Frægastur danskra leikara

Hann fædd­ist í Kaup­manna­höfn, lærði ball­ett og var atvinnu­dans­ari í 10 ár. Þrítugur að aldri lauk hann leik­ara­námi og er í dag frægastur allra danskra leik­ara. Heitir Mads Mikk­el­sen. Gleymska hafði einu sinni næstum orðið honum dýr­keypt.

Upp úr 10. nóv­em­ber árið 1965 átti Bente Christiansen von á sér. Hún bjó í Kaup­manna­höfn, ásamt manni sínum Henning Mikk­el­sen og árs­gömlum syni þeirra hjóna, Lars. Barnið sem Bente bar undir belti var ekk­ert að flýta sér í heim­inn og það var ekki fyrr en 22. nóv­em­ber sem til tíð­inda dró. Þá skaust hann í heim­inn dreng­ur­inn sem síðar fékk nafnið Mads.

Þau Bente og Henning bjuggu á Norð­ur­brú og þar var yfir­gnæf­andi meiri­hluti íbú­anna á þeim tíma lág­launa­fólk. Bente var sjúkra­liði og vann á sjúkra­húsi og Henning var banka­starfs­maður sem drýgði tekj­urnar með því að aka leigu­bíl og varð síðar deild­ar­stjóri í banka. Hann lék sömu­leiðis smá­hlut­verk í nokkrum kvik­myndum.

[adspot]Synirnir hafa síðar lýst for­eldr­unum sem dæmi­gerðu launa­fólki sem hafði í sig og á en ekki mikið umfram það framan af ævinni. Bræð­urnir voru þeir einu í sínum bekkj­ar­ár­göngum sem fóru í nám, eftir að skóla­skyld­unni lauk. Þeir hafa báðir í við­tölum nefnt að for­eldr­arnir hafi sagt að þeir yrðu von­andi „almenni­legar mann­eskjur“ en ekki lagt lífs­regl­urnar að öðru leyti. „Pabbi hafði gaman af leik­list, las oft fyrir okkur og kannski kveikti það ein­hvern neista,“ sagði Mads ein­hverju sinni í við­tali.

Lars

Að loknu grunn­skóla­prófi fór Lars, eldri bróð­ir­inn, í her­inn og lauk stúd­ents­prófi að lok­inni her­skyldu. Hóf þá nám í líf­fræði en vann fyrir sér sem götu­lista­maður og lát­bragðs­leik­ari. Hann varð afhuga líf­fræð­inni en 27 ára gam­all komst hann inn í Kon­ung­lega leik­list­ar­skól­ann og útskrif­að­ist þaðan 31 árs, árið 1995. Lars er í hópi þekkt­ustu leik­ara Dana. Hann hefur leikið í fjölda kvik­mynda og sjón­varps­þáttar­aða og hlotið fjöl­margar við­ur­kenn­ingar, meðal ann­ars Emmy-verð­laun. Hann hefur sömu­leiðis alltaf leikið tals­vert á sviði og hlut­verkin þar orðin rúm­lega 40. „Þótt ég hafi á síð­ari árum einkum leikið í kvik­myndum og sjón­varps­þáttum lít ég frekar á mig sem sviðs­leik­ara.“

Mads

Þótt þeir bræður, Lars og Mads, feti nú sömu braut­ina var upp­hafið mjög ólíkt. Mads var frá unga aldri mjög áhuga­samur um leik­fimi og ætl­aði sér að verða frjáls­í­þrótta­maður. Ball­ett­inn heill­aði hann hins­vegar og hann þreytti inn­töku­próf við Ball­ett­skól­ann í Gauta­borg í Svíþjóð. Eftir að nám­inu þar lauk starf­aði hann sem dans­ari um næstum 10 ára skeið, tók líka, á þessum árum, þátt í nokkrum söng­leikjum. Árið 1992, þá orð­inn 27 ára, ákvað Mads að snúa baki við ball­ett­inum og læra til leik­ara, eins og það var iðu­lega kallað.

Pusher

Mads Mikk­el­sen lauk leik­ara­nám­inu árið 1996. „Þegar ég hafði nýlokið nám­inu bauð Nicolas Winding Refn mér hlut­verk í kvik­mynd­inni Pusher (díler­inn, fíkni­efna­sal­inn) sem hann var að und­ir­búa. Ég var miklu eldri en skóla­systkin mín og bjóst ekki við að atvinnu­til­boðin kæmu í stríðum straumum, þannig að ég sló til. Leist líka vel á hand­ritið, fjár­magnið sem Nicolas hafði til umráða var mjög tak­markað, en ég hafði ekki áhyggjur af því.“

Þannig lýsir Mads Mikk­el­sen upp­hafi leik­ara­fer­ils­ins.

Þótt Pusher, sem ger­ist í und­ir­heimum Kaup­manna­hafnar, hafi verið gerð fyrir lítið fé varð myndin mjög vin­sæl og síðar gerði Nicolas Winding Refn tvær myndir til við­bótar, þær heita ein­fald­lega Pusher II og Pusher III. Mads Mikk­el­sen lék í tveimur fyrstu mynd­unum en ekki í þeirri þriðju.

Áhyggjur Mads Mikk­el­sen yfir tak­mörk­uðum atvinnu­mögu­leikum eftir að námi lauk reynd­ust áhyggju­lausar. Pusher ruddi braut­ina og myndin varð líka stökk­pallur leik­stjór­ans Nicolas Winding Refn.

Tilboðin streymdu inn

Vel­gengni Pusher, og til­boðin sem fylgdu í kjöl­farið og enn er ekki lát á, varð til þess að Mads Mikk­el­sen hefur nær ein­göngu leikið í kvik­myndum og sjón­varps­þáttum síðan hann lauk námi. Í við­tölum hefur hann sagt að sum þess­ara hlut­verka hafi verið lítil, en fyrir mann sem er að hasla sér völl skipti það ekki máli. „Ef maður kann sitt koma stærri og veiga­meiri hlut­verk með tím­anum.“ Í pistli sem þessum er engin leið að telja upp öll þau hlut­verk sem Mads Mikk­el­sen hefur leikið á ferl­inum „sem byrj­aði svo seint“ eins og hann sjálfur orðar það.

Blinkende lygter og Rejseholdet

Árið 2000 var kvik­myndin Blinkende lygter frum­sýnd. Höfundur hand­rits og leik­stjóri var Anders Thomas Jensen en hann er einn afkasta­mesti hand­rits­höf­undur í sögu danskra kvik­mynda. Blinkende lygter, sem fjallar í gam­an­sömum tón um fjóra smá­glæpa­menn, er ein vin­sælasta kvik­mynd sem gerð hefur verið í Danmörku. Þarna var Mads Mikk­el­sen í góðum félags­skap en aðrir helstu leik­arar voru Søren Pilmark, Ulrich Thomsen, Iben Hjejle, Nikolai Lie Kaas og Sofie Gråbøl. Allt leik­arar sem mikið hafa látið að sér kveða, í kvik­myndum og sjón­varps­þáttum, og eru enn í fullu fjöri.

Á árunum 2000-2004 sýndi danska sjón­varpið, DR1, sam­tals 32 þætti um rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar. Þætt­irnir sem heita Rej­seholdet nutu frá upp­hafi mik­illa vin­sælda og hafa margoft verið end­ur­sýndir í danska sjón­varp­inu og þeir hafa líka notið vin­sælda langt út fyrir danska land­steina. Þarna var val­inn maður í hverju rúmi, auk Mads Mikk­el­sen margir leik­arar sem hafa allar götur síðan verið áber­andi í dönskum kvik­myndum, og sjón­varps­þáttum.

Casino Royale og nú Indiana Jones

Þótt Mads Mikk­el­sen hafi verið orð­inn þekktur leik­ari í heima­land­inu var það fyrst árið 2005 sem hann vakti fyrir alvöru athygli erlendra kvik­mynda­leik­stjóra. Þá var honum boðið lítið hlut­verk í James Bond kvik­mynd­inni Casino Royale. Síðan hafa til­boðin streymt til hans. Í nóv­em­ber var til­kynnt að Mads Mikk­el­sen taki við hlut­verki skúrks­ins Gellert Grindelwald í kvik­mynd­inni Fantastic Beasts 3, eftir að fram­leið­and­inn rak Johnny Depp. Myndin er, eins og nafnið gefur til kynna, sú þriðja í röð­inni en mynd­irnar eru byggðar á hand­riti J.K. Rowling, höf­und bókanna um Harry Potter. Mads Mikk­el­sen hefur þó ekki gleymt upp­runanum og leikið í fjöl­mörgum dönskum myndum, síð­ast aðal­hlut­verkið í kvik­mynd­inni Druk. Sú mynd fékk nýverið Ósk­arsverð­launin sem besta erlenda myndin.

Nýjasta rósin í hnappa­gat Mads Mikk­el­sen er sú frétt að hann muni leika stórt hlut­verk í nýrri Indiana Jones kvik­mynd (þeirri fimmtu) en tökur á henni eiga að hefj­ast í sumar. Áætlaður frum­sýn­ing­ar­dagur er 22. júlí 2022.

Með báða fætur á jörðinni þrátt fyrir frægðina

Danskir kvik­mynda­sér­fræð­ingar eru á einu máli um að Mads Mikk­el­sen sé nú þekkt­asti leik­ari Dana. Í næstu tröppu fyrir neðan eru þeir Nikolaj Coster- Waldeau og Jesper Christensen sem báðir hafa gert það gott í fjöl­mörgum kvik­myndum.

Sér­fræð­ing­arnir segja að fyrir utan það að vera leik­ari í fremstu röð hafi Mads Mikk­el­sen orð á sér fyrir að vera auð­veldur í sam­starfi og laus við alla stjörnu­stæla. Það skipti alltaf miklu máli, líka í Hollywood.

Í við­tali við danska sjón­varpið fyrir nokkrum dögum sagð­ist Mads Mikk­el­sen vera þakk­látur fyrir vel­gengni sína. „Ég hef verið mjög hepp­inn, fengið mörg tæki­færi sem ég hef reynt að nýta. Ég hlakka mjög til að taka þátt í Indiana Jones mynd­inni, en segi ekki meira um það.“

Var heppinn að klúðra ekki öllu

Í við­tali, fyrir nokkrum dögum, við banda­ríska tíma­ritið Vulture sagði Mads Mikk­el­sen frá því að minnstu hefði munað að hann hefði klúðrað hugs­an­legum frama sínum, að minnsta kosti í erlendum kvik­myndum. Hann var þá í flug­vél á leið­inni til Banda­ríkj­anna til að fara í prufu vegna Casino Royale. Hann var með hand­ritið með sér og lagði það frá sér í sætið við hlið­ina.

Þegar hann fór frá borði gleymdi hann hand­rit­inu en upp­götv­aði það ekki fyrr en hann var kom­inn út úr flug­vél­inni. Hann fékk ekki að fara aftur um borð. Í ljós kom að hrein­gern­inga­fólk, sem rauk um borð um leið og far­þeg­arnir voru farnir út, hafði hent hand­rit­inu í ruslið. „Ef ein­hver hefði áttað sig á hvað þetta var og komið því í fjöl­miðla hefði tvennt gerst. Ég hefði getað gleymt því að fá hlut­verk í erlendum kvik­myndum og sömu­leiðis hefði verið búið að ljóstra öllu upp um sögu­þráð­inn. Ég hef passað mig á að láta þetta ekki ger­ast aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár