Fjölgar í hópi EGOT-verðlaunahafa

Jennifer Hudson varð í gær­kvöldi 17. mann­eskjan til að vinna alslemmu á stærstu verð­launa­há­tíð­unum í skemmt­ana­brans­anum á ferl­inum. Hildur Guðna­dóttir er í fámennum hópi þeirra sem ein­ungis vantar ein verð­laun til þess að klára EGOT.

Jennifer Hudson á rauða dregli Tony-verðlaunanna á sunnudagskvöld.
Jennifer Hudson á rauða dregli Tony-verð­laun­anna á sunnu­dags­kvöld. Mynd: EPA

Banda­ríska leik- og söng­konan Jennifer Hudson hlaut í gær­kvöldi Tony-verð­laun fyrir aðkomu sína að söng­leiknum A Strange Loop en Hudson var ein af fram­leið­endum söng­leiks­ins sem var val­inn besti söng­leikur árs­ins. Tony-verð­launin eru ein eft­ir­sótt­ustu sviðs­lista­verð­laun Banda­ríkj­anna og eru veitt þeim leik­sýn­ingum og söng­leikjum sem þykja skara fram úr á Broadway.

Söng­leik­ur­inn A Strange Loop var til­nefndur til alls 11 verð­launa og hlaut tvenn verð­laun, áður­nefnd verð­laun fyrir besta söng­leik árs­ins sem og verð­laun fyrir besta söng­leikja­hand­rit árs­ins. Í hópi fram­leið­anda ásamt Hudson má finna fleiri þekkt nöfn úr banda­rískri dæg­ur­menn­ingu, til dæmis þau RuPaul Charles, Don Cheadle, Mindy Kaling, Billy Porter og Alan Cumming. [adspot]

Með sigri A Strange Loop komst Hudson í ansi eft­ir­sóttan og fámennan félags­skap þeirra sem hlotið hafa alslemmu á stærstu verð­launa­há­tíð­unum í skemmt­ana­brans­anum vest­an­hafs, hinna svoköll­uðu EGOT-verð­launa­hafa. EGOT er skamm­stöfun fyrir virt­ustu verð­laun í sjón­varpi, tón­list, kvik­myndum og sviðs­listum í Banda­ríkj­unum: Emmy, Grammy, Oscar og Tony. Hópur EGOT-verð­launa­hafa telur nú alls sautján eftir að Hudson bætt­ist í hóp­inn, ell­efu verð­launa­hafar eru á lífi en sex látnir.

Richard Rodgers fyrstur til að klára EGOT árið 1962

Hudson hlaut Ósk­arsverð­laun fyrir besta leik í auka­hlut­verki í kvik­mynd­inni Dream­girls sem kom út árið 2006. Hún hefur hlotið tvenn Grammy verð­laun, árið 2009 hlaut hún verð­launin fyrir bestu ryþma­blús plötu árs­ins sem ein­fald­lega hét Jennifer Hudson og árið 2017 hlaut plata með tón­list úr söng­leiknum The Color Purple verð­launin fyrir bestu söng­leikja­plötu árs­ins en Hudson var á meðal ein­söngv­ara á plöt­unni. Í fyrra hlaut Hudson Emmy-verð­laun sem fram­leið­andi fyrir teikni­mynd­ina Baba Yaga. Hún lok­aði svo EGOT hringnum í gær­kvöldi þegar hún hlaut Tony-verð­launin fyrir A Strange Loop.

Fyrsti mað­ur­inn til að hljóta öll EGOT-verð­launin var tón­skáldið Richard Rodgers sem er einna helst þekktur fyrir frjótt sam­starf sitt með Oscar Hammer­stein. Saman sömdu þeir suma af þekkt­ustu söng­leikjum sem settir hafa verið upp á Broadway, söng­leiki á borð við Oklahoma!, South Pacific og The Sound of Music. Richard Rodgers hlaut Ósk­arsverð­laun árið 1945 fyrir besta lag árs­ins, lagið It Might as Well Be Spring úr kvik­mynd­inni State Fair. Hann varð EGOT-verð­launa­hafi árið 1962 þegar hann hlaut sín fyrstu Emmy-verð­laun fyrir tón­list sem hann samdi fyrir sjón­varps­þátta­ser­í­una Valient Years sem fjall­aði um líf og störf Winstons Churchills. Til við­bótar við Emmy- og Ósk­arsverð­launin hlaut Richard Rodgers tvenn Grammy-verð­laun og alls sex Tony-verð­laun.

Ætlaði að hreppa EGOT á fimm árum - ekki fengið eina tilnefningu

Þrátt fyrir að Rodgers hafi verið orð­inn hand­hafi allra EGOT-verð­laun­anna árið 1962 varð skamm­stöf­unin ekki þekkt fyrr en á níunda ára­tugnum. Philip Michael Thomas sem vann sér það helst til frægðar að hafa leikið rann­sókn­ar­lög­reglu­mann­inn Rico Tubbs í sjón­varps­þátt­unum Miami Vice hafði mik­inn auga­stað á EGOT-nafn­bót­inni. „Vonandi verð ég búinn að vinna öll þess verð­laun innan fimm ára,“ lét Thomas hafa eftir sér í við­tali árið 1984, sama ár og Miami Vice fór í loftið. Thomas gekk meira að segja um með háls­men með áletr­un­inni EGOT, svo áfjáður var hann í verð­launin.

Nú, tæpum fjöru­tíu árum síðar, hefur Thomas ekki hlotið eina ein­ustu til­nefn­ingu til þeirra verð­launa sem saman mynda skamm­stöf­un­ina EGOT. Honum má samt að miklu leyti þakka það að nafn­bótin sé þekkt í dag, ásamt höf­unda­teymi sjón­varps­þátt­anna 30 Rock. Það var fyrst eftir að Tracy Jordan, ein af aðal­per­sónum þátt­anna, lék hátt­semi Thomas að miklu leyti eftir sem að EGOT-nafn­bótin náði inn í meg­in­straum­inn og varð þekkt. Einn hand­rits­höf­unda 30 Rock mundi eftir Thomas og háls­meni hans og höf­unda­teymi þátt­anna fannst það mjög fyndin hug­mynd að láta áður­nefndan Jordan verða gagn­tek­inn af til­hugs­un­inni um að vinna EGOT. Hálsmen með skamm­stöf­un­inni varð meira að segja hluti af gervi Tracy Jordan í þátt­unum.

Þegar Thomas tal­aði fyrstur manna um þessa nafn­bót sem hann lang­aði svo mikið í, árið 1984, hafði EGOT-verð­launa­höfum fjölgað um tvo frá því að Rodgers kláraði EGOT árið 1962. Þær Helen Hayes og Rita Moreno bætt­ust báðar í hóp­inn árið 1977. Hayes var önnur í röð EGOT-verð­launa­hafa en það hefur eng­inn verð­launa­hafi verið jafn lengi að ná sér í öll verð­launin og hún. Hayes hlaut Ósk­arsverð­laun árið 1932 fyrir besta leik í aðal­hlut­verki í kvik­mynd­inni The Sin of Madelon Claudet sem kom út ári áður. Hún lok­aði hringnum 45 árum síðar þegar hún hlaut Grammy-verð­laun í flokki platna með mæltu máli fyrir plöt­una Great American Documents. Á ferli sínum hlaut Hayes sitt­hvor Emmy- og Grammy-verð­launin og tvenn Óskars- og Tony-verð­laun.

Heiðursverðlaun ekki talin með

Í hópi þeirra 17 stór­stjarna sem geta stært sig af því að vera EGOT-verð­launa­hafar má meðal ann­ars nefna Audrey Hepburn, Mike Nichols, Andrew Lloyd Webber, Tim Rice, Mel Brooks, Whoppi Goldberg og John Legend.

Þau 17 sem talin eru til EGOT-verð­launa­hafa eiga það sam­eig­in­legt að hafa unnið verð­laun á öllum hátíð­unum fjórum í flokkum þar sem keppt er til verð­launa. Verðlaun sem ekki er keppt um telja ekki með. Væru slík verð­laun talin með myndu fimm nöfn til við­bótar bæt­ast í pott­inn. Nöfnin í þeim hópi eru ekki af verri end­anum; Barbra Streisand, Liza Minnelli, James Earl Jones, Harry Belafonte og Quincy Jones. Þau eiga það öll sam­eig­in­legt að hafa hlotið verð­laun á þremur af fjórum verð­launa­há­tíðum í flokkum þar sem keppt er til verð­launa og sér­stök verð­laun sem ekki er keppt um á þeirri fjórðu.

Hildur Guðnadóttur búin með þrjár hátíðir af fjórum

Hópur þeirra sem vantar aðeins ein verð­laun upp á til að klára EGOT er ekki stór, telur alls 104 ein­stak­linga. Í þeim hópi er eitt tón­skáld sem Íslend­ingar kann­ast vel við, Hildur Guðna­dóttir. Hún hlaut bæði Emmy- og Grammy-verð­laun fyrir tón­list sína í sjón­varps­þátt­unum Chernobyl sem fóru í loftið á HBO árið 2019. Fyrir tón­list sína í kvik­mynd­inni Joker frá árinu 2019 hlaut Hildur bæði Grammy- og Ósk­arsverð­laun. Þar að auki hefur Hildur hlotið tvenn BAFTA verð­laun, ein fyrir Chernobyl og ein fyrir Joker, auk þess sem hún hlaut tón­list­ar­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs fyrir tón­list­ina í Chernobyl.

Hildur, ásamt 30 öðrum hafa fengið Grammy-, Emmy- og Ósk­arsverð­laun en vantar aðeins Tony-verð­launin til að full­komna EGOT fern­una. Með henni í hópi þeirra sem vantar ein­ungis Tony-verð­laun í safnið til að klára EGOT má til dæmis nefna Julie Andrews, Burt Bacharach, Cher, John Williams, Kate Winslet, Randy Newman og Martin Scorsese.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár