Morðgáta sem leynir á sér

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um sýn­ing­una Útlend­ing­ur­inn Morðgáta en hann segir að höf­und­inum hafi tek­ist það sem er fágætt: Að hafa ofan af fyrir áhorf­endum sínum í rúmar tvær klukku­stundir.

Borgarleikhúsið: Útlendingurinn Morðgáta

Höfundur: Friðgeir Ein­ars­son

Leik­stjórn: Pétur Ármanns­son

Tónlist: Snorri Helgason

Leikmynd og bún­ingar: Brynja Björns­dóttir

Lýsing: Pálmi Jónsson

Hljóð­mynd: Þorbjörn Stein­gríms­son

Málverk: Viðar Jónsson

Flytj­endur: Friðgeir Ein­ars­son, Snorri Helgason

Útlend­ing­ur­inn Morðgáta er sýn­ing sem leynir á sér. Á yfir­borð­inu virð­ist hún eins konar meta­leik­hús – leik­hús um leik­hús, þar sem höf­undur sýn­ing­ar­innar segir frá vand­ræðum þeim sem hann átti við að glíma þegar hann var að semja verkið í kjöl­far vel­gengn­innar með fyrri sýn­ing­una, Club Romantica, sem sýnd var í Borg­ar­leik­hús­inu 2019 og var til­nefnd til fjög­urra Grímu­verð­launa. Það er þakk­látt bragð í leik­húsi að vísa í veru­leik­ann á svið­inu og er að sumu leyti tím­anna tákn; að minnsta kosti varð ekki vart við annað en að allar til­vís­anir í núið vöktu ómælda kátínu kyn­slóða­systk­ina höf­undar sem sátu í salnum ásamt þeim sem hér slær lykla­borð.

En Útlend­ing­ur­inn Morðgáta leynir sem sagt á sér. Hún er líka sagan af Íslend­ingnum sem gerð­ist sjálfur útlend­ingur með því að flytj­ast yfir Atl­antsála og koma sér fyrir í Bergen þar sem hann átti sam­kvæmt samn­ingi við leik­húsið að semja leik­gerð við skáld­sögu Albert Camus, Útlend­ing­inn, en í stað­inn vakti Ísdals­konan, fimm­tíu ára gömul morð­gáta, áhuga hans sem varð til þess að ekk­ert varð úr útlend­ingnum en sú sýn­ing sem hér er fjallað um kom í stað­inn. Raunar segir ekki af við­brögðum leik­hús­stjór­ans sem fékk annað verk en um var beðið, en það skiptir kannski minna máli; aðal­at­riðið er, að þessi gamla morð­gáta, sem kall­ast Ísdals­konan, er virki­lega spenn­andi – og miðað við Club Romantica, fyrri sýn­ingu Frið­geirs, ætti hún að falla algjör­lega að hans aðferða­fræði og stíl.

[adspot]

Aðferð og stíll Frið­geirs Ein­ars­sonar sver sig í ætt við mínímal­isma og neór­eal­isma eins og hann þró­að­ist í ítal­skri kvik­mynda­gerð uppúr seinni heims­styrj­öld­inni; sá tími er einnig nefndur gullöld ítal­skrar kvik­mynda­gerðar og lagði grunn­inn að frægð kvik­mynda­leik­stjóra á borð við Visconti, de Sica og Rossel­ini, svo fáeinir séu nefndir. Þeirra aðals og ein­kenn­is­merki var að vinna margræðar sögur úr fábrotnu efni sem fáum hafði áður dottið í hug að gera sér mat úr og einatt var sögu­efnið sótt í heim lægri stétta, verka­lýðs og fátækra. Það sem einnig ein­kenndi ítalska neór­eal­ismann var að fara eins nákvæm­lega í saumana á sögu­efn­inu og unnt var og mjólka hvern dropa úr því. Þetta gerði Friðgeir á glæsi­legan og eft­ir­minni­legan hátt í Club Romantica fyrir tveimur árum. Sú sýn­ing sótti efni sitt í sög­una af mynda­albúmi sem keypt var á úti­mark­aði. Í albú­m­inu var að finna ljós­mynd af konu í hvers­dags­legum aðstæðum. Konan og umhverfi hennar vakti athygli Frið­geirs (hann er sjálfur í mið­punkti atburða í verkum sínum) og úr varð leik­sýn­ing þar sem hann segir sög­una af því hvernig hann leit­aði uppi þessa konu. Hann fletti ofan af örlögum hennar og í raun­inni lífg­aði hana við fyrir augum áhorf­enda. Club Romantica var, rétt eins og Útlend­ing­ur­inn Morðsaga, frá­sögn af ferða­lagi höf­undar frá spurn til lausnar, en lausnin í Club Romantica var skýr­ari, afdrátt­ar­laus­ari. Þar tókst enda að hreyfa við áhorf­endum og kalla fram ryk­korn í auga yfir örlögum kon­unnar, en í Útlend­ingnum Morðsögu verður mun minna úr efn­inu af ein­hverjum ástæðum.

Það þarf ekki nema leita and­ar­taks­stund á vefnum að Ísdals­kon­unni til að finna sögu, sem vísar í margar áttir og ætti með aðferða­fræði Frið­geirs Ein­ars­sonar að geta orðið að magn­aðri sögu. Ísdals­konan fannst fyrir rúmum fimm­tíu árum í dal nálægt Bergen sem heitir Ísdal­ur­inn og af því örnefni er heitið Ísdals­konan dregið. Gátan um hana er ennþá óleyst, þótt norska lög­reglan hafi nær óslitið reynt að kom­ast að hinu sanna um hver hún var, á hvaða ferða­lagi hún hafi verið og umfram allt, hvernig hún dó og, ef um morð er að ræða, hver sé þá hinn seki og hvað honum gekk til. Reyndar hefur höf­uð­kenn­ing lög­regl­unnar verið að Ísdals­konan hafi fyr­ir­farið sér, eins trú­legt og það hljómar að hún hafi fyrst gleypt glás af svefn­töflum og síðan hellt yfir sig bens­íni og kveikt í. Og þaráður fjar­lægt öll merki um hver hún væri, eins og að klippa auð­kennismiða úr fatn­aði, fjar­læga fingraför og ýmis­legt annað sem getur valdið lög­reglu vand­ræðum við rann­sókn máls. Rannsókn máls­ins er sú umfangs­mesta sem norska lög­reglan hefur glímt við og verður helst borin saman við rann­sókn­ina á morð­inu á John F. Kennedy í Banda­ríkj­unum og morð­inu á Olof Palme í Svíþjóð.

Ein­hverra hluta vegna lifnar þessi saga ekki til fulls í með­förum þeirra Frið­geirs og Snorra Helga­sonar, sem sér um tón­list­ar­flutn­ing og bregður sér í hlut­verk eig­in­konu Frið­geirs þegar þörf krefur, frá­sagn­ar­innar vegna. Kannski er það ein­fald­lega svo að sagan af Ísdals­kon­unni er svo marsl­ungin að hún ber sögu­mann­inn ofur­liði; að honum henti betur mínímal­ísk­ari saga á borð við sög­una af kon­unni á mynd­inni í albú­m­inu til að frá­sagn­ar­tækni hans og sögu­manns­hæfi­leikar njóti sín til fulls. Kannski hefði strang­ari drama­t­úrgísk úrvinnsla efn­is­ins dugað til. Í fróð­legri grein Lilju Sig­urð­ar­dóttur, glæpa­sögu­höf­undar, í leik­skrá segir að leitin að rétt­læt­inu sé það sem drífi glæpa­sög­una áfram og að glæpa­saga án rétt­lætis í lokin sé ekki full­nægj­andi fyrir unn­endur slíkra sagna. Kannski er þarna að finna ein­falda svarið við því af hverju saga Frið­geirs virð­ist líkt og ófull­burða – hún fer ekki alla leið, finnur ekki lausn­ina á gát­unni um Ísdals­kon­una.

Hvað sem því líður – sögur geta verið og eru margs konar og mis­jafn­lega sagðar og þurfa ekki að vera síðri afþrey­ing fyrir því. Frið­geiri tekst það sem er fágætt, og það er að hafa ofan af fyrir áhorf­endum sínum í rúmar tvær klukku­stundir og það er auð­fundið á við­brögðum áhorf­enda að þeim líkar meira en vel sú afþrey­ing sem á borð er borin, frá­sagn­ar­máti Frið­geirs er þeim að skapi og efn­is­tökin eru vissu­lega ágæt­lega fersk. Það má heldur ekki horfa fram­hjá því að Friðgeir nýtur góðs og öruggs stuðn­ings af tón­list og tón­list­ar­flutn­ingi Snorra Helga­sonar og þá eru leik­mynd og bún­ingar Brynju Björns­dóttur hvort tveggja snilld­ar­lega útfært. Leik­myndin er fal­lega skand­in­av­ísk og bak­vegg­ur­inn mál­aður af Viðari Jónssyni í expressjón­ískum stíl sem leiðir hug­ann að Ópi Munchs – sem er líka hæfi­lega absúrd vísun í frá­sögn­ina sem nær ein­hvern veg­inn ekki utan um átaka­sög­una sem mann grunar að leyn­ist í sög­unni um hina dul­ar­fullu Ísdals­konu. Þetta mikla mál­verk tekur líka vel við lýs­ingu Pálma Jóns­sonar og öll hin tón­list­ar­lega og sjón­ræna umgjörð tekur á við­eig­andi þátt í frá­sögn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár