum á Klaust­ur­bar þriðju­dags­kvöldið afdrifa­ríka.

Þennan morgun steig sá sem tók upp sam­tölin fram í við­tali við Stundina. Við­kom­andi reynd­ist vera Bára Hall­dórs­dóttir, 42 ára fötluð og hinsegin kona sem sagði að sér hefði ein­fald­lega blöskrað orð­færi fólks­ins og ákveðið að taka það upp. „ „Mér bara brá svo þegar ég heyrði hvernig þing­menn­irnir töl­uðu. Satt best að segja trúði ég ekki mínum eigin skiln­ing­ar­vit­um. Svo ég byrj­aði bara að taka upp, án þess að hugsa það neitt lengra. En því meira sem ég hlust­aði, því reið­ari varð ég, því þarna voru saman komnir valda­miklir menn að spúa hatri yfir minni­hluta­hópa á almanna­vett­vangi. Ég held að það hafi verið rétt að upp­lýsa almenn­ing um það sem þarna fór fram og eftir á að hyggja er ég stolt af því.“

Undirbúa málarekstur gegn Báru

Þann 8. des­em­ber sendi fræða­fólk við Rann­sókn­ar­setur Háskóla Íslands í fötl­un­ar­fræðum bréf til for­seta Alþingis. Í því sagði að Klaust­urs­málið og ummæli þing­manna sem þar voru séu þeim „áfall og þung­bært að verða vitni að þeim nið­ur­lægj­andi og for­dóma­fullu ummælum sem þar voru við­höfð um fatlað fólk, einkum fatl­aðar konur sem við virðum mik­ils og eigum náið og gott sam­starf við í bar­áttu fyrir mann­rétt­indum og mann­virð­ingu fatl­aðs fólks.“

Þar sagði enn fremur að þeir „djúp­stæðu for­dóm­ar, mann­fyr­ir­litn­ing, hroki og van­virð­ing sem þar birt­ast í garð fatl­aðs fólks og ann­arra jað­ar­setra hópa gerir það að verkum að við munum ekki taka þátt í sam­starfi við vel­ferð­ar­nefnd Alþingis á meðan að Anna Kol­brún Árna­dóttir á sæti í nefnd­inn­i.“

Lilja D. Alfreðsdóttir fór í eitt áhrifamesta Kastljósviðtal síðari ára.
Lilja D. Alfreðs­dóttir fór í eitt áhrifa­mesta Kast­ljós­við­tal síð­ari ára.

Eftir nokk­urra daga svika­logn greindi Bára Hall­dórs­dóttir svo frá því að lög­maður þing­manna Mið­flokks­ins hefði lagt fram beiðni um vitna­leiðslur og öflun sýni­legra sönn­un­ar­gagna fyrir dómi vegna upp­töku á sam­tölum sem áttu sér stað á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Beiðnin byggir á ákvæði laga um með­ferð einka­mála sem fjallar um öflun sönn­un­ar­gagna án þess að mál hafi verið höfð­að. Til­gangur þess er að koma í veg fyrir að mögu­leg sönn­un­ar­gögn spillist.

Í bréf­inu sagði enn fremur að beiðnin verði „ekki skilin öðru­vísi en svo að dóms­mál kunni að verða höfðað á hendur þér í kjöl­far umbeð­innar gagna­öfl­un­ar.“

Ekki hægt að funda vegna og pistill Sigmundar Davíðs

Mið­viku­dag­inn 12. des­em­ber stóð til að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd myndi funda um sendi­herra­tal Mið­flokks­mann­anna. Það reynd­ist hins vegar ekki hægt þar sem þeir Gunnar Bragi Sveins­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son svör­uðu ekki ítrek­uðum boðum um að mæta til fund­ar­ins. Á fund­inn var einnig búið að boða Bjarna Bene­dikts­son og Guð­laug Þór Þórð­ar­son. Fundinum var því frestað fram í jan­úar.

Mið­flokk­ur­inn brást við þess­ari stöðu með yfir­lýs­ingu á Facebook þar sem sagði m.a.: „Það er afar fátítt að þing­nefndir séu not­aðar í jafn aug­ljósum póli­tískum til­gangi og átti að gera. Slíkt á ekki að við­gang­ast.“

Þann 16. des­em­ber birti Sig­mundur Davíð svo pistil á heima­síðu sinni þar sem hann gaf í skyn að fjöl­miðlar og stjórn­mála­menn hefðu farið öðru­vísi með Klaust­ur­upp­tök­urnar svoköll­uðu ef þeir sem teknir væru upp væru úr vinstri­flokk­um.

Í pistl­in­um, sem ber nafnið „Er sama hver er?“, lagði Sig­mundur Davíð út frá því að þing­menn­irnir sex sem sátu að sum­bli á Klaust­ur­bar hefðu verið úr Vinstri grænum og Sam­fylk­ingu og að sá sem tekið hafi upp sam­tal þing­mann­anna hafi verið „ungir Heim­dell­ingur og harð­lín­u-frjáls­hyggju­mað­ur“ sem hefði „gert ráð­staf­anir til að njósna um einka­sam­tal þeirra klukku­tímunum sam­an.“

Sig­mundur Davíð gaf þing­mönnum og flestum fjöl­miðlum gervi­nöfn í pistl­inum og gekk einnig út frá því að upp­tökur á sam­tölum eins og þeim sem áttu sér stað á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, væru ólög­leg­ar. Í skrif­unum var Stundin t.d. köllum hin ákafa hægri­vef­síða Tíð­ar­and­inn og Kjarn­inn fékk við­ur­nefnið hægri­vef­ur­inn Kvörnin sem „hafi lengi helgað sig bar­átt­unni gegn ógnum komm­ún­isma og krat­isma.“

Hægt er að lesa umfjöllun Kjarnans/Kvarn­ar­innar um pistil­inn hér.

Bára dregin fyrir dóm

Mánu­dag­inn 17. des­em­ber kom Bára Hall­dórs­dóttir fyrir dóm vegna krafna Mið­flokks­mann­anna um gagna­öflun og vitna­leiðslur sem var liður í fyr­ir­hug­aðri mál­sókn þeirra gagn­vart upp­ljóstr­ar­anum. Fjöl­menni mætti til að sýna Báru stuðn­ing. Enginn þing­mann­anna sem stóðu að mála­til­bún­að­inum var við­staddur. Þar fór lög­maður þeirra fram á að myndefni úr eft­ir­lits­mynda­vélum Alþingis og Dóm­kirkju yrði varð­veitt og lagt fyrir dóm. Á meðal þess sem fram kom í máli lög­manns­ins fyrir dómi var: „ „Um­bjóð­endur mínir telja að frek­lega hafi verið brotið á rétti þeirra til einka­lífs. Þetta hafi gerst þegar einka­sam­tal á Klaustri var hljóð­ritað að þeim óaf­vit­andi og gert opin­bert. Í því hafi falist brot gegn 229. grein almennra hegn­ing­ar­laga,“ sagði hann og benti á að þessi hátt­semi gæti varðað skaða- og miska­bóta­skyldu.“

Kröfu Mið­flokks­manna var hafnað 19. des­em­ber. Tveimur dögum síðar var greint frá því í Stund­inni að Mið­flokks­þing­menn­irnir hefðu kært úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­vík­ur, þar sem hafnað var beiðni sókn­ar­að­ila um að fram færu vitna­leiðslur og öflun sýni­legra sönn­un­ar­gagna um atburð­ina á Klaustri, til Lands­rétt­ar.

Í kærunni vakti lög­maður Mið­flokks­manna, Reimar Pét­urs­son, athygli á því að Bára hafi greint frá því í fjöl­miðlum hvernig hún „sperrti eyr­un“ og „þótt­ist“ vera að lesa ferða­manna­bæk­linga sem hún hafði með­ferðis þegar hún hljóð­rit­aði sam­skipti þing­mann­anna. Þá vísi Reimar sér­stak­lega til myndar sem birt­ist í Stund­inni og var tekin fyrir utan Klaustur „áður en varn­ar­að­ili hóf aðgerðir sínar nema, ef vera skyldi, að ein­hver annar hafi tekið hana“.

Af þessu dragi hann ályktun um ein­beittan ásetn­ing Báru: „Allt þetta gefur til kynna að þegar varn­ar­að­ili kom á Klaustur hafi hún komið þangað með það fyr­ir­fram­gefna mark­mið að njósna um og taka upp sam­töl sókn­ar­að­ila. Hún hafi gengið fum­laust til verka. Hún hafi haft með­ferðis bæk­linga sem hún not­aði sem yfir­varp og búnað sem hent­aði til verks­ins. Þá hafi hún dvalið á staðnum svo lengi sem í fjórar klukku­stund­ir. Hafi hún þó sagst hafa verið á leið­inni á æfingu á leik­sýn­ingu sem ætl­unin var að frum­sýna tveimur dögum síð­ar, án þess að þetta hafi neitt tálmað þaul­setu hennar yfir upp­tök­un­um.“

Í frétt Stund­ar­innar segir enn fremur að þing­menn­irnir telji þetta gefa „ríka ástæðu til að kanna hvort ein­hver annar hafi komið að fram­kvæmd þess­arar aðgerðar með varn­ar­að­ila eða hafi fylgt henni til henn­ar“. Finn­ist þeim frá­sögn Báru vera „öll út og suð­ur“. Til að mynda segi hún eina stund­ina að sam­talið hafi verið opin­bert en aðra stund­ina lýsi hún erf­ið­leikum við að greina orða­skipti. „Trú­verð­ug­leiki frá­sagnar varn­ar­að­ila er því eng­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2018

Mest lesið undanfarið ár