Hughrif í vinnslu

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Ég kem alltaf aftur – leik­sýn­ingu í boði alþjóð­lega leik­hóps­ins Reykja­vík Ensemble undir stjórn Pálínu Jóns­dóttur.

Ég kem alltaf aftur
Ég kem alltaf aftur Mynd: Owen Fiene

Listahátíð Reykjavíkur 2020: Reykjavík Ensemble: Ég kem alltaf aftur

Höfundur: Pálína Jóns­dóttir og leik­hóp­ur­inn.

Leik­stjóri: Pálína Jóns­dóttir.

Leikmynd: Robert Zadorozny og Wiola Ujazdowska.

Búningar: Mao Alheims­dóttir.

Hljóð­mynd og tón­list: Adam Switala.

Leikarar: Adam Switala, Ewa Marcinek, Jördis Richter, Magda­lena Tworek, Mao Alheims­dóttir, Karolina Boguslawska, Robert Zadorozny, Wiola Ujazdowska, Piotr Pawlus.

Við inn­gang­inn eru áhorf­endur spurðir um vega­bréf, kenni­tölu eða eitt­hvað annað það sem þarf að gera grein fyrir áður en lagt er upp í ferða­lag. Svo kemur í ljós, að það er aðeins leikur – það þarf eng­inn að róta í vas­anum eftir vega­bréfi eða þylja kenni­töl­una. En það er þegar búið að minna á tvennt: í vændum er ferða­lag. Og leikur. En umfram allt: leik­sýn­ing, sem lík­ist engu öðru sem ger­ist og gengur á íslensku leik­sviði. Leik­sýn­ing í boði alþjóð­lega leik­hóps­ins Reykja­vík Ensemble undir stjórn Pálínu Jóns­dóttur.

Fyrir réttum þrjá­tíu árum kom pólski fjöl­lista­mað­ur­inn Tadeusz Kantor til Íslands með leik­hóp sinn, Cricot 2, í boði Lista­há­tíðar og sýndi hér verk sitt, „Ég kem aldrei aftur“. Meðal áhorf­enda að þeirri sýn­ingu var Pálína Jóns­dóttir og sýn­ingin breytti sýn hennar á lífið og list­ina. Pálína hélt nokkru síðar erlendis og bjó þar lung­ann af æfinni en er nú nýkomin heim aftur og hefur starfað hér sem leik­stjóri og m.a. sett upp Ég heiti Guðrún 2018 hjá Þjóð­leik­hús­inu og á liðnu ári stofn­aði hún Reykja­vík Ensemble, alþjóð­legan hóp lista­manna sem hefur sett upp þrjár sýn­ingar – Opening Ceremony, Pol­is­hing Iceland og nú síð­ast „Ég kem alltaf heim“, en síð­ast­nefnda sýn­ingin er eins­konar and­svar eða við­bragð Pálínu við sýn­ingu Tadeusz Kantors sem hún sá fyrir þrjá­tíu árum.

[adspot]

Tadeusz Kantor fædd­ist 1915 og mót­að­ist í bernsku af fyrri heim­styrj­öld­inni; faðir hans var her­maður og yfir­gaf fjöl­skyld­una að stríð­inu loknu. Hann nam list­málun og leik­mynda­gerð við lista­há­skól­ann í Krakow og sá í fyrstu fyrir sér sem leik­mynda­teikn­ari við Þýska leik­húsið í Krakow. Auk þess stofn­aði hann ásamt öðrum ungum lista­mönnum leik­hóp­inn Óháða leik­húsið, sem sýndi í heima­húsum, í felum fyrir eft­ir­liti yfir­valda. Kantor varð smám saman þekktur fyrir frum­legar og list­rænar leik­myndir auk þess sem hann hélt sýn­ingar víða í Evrópu. Í leik­starf­sem­inni vann hann að því að sam­eina mynd­list og leik­list í því sem hann nefndi al-list, þar sem ekki var hægt að greina á milli hinna ólíku list­greina, þær runnu saman og urðu að einni heild. Hann skrif­aði einnig fræði­legar greinar um list­sýn sína. List Kantors sótti anda­gift í upp­hafi í smiðju súr­r­eal­ism­ans og eftir því sem á leið nálg­að­ist list hans gjörn­inga­list; algengt þema í sýn­ingum hans var að maður eða hlutur var hul­inn umbúðum – poka, kassa eða vaf­inn í teppi eða tau af öðru tagi. Hann átti það líka til að vísa í klass­íska mynd­list mál­ara á borð við Velázquez eða Goya.

Kan­tor­fræð­ing­ur­inn Jan Klossowicz mun hafa sagt að leik­húsi Kantors megi helst lýsa sem sjálf­virku (e. autu­nom) í þeim skiln­ingi að það er alger­lega sjálfu sér nægt, í sýn­ingum sínum fæst Kantor hvorki við að túlka raun­veru­leik­ann utan leik­sýn­ing­ar­innar né heldur er leik­list hans end­ur­gerð raun­veru­leik­ans, verk hans eru ein­göngu háð eigin raun­heimi sem er óháður öllu öðru.

Það mætti hafa mörg orð um list Tadeuszar Kantors, svo fjöl­breyttur var fer­ill hans. List hans spannar yfir vítt svið mann­legrar ver­undar. Aðeins skal minnt á við­horf hans til hlut­anna: þeir hlutir, sem not­aðir voru í sýn­ing­unni áttu að vera ein­faldir, slitnir, gjarnan bil­aðir.

Það er sér­stök til­finn­ing að ganga inn í sal­inn í Iðnó. Iðnó er með elstu minjum um leik­list á Íslandi og það fer vel á því að fyrsta leik­sýn­ing eftir sam­komu­bann fari fram hér, þar sem frum­kvöðlar íslenskrar leik­listar stigu fyrst fæti á þær fjalir sem sýna heim­inn – svo vitnað sé eftir minni í orð skál­djöf­urs­ins enska. Salurinn er auður, nema hvað hrúga af stólum er fyrir miðju – þangað eiga nú áhorf­endur að sækja sér stól og setja hann niður hjá ein­hverjum af þeim svörtu deplum sem búið er að setja á gólfið. Það eru tveir metrar milli depla og hér er farið eftir tveggja­metr­a­regl­unni. Stóla­hrúgan er reyndar bein til­vitnun í verk Tadeusz Kantor, en hann gerði m.a. skúlp­t­úra úr stólum.

Fyrir sýn­ingu býður list­rænn stjórn­andi Reykja­vík Ensemble og leik­stjóri sýn­ing­ar­innar, Pálína Jóns­dóttur, áhorf­endur vel­komna og gerir nokkra grein fyrir því, sem í vændum er. Hún rekur per­sónu­lega upp­lifun sína af sýn­ingu Kantors þegar hann kom með leik­hóp sinn á Lista­há­tíð 1990 og hvernig sú sýn­ing, „Ég kem aldrei aftur“, breytti við­horfi hennar til lífs og listar. Á henni má skilja að Kantor tali frekar til til­finn­inga en til rök­hyggj­unnar, list hans er eins fjarri því að vera línu­leg og unnt er. Hún bendir jafn­framt á að sýn­ingin, „Ég kem alltaf aftur“ er samin sem eins konar við­bragð við sýn­ingu Kantors, eða öllu heldur óður til hennar.

„Ég kem alltaf aftur“ fylgir engri línu­legri þróun eins og búast má við í hefð­bundnu leik­húsi. Sýningin lík­ist meira gjörn­ingi, hún sam­anstendur af marg­vís­legum brotum, ósam­stæðum á köflum, sem leik­ar­arnir hafa lagt í púkkið og miðlað af sinni reynslu. Leik­ar­arnir eru pólskir nema einn sem er þýskur og efn­is­brotin bera keim af því, þau eru meg­in­land­s­evr­ópsk í grunn­inn og segja sögu sem má jafn­vel full­yrða að búi í genum evr­ópu­búa, hafi komið sér þar fyrir á löngum tíma, þró­ast og þroskast og halda því áfram meðan mann­kyn blívur. Leik­hóp­ur­inn hefur tínt saman brot úr eigin sögu, sögu for­eldra sinna og lang­feðra sinna og lang­mæðra, sótt í upp­lif­anir, minn­ingar og dul­vit­und. Gott ef ekki má finna í sýn­ing­unni þjóð­sagna­minni í bland við brot úr nútíma­sögu og allt þar á milli. En sá áhorf­andi sem leitar að rök­réttri frá­sögn í klass­ískum skiln­ingi þess orðs hefur farið í geit­ar­hús að leita ullar. Hér gildir að opna skiln­ing­ar­vit til­finn­inga og skynj­unar, með­taka án þess að falla í þá gildru að beita skyn­semi til að túlka. „Ég kem alltaf aftur“ er líkt og mál­verk, það hreyf­ist, það lifir, það vekur kenndir – en það er ekki fyrr en ljósin slökkna á leik­svið­inu og kvikna í salnum að áhorf­and­inn getur farið að melta með sér og vinna úr því sem á var horft. Og það getur orðið langt og áhuga­vert ferli. Ferðalag eins og þau ger­ast best!

Það er vel hægt að hugsa sér að verkin bæði, ann­ars vegar sýn­ing Kantors og hins vegar sýn­ing Pálínu og leik­hóps­ins spegli ekki aðeins hvort annað, heldur einnig mis­mun­andi aðstæður í henni ver­öld – sýn­ing Kantors er frum­sýnd 1989, um það bil sam­tímis sem Berlín­ar­múr­inn fellur og Evrópa er í óða­önn að gera upp við seinni heims­styrj­öld­ina, sýn­ing Pálínu er frum­sýnd á því herr­ans covid-ári 2020; tit­ill­inn á verki Kantors vísar reyndar til þess að í heima­borg hans, Krakow, var verkum hans tekið verr en ann­ars staðar en í ljósi þess að verk hans voru marg­brotin og marglaga er ekk­ert sem mælir gegn þeirri ályktun að verkið sæki hug­hrif í þá upp­lausn sem þá ríkti í evr­ópskum stjórn­málum og menn­ingu. Ef það má verða til ein­hverrar hjálpar.

Hér var minnst á speglun og í verki Pálínu Jóns­dóttur og leik­hóps­ins, Reykja­vík Ensemble, má sann­ar­lega finna hvernig allt spegl­ast, í sjálfu sér og hvert í öðru – það er eins­konar stef í sýn­ing­unni, draum­ur­inn um Ísland og ætl­unin að flytja þangað: „Mig langar að gift­ast Íslend­ingi sem fer með mig í Kringl­una ... til að þrífa og þræla“ og þar er sann­ar­lega kom­inn speg­il­mynd mis­mun­andi þjóð­ernis, aðstæðna og mögu­leika. Þegar slíkri speg­il­mynd hefur verið varpað upp ger­ist það að hún bjag­ast, jafn­vel afskræm­ist, og varpar fram nýrri hug­mynd um annan veru­leika – sem þó er vand­lega njörv­aður í veru­leika sýn­ing­ar­innar sjálfrar, leitar ekki útfyrir hana og er ekki nema óbeint – í gegnum reynslu okkar áhorf­enda – vísun í þann veru­leika sem ein­kennir sam­fé­lag okkar. Og það er fleira sem er speglað á þennan hátt: liðin tíð gagn­vart nútíð­inni, nútíðin gagn­vart fram­tíð­inni, liðin tíð gagn­vart fram­tíð­inni. Sýningin verður þannig marglaga, gjörn­ingur í núinu sem sækir hug­hrif í allar áttir og alla tíma og bein­línis frussar út úr sér hug­hrifum af alls konar tagi, sem við verðum að fanga og moða úr – það er ekki eitt ein­asta dautt augna­blik þann tíma sem sýn­ingin varir og allt sem á sér stað, hver hreyf­ing, hvert hljóð ber með sér merk­ingu sem ekki má missa af.

Hver ein­asti hlutur í leik­mynd­inni gæti verið sóttur í Góða hirð­inn – og leik­myndin er ekki ein­asta snjöll og hug­vit­sam­lega gerð, heldur lifir hún með í sýn­ing­unni og verður eins og leik­ar­arnir, merk­ing­ar­ber­andi. Drasl­ara­legir og smekk­lega hann­aðir bún­ing­arnir styrkja þau áhrif. Hið sama má segja um hljóð­mynd­ina og er þá ekki aðeins átt við þau hljóð sem ber­ast um hátal­ara út í sal, heldur einnig þau hljóð, sem koma frá leik­ur­unum – þar verður ekki greint á milli, heldur myndar allt sömu heild­ina, hvort sem horft er á eða hlustað. Lýsingin, ein­föld og mætti ekki öðru­vísi vera.

Í upp­hafi var á það minnst að í vændum væri leikur; það er hverju orði sann­ara, en hér kemur meira til: leik­ur­inn verður á köflum ærsla­feng­inn þannig að helst má ætla að sýn­ingin hafi farið alger­lega úr bönd­unum og leik­ar­arnir sleppt af sér öllum beislum list­ræns aga! Þessi ærsl standa á móti hátíð­legu og stílíser­uðu ritúali þar sem hver hreyf­ing er hnit­miðuð, æfð og öguð þannig að nákvæmnin magnar augna­blikið. Leik­ur­inn og ritúalið flétt­ast hvað inn í annað þannig að á köflum verður ekki greint á milli, hvað rennur saman við annað og skapar sér­staka og súr­r­eal­íska upp­lifun. Öllum ólíkum hug­hrifum er svo haldið saman með stef­inu sem gengur í sífellu aftur; „Við erum að fara til Íslands“ – þar sem Ísland stendur fyrir hina óræðu fram­tíð.

Fortíðin er kvödd; hún er kaosið, hrörn­unin, ellin. Sér­stak­lega hug­næmt er atriðið þegar amma deyr (?) og er kvödd, fal­lega svið­sett með nálgun við áhorf­endur þannig að svið og salur Iðnós rennur saman – þar er á ferð bæði fal­legur sam­runi leik­ara og áhorf­enda og glæsi­leg sviðs­lausn, ein­föld og til­gerð­ar­laus.

Það mætti hafa mörg fleiri orð um „Ég kem alltaf aftur“. En ein­hvers staðar þarf að reka botn­inn í og það má gera með því að slá föstu að sýn­ing Pálínu Jóns­dóttur og Reykja­vík Ensemble er hvort tveggja í senn – spenn­andi sam­ræða við Tadeusz Kantor, einn fremsta leik­list­ar­mann Evrópu á tutt­ug­ustu öld­inni og um leið sjálf­stætt leik­verk sem kall­ast á við íslenskan nútíma og veru­leika; hug­vit­sam­lega gert og spenn­andi til­raun um mann­inn. Það má alltaf koma aftur og aftur að sjá slíka sýn­ingu!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár