„Guð minn góður, af hverju hefði ég átt að fá greiddar mútur?“

Einn hinna ákærðu í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu segir Jóhannes Stef­áns­son, aðal­vitni sak­sókn­ar­ans, hafa viljað eyði­leggja fyrir Samherja með öllum ráðum og því bendlað sig við málið.

Tamson „Fitty“ Hatuikulipi og Jóhannes Stefánsson
Tamson „Fitty“ Hatuikulipi og Jóhannes Stef­áns­son

Tamson „Fitty“ Hatuikulipi, einn hinna ákærðu í Sam­herj­a­mál­inu, seg­ist aldrei hafa þegið mútu­greiðslur frá Samherja. „Guð minn góður, af hverju hefði ég átt að fá greiddar mútur? Ég var ekki hand­hafi kvóta. Ég fékk greitt sam­kvæmt þeirri vinnu sem ég vann. Pen­ing­arnir voru greiddir með lög­legum hætti fyrir þjón­ustu sem var veitt.“

Þetta er meðal þess sem fram kom í vitn­is­burði hans í Fishrot-mál­inu svo­kall­aða, sem Íslend­ingar kalla Sam­herj­a­málið, fyrir dómi í höf­uð­borg Namibíu í gær. Kjarninn rakti í morgun hluta af vitn­is­burði Hatuikulipi sem namibískir fjöl­miðlar höfðu þá greint frá. Í dag voru fleiri fréttir sagðar af vitn­is­burð­inum ytra.

[adspot]

Hatuikulipi seg­ist hafa fengið greiddar um 78 millj­ónir namibískra doll­ara, um 700 millj­ónir íslenskra króna, fyrir störf sín fyrir Samherja. Þau hefðu falist í því að sann­færa hand­hafa afla­heim­ilda um að semja við Samherja um notkun þeirra. Hatuikulipi bað frænda sinn, James Hatuikulipi, um aðstoð við verkið. Frændinn hafi verið stjórn­ar­for­maður Fischor, namibísku rík­is­út­gerð­ar­innar, og því vel tengdur.

[links]Sam­herj­a­málið, sem snýst m.a. um meinta skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti Samherja og tengdra aðila, hófst með umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazeera í nóv­em­ber árið 2019. Þar var rakið hvernig við­skipta­hættir Samherja í Afríku, nánar til­tekið í Namibíu og Angóla, voru árin á undan er fyr­ir­tækið náði undir sig mjög verð­mætum hrossa­makríl­skvóta í lönd­unum. Samkvæmt umfjöll­un­inni var það gert með mútu­greiðslum til ráða­manna og ann­arra manna úr þeirra nán­asta hring. Upp­haf­lega var sagt að þær hefðu numið 1,4 millj­arði króna hið minnsta og hófust með því að reiðufé var afhent í íþrótta­töskum en tóku svo á sig fag­legri mynd og fóru fram í gegnum milli­færslur á reikn­inga í Dúbaí.

Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, hrinti mál­inu af stað er hann lét Wikileaks í té gögn er vörð­uðu meintar mútu­greiðslur og annað í rekstri Samherja í Namibíu.

Í vitn­is­burði sínum í dóms­sal í gær sagði Hatuikulipi að Jóhannes hafa tengt sig við Sam­herj­a­málið þar sem hann hefði neitað að aðstoða Jóhannes við að sverta og eyði­leggja fyrir Samherja. „Ég vildi ekki vinna skít­verkin fyrir hann því í mínum huga var Samherji ekki slæmt fyr­ir­tæki.“ Jóhannes hafi verið reiður, viljað Samherja burt úr Namibíu þar sem hann hefði áform um að koma þar að öðru íslensku útgerð­ar­fyr­ir­tæki. Reiðina mátti að sögn Hatuikulipi rekja til þess að Samherji hafi neitað að greiða honum bónusa sem hann taldi sig eiga inni vegna starfa fyrir félagið í Namibíu og Angóla.

Fékk greitt fyrir að sinna Jóhannesi

Hatuikulipi sagði að vegna „stöðugrar fíkni­efna­notk­unar“ Jóhann­esar hafi hann skaðað alvar­lega samn­inga sem gerðir voru milli Samherja og kvóta­rétt­hafa í Namibíu. Hann hafi líka ítrekað þurft að borga trygg­ingu til að losa hann úr fang­elsi. Þetta hafi hann gert, að því er fram kemur í frétt New Era, vegna þess að það var hluti af þeirri vinnu sem hann gerði fyrir Samherja. Vinnu sem hann hafi fengið greitt fyrir.

Sak­sókn­ari mót­mælti þeirri mynd sem Fitty dró upp af Jóhann­esi. Hann verður áfram í vitna­stúkunni í dag en gær­dag­ur­inn var að miklu leyti helg­aður spurn­ingum frá verj­endum hans.

Rétt­ar­höldin halda áfram næstu daga. Í mál­inu, sem hefur marga anga, eru m.a. tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar í Namibíu ákærðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár