Fitty segir milljónirnar hafa verið ráðgjafagreiðslur frá Samherja

Síðustu greiðsl­urnar sem Tamson „Fitty“ Hatuikulipi seg­ist hafa fengið fyrir að veita Samherja ráð­gjöf bár­ust honum í sept­em­ber 2019. Fitty sagði sína hlið á málum fyrir dómi í gær.

Tamson „Fitty“ Hatuikulipi.
Tamson „Fitty“ Hatuikulipi.

Millj­ón­irnar sem streymdu inn á reikn­inga fyr­ir­tækja í eigu Tamson „Fitty“ Hatuikulipi á árunum 2012 og 2019 voru vegna ráð­gjafa­starfa fyrir Samherja. Upp­hæð­irnar námu yfir 700 millj­ónum króna á núvirði og voru greiddar af Mermaria Seafood, namibísku félagi Samherja. „Fitty“ seg­ist svo sjálfur hafa séð um að greiða frænda sínum James Hatuikulipi, stjórn­ar­for­manni rík­is­út­gerð­ar­innar, fyrir sína aðstoð. Ráð­gjafa­störf þeirra frænda fólust í því að sann­færa hand­hafa hrossa­makríl­skvóta um að semja við Samherja um nýt­ingu rétt­ind­anna.

Þetta er meðal þess sem Tamson „Fitty“ Hatuikulipi, tengda­sonur Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu og frændi James Hatuikulipi, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns rík­is­út­gerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Fischor, sagði fyrir dómi í Windhoek, höf­uð­borg Namibíu. í gær. Hann ásamt fjölda ann­arra er ákærður fyrir spill­ingu í tengslum við málið sem hér á landi er ýmist kallað Sam­herj­a­málið eða Namib­íu­málið.

[adspot]

Málið, sem snýst um meinta skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti Samherja og tengdra aðila, hófst með umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazzera í nóv­em­ber árið 2019 um hvernig við­skipta­hættir Samherja í Afríku, nánar til­tekið í Namibíu og Angóla, voru árin á undan er fyr­ir­tækið náði undir sig mjög verð­mætum hrossa­makríl­skvóta í lönd­unum. Samkvæmt umfjöll­un­inni var það gert með mútu­greiðslum til ráða­manna og ann­arra manna úr þeirra nán­asta hring. Upp­haf­lega var sagt að þær hefðu numið 1,4 millj­arði króna hið minnsta og hófust með því að reiðufé var afhent í íþrótta­töskum en tóku svo á sig fag­legri mynd og fóru fram í gegnum milli­færslur á reikn­inga í Dúbaí.

Hatuikulipi var hand­tek­inn það sama ár og hefur verið í fang­elsi síðan. Hann leit­ast nú eftir því að verða sleppt úr haldi gegn trygg­ingu í ljósi nýrra gagna sem hann seg­ist hafa lagt fyrir dóm­ar­ann. Vitn­is­burður hans er rak­inn ítar­lega í frétt namibíska fjöl­mið­ils­ins New Era.

Hatuikulipi seg­ist hafa hitt Jóhannes Stef­áns­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Samherja í Namibíu, á hót­eli í Windhoek árið 2011. Jóhannes hafi sagt honum að Samherji vildi hefja útgerð í Namibíu og væri að leita að sam­starfs­að­ilum í land­inu. Jóhannes hafi svo lýst fjár­hagskröggum sem hann væri í vegna áfengis- og fíkni­efna­neyslu og að hann væri að leita leiða til að bæta mann­orð sitt.

Jóhannes hafi svo kynnt hann síðar fyrir tveimur öðrum yfir­mönnum hjá Samherja, þeim Ingvari Júl­í­us­syni og Aðal­steini Helga­syni. Hann hafi verið spurður út í mögu­leika á því að kom­ast yfir fisk­veiði­heim­ildir í Namibíu og beð­inn um að kynna yfir­menn­ina fyrir rétt­höfum slíkra heim­ilda í von um sam­starf.

Hatuikulipi seg­ist hafa sam­þykkt að aðstoða þá. Þeirri ákvörðun hafi verið fylgt eftir með vilja­yf­ir­lýs­ingu milli hans og Kötlu Fishing, dótt­ur­fyr­ir­tækis Samherja, í des­em­ber árið 2011.

[adspot]

Í fyrstu segir hann hlut­verk sitt hafa verið að hafa uppi á kvóta­höfum og sann­færa þá um að ganga til sam­starfs við Samherja. Það hafi ekki verið auð­velt verk­efni, segir hann, því aðrir útgerð­ar­að­ilar hafi verið á reyna slíkt hið sama og „bak­talað“ Samherja.

Hatuikulipi seg­ist hafa leitað til frænda síns, James Hatuikulupi, sem þá var stjórn­ar­for­maður namibíska rík­is­út­gerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins. Í byrjun árs 2012 hafi hann svo kynnt frænda fyrir yfir­mönnum Samherja. Þeir hafi sagst þurfa að semja við að minnsta kosti þrjá hand­hafa afla­heim­ilda.

Hatuikulipi segir þá frændur hafa lagt mikið á sig og að end­ingu náð að sann­færa tvo slíka hand­hafa um að semja við Samherja um afla­heim­ild­irnar. Í febr­úar 2012 hafi fyrsta skip Samherja, mannað namibískri áhöfn, farið til veiða.

Í sept­em­ber árið 2013 hafi kvóta­haf­arnir tveir samið við Samherja til lengri tíma og árið 2014 seg­ist Hatuikulipi hafa tek­ist að sann­færa þriðja kvóta­hafann um að semja við Samherja.

Samherji hafi, í gegnum namibíska félagið Mermaria Seafood, greitt ráð­gjafa­fyr­ir­tækjum hans 76 millj­ónir namibískra doll­ara, rúm­lega 700 millj­ónir króna á núvirði, fyrir þessi störf hans. Hann hafi svo sjálfur greitt frænda sínum James fyrir sitt fram­lag. Síðasta greiðslan frá Samherja hafi verið gerð í sept­em­ber árið 2019.

[links]Jóhannes hafi einnig beðið hann um að leita á ný mið. Hafi hann þá leitað til manns sem þekkti vel til sjáv­ar­út­vegs­ins í nágranna­rík­inu Angóla. Í kjöl­far þess hafi Samherji tryggt sér samn­inga við kvóta­hafa þar í landi.

Hatuikulipi er ásamt öðrum, m.a. tveimur fyrr­ver­andi ráð­herrum Namibíu, ákærður fyrir fjölda meintra brota á lögum um spill­ingu, m.a. pen­inga­þvætti og skattaund­an­skot. Ákæru­valdið telur að þeir hafi þegið mútur fyrir að tryggja Samherja aðgang að fisk­veiði­kvóta í Namibíu.

Rannsóknin á Íslandi

Málið er einnig rann­sakað hér á landi. Átta manns hið minnsta hafa haft rétt­ar­stöðu sak­born­ings við yfir­heyrslur hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara frá því að fyrsta lota þeirra hófst sum­arið 2020. Á meðal þeirra er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja.

Aðrir sem kall­aðir hafa verið inn til yfir­heyrslu og fengið stöðu sak­born­ings við hana eru Ingólfur Pét­urs­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Sam­herja í Namibíu,Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Sam­herja á Kýp­ur, Arna McClure, yfir­lög­fræð­ingur Sam­herja og ræð­is­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árna­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­herja í Namib­íu, Aðal­steinn Helga­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­herja í Namib­íu, Jón Óttar Ólafs­son, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður sem starfað hefur fyrir Sam­herja árum sam­an­, og upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son.

Þau brot sem grunur er um að hafi verið framin í Sam­herj­a­mál­inu varða 109. og 264. grein almennra hegn­ing­ar­laga um mút­ur. Í fyrr­nefndu grein­inni segir að hver sem gef­ur, lofar eða býður opin­berum starfs­manni, gjöf eða annan ávinn­ing, sem hann á ekki til­kall til, í þágu hans eða ann­arra, til að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans skal sæta fang­elsi allt að fimm árum eða sektum ef máls­bætur eru fyrir hendi. „Sömu refs­ingu skal sá sæta sem beinir slíku að erlendum opin­berum starfs­manni, erlendum kvið­dóm­anda, erlendum gerð­ar­manni, manni sem á sæti á erlendu full­trúa­þingi sem hefur stjórn­sýslu með hönd­um, starfs­manni alþjóða­stofn­un­ar, manni sem á sæti á þingi slíkrar stofn­unar eða á opin­beru lög­gjaf­ar­þingi í erlendu ríki, dóm­ara sem á sæti í alþjóð­legum dóm­stóli eða starfs­manni við slíkan dóm­stól, í því skyni að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans.“

Í 264. grein segir að hver sem tekur við, nýtir eða aflar sér eða öðrum ávinn­ings af broti á hegn­ing­ar­lögum eða af refsi­verðu broti á öðrum lög­um, eða umbreytir slíkum ávinn­ingi, flytur hann, send­ir, geym­ir, aðstoðar við afhend­ingu hans, leynir honum eða upp­lýs­ingum um upp­runa hans, eðli, stað­setn­ingu eða ráð­stöfun ávinn­ings skuli sæta fang­elsi allt að sex árum.

Þá eru einnig til rann­sóknar meint brot á ákvæðum kafla XXXVI í almennum hegn­ing­ar­lög­um, sem fjalla um auðg­un­ar­brot. Við brotum á ákvæðum þess kafla liggur fang­els­is­refs­ing sem getur verið allt að þrjú til sex ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár