Snjóflóð falla á Flateyri: Flóðbylgja fór yfir höfnina og stúlku bjargað úr snjóflóði

Bátar eru sokknir eftir að snjó­flóð féll og orsak­aði flóð­bylgju á höfn­ina. Annað snjó­flóð fór að hluta yfir snjó­flóða­varna­garða á hús efst í byggð­inni. Ung­lings­stúlku var bjargað úr snjó­flóð­inu.

Snjóflóð falla á Flateyri: Flóðbylgja fór yfir höfnina og stúlku bjargað úr snjóflóði
Mynd af snjó­flóð­inu Mynd af vett­vangi fyrir mið­nætti í kvöld. Mynd: Önundur Pálsson

Tvö veru­lega stór snjó­flóð féllu við Flateyri undir mið­nætti í kvöld.

Annað snjó­flóðið er talið hafa fallið í sjó. Talið er að flóð­bylgja vegna snjó­flóðs­ins hafi orsakað tjónið. Fleiri en einn bátur er sokk­inn.

Snjó­flóða­varnir virð­ast hafa stýrt snjó­flóð­unum frá byggð­inni. Í öðru til­fell­inu fór snjó­flóðið hins vegar að hluta yfir varn­ar­garða og á hús efst í byggð­inni, við Ólafstún, þar sem fjöl­skylda er búsett. Meðlimir úr björg­un­ar­sveit­inni á Flateyri grófu ung­lings­stúlku upp úr snjó­flóð­inu, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, og var hún köld en heil heilsu.

Ófært er um veg­inn til Flat­eyrar vegna snjó­þyngsla. Íbúarnir hafa því verið ein­angr­aðir. Snjó­bylur tor­veldar yfir­sýn og áttu íbúar erfitt með að átta sig á aðstæðum, enda féllu tvö snjó­flóð með skömmu milli­bili úr sitt hvoru gil­inu, Skolla­hvilft og Innra-Bæj­ar­gili. Árið 1995 féll mann­skætt snjó­flóð úr Skolla­hvilft, sem kost­aði 20 manns lífið, en í kjöl­farið voru reistar umfangs­meiri snjó­flóða­varnir. Langt er síðan svo mik­ill snjór hefur verið í bænum. Drunur heyrð­ust um þorpið þegar flóðin féllu. Íbúar voru slegnir óhug, ekki síst þegar óvíst var um afdrif fólks og skemmdir, en hugur margra leit­aði til baka til ástands­ins þegar snjó­flóðið féll fyrir tæpum 25 árum.

Tugir björg­un­ar­sveit­ar­manna voru á leið sjó­leiðis með varð­skipi frá Ísafirði í nótt og voru íbúar beðnir að halda kyrru fyrir heima.

Mikill við­bún­aður var eftir að flóðið féll og hóp­að­ist fólk að til hjálpar.

Allir bátar sem lágu við smá­báta­höfn­ina losn­uðu frá land­festum og sjór fór yfir aðal­göt­una, Hafn­ar­stræti. Flestir þeirra virð­ast skemmdir eða ónýtir.

Eftir flóð­bylgj­unaFlóð­bylgjan hrifs­aði með sér smá­báta­flota Flat­eyr­inga.
Höfnin á FlateyriEitt skip er enn á floti við aðal­höfn­ina.

Þá féll einnig stórt snjó­flóð í Súg­anda­firði, til móts við Suð­ur­eyri, sem olli flóð­bylgju.

Uppfært kl. 01.23:

Frétta­til­kynn­ing frá Land­helg­is­gæsl­unni: „Varð­skipið Þór er nú á leið frá Ísafirði til Flat­eyrar með 35 björg­un­ar­sveit­ar­menn um borð auk áhafnar varð­skips­ins. Þór hefur verið til taks fyrir vestan síðan á fimmtu­dag vegna veð­urs. Varð­skipið fór frá Ísafirði klukkan 00:40 en gert er ráð fyrir að það verði komið á Flateyri á þriðja tím­anum í nótt. Þá hefur áhöfn þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar verið kölluð út og fer sömu­leiðis vestur. Gert er ráð fyrir að tveir sjúkra­flutn­inga­menn frá Slökkvi­liði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins farið með þyrl­unni.“

Fréttatilkynning frá Almannavörnum:

Uppfærð frétta­til­kynn­ing frá Sam­hæf­ing­ar­stöð almanna­varna:

Fólk á Flateyri er beðið um að halda kyrru fyrir heima að svo stöddu.

Íbúar á Suð­ur­eyri eru beðnir um að halda sig frá höfn­inni.

Verið er að rýma ein­hver hús.

Ekki er vitað um alvar­leg slys á fólki.

 Eitt snjó­flóðið fór ekki langt frá a.m.k. einu húsi en ekki er talið að neinn sé alvar­lega slas­aður. Ekki er vitað til þess að fleiri hafi orðið fyrir snjó­flóð­unum á þess­ari stundu.

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar er á leið til Flat­eyrar.

Aðgerð­ar­stjórn er að störfum á Ísafirði.

Varð­skipið Þór sem var statt á Ísafirði er einnig á leið til Flat­eyrar.

Frá höfn­inni á FlateyriSnjóflóð og/eða flóð­bylgja hefur sökkt bátum í höfn­inni.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Snjóflóð á Flateyri

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár