Mynd: Önundur Pálsson

Svona er umhorfs á Flateyri eftir flóðin

Tvö „mjög stór“ snjó­flóð féllu á Flateyri. Snjó­flóða­varnir vörðu byggð­ina að mestu, en bæði flóðin vekja spurn­ingar hjá Veð­ur­stofu Íslands.

Snjó­flóðið sem féll úr Skolla­hvilft yfir Flateyri í gær­kvöldi og olli tjóni á báta­flota bæj­ar­ins „virð­ist hafa verið mjög stórt“, að mati Veð­ur­stofu Íslands.

Hitt snjó­flóðið sem féll, úr Innra-Bæj­ar­gili og lenti hinum megin í bænum, og fór yfir snjó­flóða­varn­irnar, veldur því að Veð­ur­stofan mun fara yfir gögn og mats­ferla, þar sem veður þótti ekki gefa til­efni til þess að rýma svæðið.

Aðstæður ekki metnar hættulegar

Ung­lings­stúlka grófst undir í flóð­inu, en var bjargað af heima­mönnum í björg­un­ar­sveit­inni Sæbjörgu. Húsið er illa farið, eins og sést af með­fylgj­andi myndum. 

„Snjó­flóða­vakt Veð­ur­stof­unnar mat snjó­flóða­hætt­una í gær ekki svo að aðstæður væru þannig“

„Snjó­flóða­vakt Veð­ur­stof­unnar mat snjó­flóða­hætt­una í gær ekki svo að aðstæður væru þannig. Veð­ur­ham­urinn í þess­ari snjó­flóða­hr­inu var ekki jafn mik­ill og í hrin­unni árið 1995 og því voru aðstæður metnar skárri nú. Þegar þess­ari hrinu slotar þarf að greina veð­ur­að­drag­anda hennar og upp­lýs­ingar um þessi og önnur flóð sem fallið hafa í henni til þess að geta sagt nánar til um ástæður þess að svo stór flóð féllu nú.“

Legið fyrir að flætt geti yfir varnargarða

Legið hefur fyrir í skýrslum og mati á snjó­flóða­hættu að flóðin geti náð yfir varn­ar­garða þegar þau eru stærst.

„Flóðið úr Innra-Bæj­ar­gili kallar á mat á virkni varn­ar­garðs­ins og ýtar­legar mæl­ingar á flóð­unum sem féllu í gær. Mæla þarf hversu mikið rann yfir garð­inn og hvernig flóð­tungan þar liggur til þess að sjá betur hvernig flóðið féll á garð­inn og hversu stór hluti þess rann yfir hann. Einnig þarf að mæla þykkt og rúm­mál flóðs­ins og kanna hvort flæddi yfir garð­ana ofar í hlíð­inni. Þetta verður gert strax og aðstæður leyfa,“ segir í grein­ingu snjó­flóða­vaktar Veð­ur­stofu Íslands.

Eyðileggingin blasir við

Stundin birtir hér myndir af eyði­legg­ing­unni eins og hún blasir við eftir snjó­flóðin. Mynd­irnar tók Önundur Pálsson, íbúi á Flateyri.

Á mynd­unum sést báta­floti Flat­eyr­inga liggja í höfn­inni, en snjó­flóða­varnir mið­uð­ust við að verja byggð­ina en ekki höfn­ina. „Varn­ar­garð­ur­inn beindi því frá byggð­inni og til sjávar, en garð­ur­inn er ekki mið­aður við að verja hafn­ar­svæðið.“

Enn snjóflóðahætta 

Hér eru nýj­ustu fréttir frá Almanna­vörnum:

Uppfært kl. 15.15: „Enn er snjó­flóða­hætta á Vest­fjörðum og óvissu­stig á norð­an­verðum Vest­fjörðum og hættu­stig á Ísafirði. Flat­eyr­ar­vegur og veg­ur­inn um Súða­vík­ur­hlíð eru lok­aðir vegna snjó­flóða­hættu. Í und­ir­bún­ingi er flutn­ingur á hjálp­ar­liði almanna­varna vestur til að styðja við heima­menn. Athugað verður með flug til Ísa­fjarðar nú í eft­ir­mið­dag­inn. Hvasst hefur verið á Vest­fjörðum í morgun og gert er ráð fyrir að smá saman dragi úr ofan­hríð­inni. Gert er ráð fyrir 15-17 m/s á fjall­vegum síð­degis og enn er skaf­renn­ingur. Lægir enn frekar í kvöld og horfur eru á skap­legu veðri á morgun, 5-10 m/s og verður að mestu élja­laust. Frekari upp­lýs­ingar um veður og færð má nálg­ast á vef­síðu Veð­ur­stof­unnnar vedur.is og hjá Vega­gerð­inni.“

Faðir stúlkunnar á leið vestur 

Uppfært kl. 16:00.

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar var kölluð út í sjúkra­flug vestur á Flateyri og Ísafjörð. Til stóð að sækja allt að þrjá á Flateyri til að koma þeim undir lækn­is­hendur. Vegna ófærðar síð­ustu daga hafa þeir ekki kom­ist frá bænum. Um leið átti að sækja einn til Ísa­fjarðar og flytja hann á sjúkra­hús í Reykja­vík. 

Á leið vestur var faðir stúlkunnar sem grófst undir í snjó­flóð­inni einnig um borð í þyrl­unni. Honum var boðið að fara með svo hann gæti hitt dóttur sína. Gert er ráð fyrir að þyrlan lendi fyrir vestan á fimmta tím­anum í dag. 

Ástandið í höfn­inniÓttast er að allir bát­arnir séu ónýtir.
Ólafstún 14Ung­lings­stúlka lenti undir flóð­inu í her­bergi sínu fjalls­megin í hús­inu. Móðir hennar og tvö börn komust út af sjálfs­dáðum.
Þak­skemmdir á Ólafs­túni 14
Snjó­flóða­varnir í bak­sýnHæð snjó­flóða­varna, sem flóðið sprakk yfir, sést á mynd­inni.
Heimilið fariðFjögurra manna fjöl­skylda bjó í hús­inu. Það tók björg­un­ar­sveit­ar­menn 40 mín­útur að grafa ung­lings­stúlku út úr her­bergi sínu, þar sem hún hafði legið í rúm­inu í fóst­ur­stell­ingu undir sæng og snjó­fargan.
Varðskip í bak­sýnÍ for­grunni sést flot­bryggjan, sem færð­ist yfir höfn­ina við flóðið.
Yfirsýn yfir höfn­inaUmmerki snjó­flóðs og flóð­bylgju eru á vett­vangi, en enn á eftir að meta hvað raun­veru­lega gerð­ist.
Smábátur í fjör­unniHér sést hvernig kraftur flóð­anna feykti trillu upp í fjöru.
SokkinnBátur sokk­inn í krapa og sjó. Fiskikar sést fyrir miðið.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Snjóflóð á Flateyri

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár