Töfrum gædd frásögn

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um sýn­ing­una Tréð eftir Söru Martí Guð­munds­dóttur og Agnesi Wild.

Listahátíð í Reykjavík og Lalalab í Tjarnarbíói: Tréð

Hugmynd: Sara Martí Guð­munds­dóttir

Höfundar og leik­stjórn: Sara Martí Guð­munds­dóttir og Agnes Wild

Tónskáld: Sóley Stef­áns­dóttir

Hönnun hljóð­myndar: Sóley Stef­áns­dóttir

Vinnsla hljóð­myndar: Stefán Örn Gunn­laugs­son

Teiknari: Elín Elísabet Ein­ars­dóttir

Leik­mynda­hönn­uður: Eva Björg Harð­ar­dóttir

Ljós og mynd­band: Ingi Bekk og Kjartan Darri Krist­jáns­son

Leikarar: Kjartan Darri Krist­jáns­son og Elísabet Skag­fjörð

Leik­raddir: Óðinn Benjamín Munthe, Nadía Líf Guð­laugs­dóttir, Dominique Gyða Sig­rún­ar­dóttir, Guðrún Gunn­ars­dóttir, Jóhann Axel Ing­ólfs­son, Katrín Mist Har­alds­dóttir, Adda Rut Jóns­dóttir, Agnes Wild, Sara Martí Guð­munds­dóttir, Bjarni Snæ­björns­son, María Guð­munds­dóttir, Ólafur Ásgeirs­son, Sveinn Óskar Ásbjörns­son, Guð­mundur Felixson, Alexía Björg Jóhann­es­dóttir, Friðrik Frið­riks­son, Elísabet Skag­fjörð, Tinna Lind Gunn­ars­dóttir, Kormákur Garð­ars­son, Ronja Bene­dikts­dóttir, Kristrún Heiða Hauks­dóttir, Sunneva Sigríður Andra­dóttir, Stefán Örn Gunn­laugs­son.

Það er alveg sér­deilis hlý­legur sjarmi yfir sýn­ingu þeirra Söru Martí Guð­munds­dóttur og Agnesar Wild um sítrónu­tréð sem stendur fyrir utan heim­ili drengs­ins Alex og fylgt hefur fjöl­skyldu hans í margar kyn­slóðir. Í upp­hafi andar allt friði og far­sæld, Alex og systir hans leika sér og þau og for­eldrar þeirra lifa áhyggju­lausu lífi og njóta ávaxt­anna af sítrónu­trénu sem gefur þeim svalandi lím­on­aði. En allt í einu verða nátt­úru­ham­farir, jarð­skjálfti ríður yfir og leggur heim­ili Alex í rúst og for­eldrar hans lifa ekki af. Honum er ekki óhætt og þarf að yfir­gefa bernsku­slóð­irnar. En til að halda tengslum við for­eldra sína og fólkið sitt, tekur hann með sér grein af sítrónu­trénu – þar sem hann finnur því öruggan stað í nýrri jörð getur hann hugsað sér að setj­ast að og nú hefst langt og strangt ferða­lag yfir lönd og höf í leit að nýjum stað að setj­ast að á og gróð­ur­setja sítrónu­tréð.

Leiðin liggur um flótta­manna­búðir í eyði­mörk þar sem jörð er ófrjó, um stór­borg­ina þar sem loftið er mengað og um skóg­inn þar sem stóru, vold­ugu trén vilja ekki gefa rými fyrir sítrónu­tréð. Það hlýtur að vera óhætt að segja að allt fari vel að lokum, þótt endir­inn sé ekki alveg eins og Alex hafði hugsað sér, né við áhorf­endur. En þær fjöru­tíu og fimm mín­útur sem sýn­ingin varir er athygli okkar haldið vel vak­andi og yngstu áhorf­end­urnir – en sýn­ingin er hugsuð fyrir börn frá fimm ára aldri – munu ekki eiga í neinum vand­ræðum með að fylgja sög­unni eftir né lifa sig inn í atburða­rás­ina.

[adspot]

Hluti af sjarma sýn­ing­ar­innar er óneit­an­lega allur sá fjöldi leik­ara sem ljá hinum ýmsu og fjöl­breyti­legu karakt­erum rödd og önd. Þarna getur að sjá og heyra óborg­an­lega kakt­usa sem fræða Alex um eyði­mörk­ina og eðli hennar, þvínæst getur að líta og upp­lifa kostu­leg potta­blóm svo ekki sé minnst á greni­trén mik­il­úð­legu. Það fer ekki hjá því að hægt sé að segja að þarna megi finna valda rödd í hverjum karakter og fjöl­breyti­leik­inn lífgar svo sann­ar­lega upp á sög­una. Þá skal einnig nefndur Óðinn Benjamín Munthe, sem leikur Alex á móti Kjartani Darra. Radd­beit­ing hans er með því­líkum kostum að vart verður betur gert, fram­sögnin frjáls­leg og eðli­leg, hljóm­ur­inn með miklum ágætum og vel kveðið að hverju orði og áherslur eins nátt­úru­legar og kosið verður. Vel leikið, vel leik­stýrt.

Og reyndar er sýn­ingin öll listi­lega vel samin og fal­lega fram borin, sem bendir til þess að leik­stjórnin hafi náð þeim árangri í frá­sögn og flutn­ingi sem stefnt hefur verið að. Vinnu­brögðin að öllu leyti til fyr­ir­myndar.

Tréð er eins konar fjöl­miðl­un­ar­sýn­ing. Alex og systir hans, Móna, eru leikin af þeim Kjartani Darra Kjart­ans­syni og Elísa­betu Skag­fjörð að hluta, en að hluta er sagan sögð með aðstoð skugga­brúðu­leik­húss, sem búið er til með teikn­ingum Elínar Elísa­betar Ein­ars­dóttur, og sem varpað er með mynd­varpa upp á sýn­ing­ar­tjald og í þeim köflum heyrum við rödd Óðins Benja­míns. Þau Kjartan Darri og Elísabet stjórna brúð­unum og öðru sem þarf til að segja sög­una – bílum, skipum og leik­myndum – og taka þannig þátt í að fleyta atburða­rásinni áfram bæði sem leik­arar og brúðu­tækni­menn. Þetta er skemmti­leg nálgun, sem fer fram fyrir opnum tjöldum og krefst ein­beit­ingar af því tagi sem smitar af sér yfir til áhorf­enda.

Reyndar er rétt að taka fram að ekki er um að ræða skugga­brúðu­leik­hús alls kostar sam­kvæmt hefð­inni því hér er nefni­lega beitt nútíma víd­eó­tækni sem ekki var kostur á í árdaga skugga­brúðu­leik­húss. En nú eins og þá fyr­ir­stilla ein­víðar pappafígúrur ann­ars vegar per­sónur sög­unnar og hins vegar hina ýmsu hluta leik­mynd­ar­innar og hér er þeim brugðið fyrir linsu töku­vélar og þaðan varpað upp á stórt tjald fyrir ofan leik­ar­ana Kjartan Darra og Elísa­betu. Þannig verða sum atriða­skiptin frá skjánum og niður á sviðið og svo á hlið­stæðan hátt frá sviði og upp á skjá. Þar sem asíska skugga­brúðu­leik­húsið hafði aðeins yfir að ráða einu sviði – tjald­inu – og tveimur lita­brigðum – skugga og birtu – gefst hér kostur á að leika sér með frá­sögn á tveimur plönum og í tveimur víddum, auk þess sem litir og lit­ræn blæ­brigði fá aukið vægi. Að öðru leyti er frá­sagn­ar­tæknin hlið­stæð; hún er í tengslum við ritúalið, trú­ar­brögðin, sem áttu að útskýra heim­inn og heims­mynd­ina fyrir þeim sem á horfðu og hlust­uðu og úr verður býsna seið­andi frá­sögn sem kallar á athygli og íhygli. Þegar um ræðir frá­sögn­ina af Alex og Mónu og sítrónu­trénu er hvergi hætt við að áhorf­endur missi af því sem ger­ist. Frá­sagn­ar­formið er töfrum gætt og er í beinum tengslum við frum­þörf manns­ins fyrir frá­sagnir sem útskýra heim­inn og lög­mál hans og tengja mann­inn við þau.

Tréð er fal­leg sýn­ing og hentar vel ungum áhorf­endum; og þar sem efni hennar teng­ist ýmsu því sem sjá má og heyra í fréttum nútím­ans er ekki úr vegi að for­eldrar, afar og ömmur horfi og hlusti með ungu kyn­slóð­inni og skapi sér sam­eig­in­lega reynslu, ekki síst með því að ræða saman um þann jákvæða boð­skap sem sagan af Alex og Mónu og trénu miðlar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár