Samherji „hafnar alfarið ásökunum um mútugreiðslur“

Starfs­hættir Samherja í Namibíu, sem voru að frum­kvæði og undir stjórn Jóhann­esar Stef­áns­sonar, voru látnir við­gang­ast allt of lengi og hefði átt að stöðva fyrr. Þetta kemur fram í „yfir­lýs­ingu og afsökun“ frá Samherja.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, ásamt samstarfsaðilum frá Namibíu er þeir komu í heimsókn til Íslands.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, ásamt sam­starfs­að­ilum frá Namibíu er þeir komu í heim­sókn til Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er ein­dregin afstaða mín og Samherja að engin refsi­verð brot hafi verið framin í Namibíu af hálfu fyr­ir­tækja á okkar vegum eða starfs­manna þeirra ef undan er skilin sú hátt­semi sem fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hefur bein­línis játað og við­ur­kennt,“ er haft eftir Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja hf., í ítar­legri yfir­lýs­ingu sem birt er á vef fyr­ir­tæk­is­ins. „Engu að síður ber ég sem æðsti stjórn­andi Samherja ábyrgð á því að hafa látið þau vinnu­brögð, sem þar voru við­höfð, við­gang­ast,“ heldur Þor­steinn áfram. „Hefur það valdið upp­námi hjá starfs­fólki okkar, vinum, fjöl­skyldum, sam­starfs­að­ilum, við­skipta­vinum og víðar í sam­fé­lag­inu. Mér þykir mjög leitt að svo hafi farið og bið ég alla þá sem hlut eiga að máli, ein­læg­lega afsök­unar á mis­tökum okkar, bæði per­sónu­lega og fyrir hönd félags­ins. Nú reynir á að tryggja að ekk­ert þessu líkt end­ur­taki sig, við munum sann­ar­lega kapp­kosta að svo verði.“

[adspot]

Yfir­lýs­ing og „afsökun frá Samherja“ er yfir­skrift til­kynn­ing­ar­innar sem birt var á vef fyr­ir­tæk­is­ins í morgun. Í henni segir að leit­ast verði við að gera grein fyrir sjón­ar­miðum Samherja í „svoköll­uðu Namib­íu­máli“ og jafn­framt gera grein fyrir nokkrum helstu nið­ur­stöðum úr rann­sókn norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein. Fyrir all­löngu stóð til að kynna þær nið­ur­stöður fyrir íslenskum stjórn­völdum en „af alkunnum ástæðum“ hefur því ítrekað verið frestað, segir í yfir­lýs­ing­unni og að nú þyki rétt að gera grein fyrir athuga­semdum Samherja varð­andi helstu nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar.

Rannsókn Wikborg Rein er hins vegar ekki birt í heild með yfir­lýs­ing­unni.

[links]Í Namibíu eru nú rekin refsi­mál gegn all­mörgum Namib­íu­mönnum sem sak­aðir eru um ýmis afbrot, þar á meðal að hafa þegið mútur frá starfs­mönnum Samherja. Engir starfs­menn Samherja eða félög í eigu Samherja eru á meðal ákærðra í þessum málum, segir í yfir­lýs­ing­unni en að hins vegar sé jafn­framt rekið kyrr­setn­ing­ar­mál gagn­vart nokkrum aðilum þar sem kraf­ist er kyrr­setn­ingar á þeim eignum sem m.a. félög Samherja eiga í land­inu. Hinn 31. maí síð­ast­lið­inn skil­uðu for­svars­menn Samherja form­legri málsvörn vegna þess máls. „Er það í fyrsta sinn sem Samherji eða félög tengd Samherja fá tæki­færi til að leggja fram gögn og taka til varna fyrir opin­berum dóm­stólum gagn­vart þeim þungu ásök­unum sem á félagið hafa verið bornar. Hafa þau gögn verið gerð opin­ber og eru öllum aðgengi­leg á vef namibíska dóm­stóls­ins.“

Ekki alltaf vandað nógu vel til í rekstri

Í yfir­lýs­ing­unni kemur svo fram að rann­sókn Wikborg Rein hafi leitt í ljós „ákveðin atriði í rekstri félaga sem tengj­ast Samherja í Namibíu sem vöktu spurn­ingar um vand­aða við­skipta­hætti og gátu aukið laga­lega áhættu sem ekki hafði verið gætt nægi­lega vel að í starf­semi þeirra“. Fram kemur að það sé afstaða Samherja að „ekki virð­ist alltaf hafa verið vandað nægi­lega til verka í rekstr­inum“ og ekki gætt þeirra ábyrgu sjón­ar­miða sem stjórn­endur Samherja hafi „ætíð haft að leið­ar­ljósi“, bæði hér á landi og erlendis. Í þessu ljósi hafi farið fram umfangs­mikil vinna innan Samherja við að koma á fót ítar­legu kerfi fyrir stjórn­ar­hætti og reglu­vörslu, að vand­aðri erlendri fyr­ir­mynd, sem miða að því „að tryggja að mis­tök af því tagi sem gerð voru end­ur­taki sig ekki. Reglur þessar voru sam­þykktar af stjórn Samherja í árs­lok 2020“.

Í yfir­lýs­ingu Samherja segir að helstu álita­efnin í skýrslu Wikborg Rein varði sam­skipti um veiði­rétt­indi sem aflað var með samn­ingum við namibíska rík­is­fyr­ir­tækið Fischor og við félagið Namgomar Namibia sem réð yfir afla­heim­ildum á grund­velli tví­hliða samn­inga stjórn­valda í Namibíu og Angóla. Mála­ferlin sem vísað er í hér að framan standa nú yfir í Namibíu vegna þar­lendra aðila sem tengd­ust þessum tveimur félögum.

Vakti spurningar um vandaða viðskiptahætti

Samherji segir að í skýrslu Wikborg Rein komi fram að félög tengd Samherja hafi notið ráð­gjafar inn­lendra ráð­gjafa í Namibíu til að öðl­ast almenna þekk­ingu á namibískum sjáv­ar­út­vegi og mark­aðs­að­stæðum í land­inu, þar með talið hvernig háttað væri aðgangi að afla­heim­ildum og veiði­rétt­indum. Nokkrir þess­ara ráð­gjafa höfðu póli­tísk tengsl og einn af þeim, sem leitað var til, var síðar skip­aður stjórn­ar­for­maður rík­is­út­gerð­ar­innar National Fishing Corporation of Namibia (Fishcor). Hann og aðilar honum tengdir, hafi veitt félögum tengdum Samherja þjón­ustu á grund­velli ráð­gjaf­ar­samn­ings.

„Ein af meg­in­nið­ur­stöðum rann­sóknar Wikborg Rein er sú að ráðn­ing þess­ara ráð­gjafa, og það að láta óátalda aðkomu hátt­settra aðila í stjórn­kerfi Namibíu að ráð­gjöf þeirra, hafi vakið spurn­ingar um vand­aða við­skipta­hætti og aukið áhættu sem ekki var gætt nægi­lega vel að í starf­semi félaga sem tengj­ast Samherja í Namibíu,“ stendur í yfir­lýs­ingu Samherja en að þrátt fyrir að rann­sóknin hafi sýnt fram á að „óum­deild og raun­veru­leg ráð­gjöf“ hafi verið veitt af hálfu ráð­gjaf­anna í Namibíu í gegnum árin, hafi þeir fengið greiðslur án grein­ar­góðra skýr­inga og fylgi­skjala vegna veittrar þjón­ustu.

„Samherji hafnar alfarið ásök­unum um mútu­greiðslur en tekur undir þá gagn­rýni að við þær aðstæður sem uppi voru hefði átt að gæta betur að því hvernig greiðslur voru fram­kvæmdar, hverjir tóku við þeim og á hvaða grund­velli, hverjir höfðu heim­ildir til að gefa fyr­ir­mæli um þær og hvert þær skyldu ber­ast. Einnig er ljóst að samn­ingar á bak við greiðsl­urnar hefðu átt að vera nákvæmir og form­legir.“

Þá segir Samherji það nið­ur­stöðu skýrsl­unnar að fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri yfir félög­unum í Namibíu hafi tekið út „veru­legar fjár­hæðir í reiðufé af reikn­ingum félag­anna, án nokk­urra eða við­hlít­andi skýr­inga. Margt bendir til þess að pen­inga­út­tekt­irnar hafi verið not­aðar með órétt­mætum hætti. Samherji vekur athygli á því að fyrir liggur við­ur­kenn­ing fram­kvæmda­stjór­ans fyrr­ver­andi á þess­ari hátt­semi og að því er virð­ist margs konar annarri brota­starf­semi á hans vegum þar sem félögum Samherja var beitt“.

Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjór­inn, sem Samherji vitnar hér til, er Jóhannes Stef­áns­son. Hann hætti störfum fyrir fyr­ir­tækið árið 2016.

Í yfir­lýs­ingu Samherja er einnig fjallað um við­skiptin við Namgomar Namibia. Þar segir að á árunum 2014-2019 hafi félög tengd Samherja einnig stundað veiðar í Namibíu á grund­velli afla­heim­ilda sem úthlutað var af stjórn­völdum til einka­fyr­ir­tæk­is­ins Namgomar Pesca (Pty) Ltd. (Namgomar Namibia). Rannsókn Wikborg Rein leiddi að sögn Samherja í ljós að opin­berir emb­ætt­is­menn bæði í Namibíu og Angóla, þar með talið þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herrar beggja landa, störf­uðu með öðrum ein­stak­lingum sem voru þeim tengdir í Namibíu og Angóla, að stofnun félags­ins Namgomar Namibia. Að baki því félagi voru tvö félög, eitt frá Angóla og annað frá Namibíu. Þessir ein­stak­lingar bjuggu þannig um hnút­ana að Namgomar Namibia fengi úthlutað afla­heim­ildum sem byggð­ist á tví­hliða fisk­veiði­samn­ingi milli ríkj­anna. Félög tengd Samherja hafi síðan leigt veiði­rétt á grund­velli þess­ara afla­heim­ilda. „Þeir ein­stak­lingar sem voru í aðstöðu til að úthluta afla­heim­ild­unum og nýt­ing­ar­rétti vegna þess­ara sömu heim­ilda virð­ast hafa haft af því per­sónu­lega hags­muni sem raun­veru­legir eig­endur Namgomar Namibia. Engar vís­bend­ingar eru um að stjórn­endur Samherja hafi vitað um þessa upp­bygg­ingu raun­veru­legs eign­ar­halds á félag­inu Namgomar Namibia,“ segir í yfir­lýs­ingu Samherja um þennan lið máls­ins.

Í yfir­lýs­ing­unni er tekið fram að eftir að fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra dótt­ur­fé­laga Samherja hafði verið sagt upp störfum hafi komið í ljós að hann hafði tekið þátt í að greiðslur fyrir veiði­rétt­indi höfðu verið greiddar beint til ofan­greindra aðila eða ann­arra sem voru þeim nátengdir. Dæmi um slíka til­högun greiðslna fyrir veiði­rétt­indi á grund­velli afla­heim­ilda Namgomar Namibia voru greiðslur til félags­ins Tunda­vala Invest Ltd. sem skráð er í Dúbaí. Þá segir að rann­sóknin Wikborg Rein hafi einnig leitt í ljós að starfs­menn Samherja og dótt­ur­fé­laga, aðrir en fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri dótt­ur­fé­lag­anna, hafi staðið í þeirri trú að stærsti hluti af þeim greiðslum, sem ekki fóru beint til Namgomar Namibia, hafi verið fyrir afla­heim­ildir og að hluti greiðsln­anna hafi verið vegna ráð­gjafar. „Það er skiln­ingur Samherja að eins og greiðsl­urnar horfðu við þessum starfs­mönnum verður laga­legt rétt­mæti þeirra ekki dregið í efa.“

Samherji hafnar „órök­studdum full­yrð­ingum um að tví­hliða samn­ingur milli Namibíu og Angóla hafi verið gerður að und­ir­lagi Samherja eða dótt­ur­fé­laga, til þess að afla þeim ótil­hlýði­legra hlunn­inda“. Samn­ingur land­anna hafi átt sér langan aðdrag­anda og byggður á „gagn­kvæmum hags­munum þeirra og ára­langri vinnu“.

Í yfir­lýs­ing­unni ítar­legu er bent á að eftir að nýir stjórn­endur tóku við störfum hjá félögum Samherja í Namibíu varð ljóst að „óreiða ríkti um fjöl­margt í rekstr­inum“, þar á meðal um þessar greiðslur fyrir veiði­rétt­indi. Til dæmis hafi ekki legið fyrir form­leg gögn eða réttur frá­gangur á mörgum greiðslum og það því tekið nýja stjórn­endur langan tíma að átta sig á þeim samn­ingum sem gerðir höfðu verið í tíð fyrr­ver­andi Jóhann­esar. „Þegar nýjum stjórn­endum varð ljóst hvernig þeim samn­ingum var háttað var samið um að öllum veiði­rétt­ar­greiðslum sem farið höfðu til Dúbaí yrði hætt og lauk þeim í árs­byrjun 2017. Fjórar greiðslur vegna ráð­gjafa­þókn­ana voru greiddar á árinu 2018 og í árs­byrjun 2019.“

Greiddu í góðri trú

Á árunum 2014-2019 stund­uðu félög tengd Samherja ásamt mörgum öðrum í Namibíu veiðar á grund­velli afla­heim­ilda frá rík­is­út­gerð­inni Fishcor. Rannsókn Wikborg Rein hafi leitt í ljós að hluti greiðslna vegna samn­inga við Fishcor hafi verið greiddur inn á reikn­inga í eigu þriðja aðila í tengslum við svo­kallað Fischor-styrkt­ar­verk­efni rík­is­stjórnar Namibíu. „Rann­sóknin hefur leitt í ljós að þrátt fyrir fyr­ir­mæli frá þar til bærum aðilum á vegum Fischor, hafi greiðslur fyrir veiði­heim­ildir, sem úthlutað hafði verið í styrkt­ar­verk­efni rík­is­stjórn­ar­innar, ekki alltaf verið studdar reikn­ingum né haft beina teng­ingu við ákveðið styrkt­ar­verk­efni stjórn­valda. Samherji áréttar að starfs­menn Sam­herj­a­fé­lag­anna drógu þessi fyr­ir­mæli ekki í efa og greiddu sam­kvæmt þeim í góðri trú um rétt­mæti þeirra.“

Óreiða og ruglingur hjá starfsmönnum

Þá segir í yfir­lýs­ingu Samherja að rann­sókn Wikborg Rein hafi leitt í ljós að greiðslur til ráð­gjaf­anna, til Namgomar Namibia, Tunda­vala Invest og Fishcor hafi almennt verið óljósar og oft á tíðum inntar af hendi án und­ir­liggj­andi samn­ings milli aðila. „Þessi skortur á form­legum samn­ingum, og ófull­nægj­andi fyr­ir­mæli sem farið var eftir, um greiðslur til fyr­ir­tækja og inn á reikn­inga sem voru ekki aðilar að við­kom­andi samn­ingum, olli óreiðu og rugl­ingi hjá starfs­mönnum félaga sem tengd­ust Samherja auk þess sem það var til þess fallið að tefla orð­spori félag­anna í tví­sýnu og auka áhættu rekstri þeirra.“

Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að þetta fyr­ir­komu­lag á við­skiptum sem lýst er hér að ofan hafi verið „sett á lagg­irnar að frum­kvæði og undir sjálf­stæðri stjórn fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra yfir starf­semi Samherja í Namibíu. Tölvu­póst­sam­skipti í kjöl­far starfs­loka hans árið 2016, sem voru hluti af rann­sókn­inni, varpa ljósi á óásætt­an­lega hátt­semi hans á meðan hann bar ábyrgð á rekstr­inum. Þá lýsa þessi gögn ringul­reið meðal starfs­fólks Samherja þegar það, eftir brott­hvarf fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra, reyndi að ná utan um starf­sem­ina sem var rugl­ings­leg og sum­part með öllu óljós“.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að smám saman hafi starfs­mönnum tek­ist að ná tökum á starf­sem­inni í Namibíu, „skilja og bæta úr því sem miður fór og að lokum leggja hana niður. Það er hins vegar ljóst að þá starfs­hætti, sem hér hafa verið raktir, hefði átt að stöðva mun fyrr. Þeir voru því miður látnir við­gang­ast allt of lengi“.

Samherji áréttar í yfir­lýs­ing­unni sinni að ekki verði séð að aðrir starfs­menn en fram­kvæmda­stjór­inn fyrr­ver­andi hafi bakað sér sak­næma ábyrgð í störfum sínum.

Að end­ingu í yfir­lýs­ing­unni fjallað um við­skipti Samherja í Færeyjum. „Í ljós hefur komið að mis­tök voru gerð í rekstri okkar sem tengd­ust alþjóð­legri skipa­skrá sem haldin er í Færeyjum. Ekki liggur enn fyrir af neinni nákvæmni hver þau mis­tök eru en Samherji hefur greitt trygg­ing­ar­fjár­hæð sem verður til staðar þegar nið­ur­staða er fengin. Við viljum leið­rétta þau mis­tök sem þarna voru gerð og biðj­ast vel­virð­ingar á þeim. Vonandi fæst nán­ari nið­ur­staða í þessi mál fljótt og greið­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár