Stuðningur berst björgunarsveitinni á Flateyri alls staðar að af landinu

Magnús Einar Magn­ús­son, for­maður Sæbjargar, seg­ist gátt­aður og meyr yfir stuðn­ingnum sem muni gagn­ast sveit­inni til kaupa á nauð­syn­legum bún­aði. Myndband sýnir björg­un­ar­sveit­ar­fólk að störfum eftir flóðin.

Formaður björg­un­ar­sveit­ar­innar Sæbjargar á Flateyri seg­ist gátt­aður á þeim mikla stuðn­ingi sem að sveitin hafi fengið alls staðar að af land­inu eftir vask­lega fram­göngu hennar eftir snjó­flóðin sem féllu á þorpið. Í með­fylgj­andi mynd­bandi, neðst í frétt­inni, má sjá björg­un­ar­sveit­ar­menn að störfum á fyrsta sól­ar­hring eftir flóðin. Björg­un­ar­sveit­ar­menn fundu og björg­uðu fjórtán ára stúlku, Ölmu Sóley Ericsdóttur, úr öðru snjó­flóð­inu sem féll á tólfta tím­anum á þriðju­dags­kvöld. Tók það liðs­menn sveit­ar­innar ekki nema um 40 mín­útur að ná Ölmu út. „Ég get eig­in­lega ekki lýst því, maður er hálf gátt­aður á þessum mikla stuðn­ingi. Ég er mjög þakk­látur og bara meyr yfir þessu, segir Magnús Einar Magn­ús­son, for­maður Sæbjargar.“ 

Alltaf með það í huga að flóð geti fallið

Magnús Einar Magn­ús­son

Um ár er síðan að haldin var björg­un­ar­sveita­ræf­ing á Flateyri þar sem við­brögð við snjó­flóði voru æfð, rústa­björgun og annað tengt. Magnús segir að það hafi gagn­ast mjög í vik­unni. „Maður er alltaf með þetta í hausnum. Síð­ast­lið­inn vetur lentu einmitt tveir björg­un­ar­sveit­ar­með­limir í snjó­flóði á Flat­eyr­ar­vegi, konan mín og dóttir voru í öðrum bílnum og vina­fólk okkar í hinum. Maður er þess vegna alltaf með þetta í huga.“

Flat­eyr­ar­vegur var loks opn­aður í gær eftir að þorpið hafði verið ein­angrað í tæpa viku en Magnús segir að honum hafi þó verið lokað aftur og hann síðan hafður opinn undir eft­ir­liti vegna þess að snjó­ruðn­ings­menn hafi séð stór snjó­flóð úti í firð­inum þegar þeir voru að ryðja. „Menn þorðu ekki að hafa veg­inn opinn fyrr en búið væri að grann­skoða í öll gil inni með firð­inum. Vegurinn var síðan opn­aður klukkan átta í morgun. Ég var að fara með börn í leik­skól­ann, það er í fyrsta skiptið sem skól­inn og leik­skól­inn eru opnir núna þannig að það má segja að lífið sé farið að nálg­ast sinn vana­gang hérna.“

„Það voru dæmi um fólk sem hafði ekki farið út úr húsi frá því síð­asta föstu­dag“

Magnús segir að heima­menn í björg­un­ar­sveit­inni Sæbjörgu hafi fengið lang­þráða hvíld í nótt þar sem þeir hafi getað sofið og safnað kröftum. Liðsauki sem barst af höf­uð­borg­ar­svæð­inu verið afskap­lega mik­il­vægur. „Það var afskap­lega gott að fá þessa menn sem komu að sunnan, með sér­hæf­ingu í rústa­björgun og fleiru. Þeir tóku yfir vett­vang­inn uppi í Ólafs­túni í gær fyrir okkur svo að við gátum verið í ýmsum verk­efnum, til að mynda að hjálpa fólki sem ekki hefur kom­ist út úr hús­unum sínum í viku eða svo. Það voru dæmi um fólk sem hafði ekki farið út úr húsi frá því síð­asta föstu­dag. Eins er spáð mjög mik­illi hláku á morgun sem gæti valdið miklum þyngslum á til dæmis þökum. Verkefni dags­ins verður því að hreinsa af þökum og aðstoða fólk við ýmis­legt til að reyna að forða slíku tjóni og eins vatns­tjóni.“

Mun gagnast sveitinni mjög

Áskorun gengur á nú víða á net­inu um að styrkja við björg­un­ar­sveit­ina Sæbjörgu eftir vask­lega fram­göngu þeirra og segir Magnús að stuðn­ing­ur­inn sé gíf­ur­legur. „Ég er bara meyr yfir þessu, þetta er svo svaka­legur stuðn­ingur, alls staðar að. Ég get eig­in­lega ekki lýst því, maður er hálf gátt­aður á þessum mikla stuðn­ing. Ég er mjög þakk­látur og meyr yfir þessu.“

„Maður er hálf gátt­aður á þessum mikla stuðn­ingi“

Magnús segir að fjár­hags­legi stuðn­ing­ur­inn sem sveitin hefur fengið síð­ustu daga muni gagnas mjög vel við kaup á tækjum og bún­aði. „Við höfum verið mjög vel búin af snjó­flóða­græjum, ýlum, stöngum og skóflum og svona. Við eigum flestan annan búnað en kannski bara eitt af öllu. Sjúkra­bör­urnar okkar fóru til dæmis með sjúk­lingnum yfir á Ísafjörð á mið­viku­dag­inn og þá áttum við ekki börur eftir hér á Flateyri. Þetta mun því gagn­ast okkur mjög. Við munum setj­ast niður þegar hlut­irnar fara að róast og kaupa það sem okkur vantar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Snjóflóð á Flateyri

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár