Kartöflur í nýju ljósi?

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Kart­öflur eftir fjöl­lista­hóp­inn CGFC í Borg­ar­leik­hús­inu.

CGFC & Halldór Eldjárn í samvinnu við Borgarleikhúsið: Kartöflur

Höfundur: Hópurinn

Leik­stjórn: Hópurinn

Leikmynd: Hópurinn

Tónlist: Halldór Eldjárn

Sviðs­hreyf­ingar: Marta Áka­dóttir

Leik­endur: Arnar Geir Gúst­afs­son, Birnir Jón Sig­urðs­son, Hallveig Kristín Eiríks­dóttir, Ýr Jóhanns­dóttir.

Þegar minnst er á kart­öflur sem heiti á leik­verki má eiga á ýmsu von. Ef und­ir­rit­aður miðar við annað af álíku tagi og sem finna má í eigin bóka­skáp, þá hefur bókin um baunir að geyma alls kyns fróð­leik um gildi bauna fyrir heilsu manns­ins; bókin um þorskinn segir frá fisk­inum sem hafði svo mikla þýð­ingu fyrir efna­hag heims­ins. Þannig mætti örugg­lega lengi telja. Kart­öflur eru til­tölu­lega ný fæða á borðum mann­kyns, a.m.k. þess hluta mann­kyns sem býr í Gamla heim­inum, henni Evrópu, en hingað kom kartaflan frá Suð­ur­am­er­íku

Kart­öflur heitir leik­verkið og er samið og sýnt af CGFC-hópnum, sem getið hefur sér orðs sem fjöl­lista­hóps sem sam­anstendur af fjórum ein­stak­lingum: Arnar Geir Gúst­afs­son er BA í félags­fræði úr Háskóla Íslands og MA í borg­ar­fræðum frá Kon­ung­lega tækni­há­skól­anum í Stokk­hólmi auk þess að hafa lært við Sjón­lista­deild Mynd­list­ar­skól­ans í Reykja­vík; Ýr Jóhann­es­dóttir er með BA-gráðu í Textíl­hönnun frá Glasgow School of Art og Mynd­list­ar­skól­anum í Reykja­vík, en hún stundar nú nám í List­kennslu­fræðum við LHÍ; Birnir Jón Sig­urðs­son er með BA-gráðu af sviðs­höf­unda­braut frá LHÍ auk þess sem hann skrifar og gaf nýverið út sína fyrsta bók hjá For­lag­inu; þá er Hallveg Kristín Eiríks­dóttir með BA-gráðu af Sviðs­höf­unda­braut LHÍ og diplóma gráðu í Leik­mynda­hönnun frá Centro Uni­versit­ario de Arte TAI í Madríd.

[adspot]

Það er því alveg ljóst að það er fjöl­breyti­legur hópur kokka sem kemur að suðu á þeim kart­öflum sem í boði eru á Litla sviði Borg­ar­leik­húss­ins. Sýningin var raunar frum­sýnd í vor sem leið og var þá til­nefnd til grímu­verð­launa sem Leikrit árs­ins 2020, og fyrir vikið var hópnum boðið að sýna nokkrar sýn­ingar í Borg­ar­leik­hús­inu nú í haust, en upp­haf­lega var Kart­öflur sýnt undir for­merkjum verk­efnis á vegum Borg­ar­leik­húss­ins sem kall­að­ist Umbúða­laust; leik­húsið aug­lýsti eftir hug­myndum frá sviðs­lista­fólki yngra en 35 ára að sýn­ingum fyrir nýtt svið sem kall­að­ist Umbúða­laust – Stúdíó Borg­ar­leik­húss­ins og sem starf­rækt var á þriðju hæð húss­ins. Ætlunin var að þróa þar vett­vang til að þróa hug­myndir og setja upp sýn­ingar í hráu rými með lít­illi umgjörð og starf­semi þessa nýja sviðs átti (og á jafn­vel enn – sjáum hvað setur þegar starf­semi húss­ins verður komin í eðli­legt horf að loknu covid-tíma­bili) að efla tengsl yngstu kyn­slóðar sviðs­höf­unda við áhorf­endur.

Að öðru leyti er fer­ill Fjöl­lista­hóps­ins CGFC næsta ótrú­legur. Hann varð til árið 2015 eftir að með­limir hóps­ins höfðu starfað í Skapandi Sum­ar­störfum í Kópavogi, en saman náðu þeir sama haust, með því að ramba á nor­ræna styrk­um­sókn sem fleytti hópnum til Noregs þar sem þau suðu saman nýstár­legt verk sem vakti næga athygli til að þeim var boðið að sýna á Akureyri og þar varð til sýn­ingin Skugga-Sveinn. Aftur fékk svo hóp­ur­inn nor­rænan styrk til að skapa og sýna verk um land allt, í Færeyjum, Helsinki og Luleå. Þvínæst fylgdi sýn­ing um ein­elti og eftir það var komið að Kart­öflum á ótrú­legum ferli hóps­ins. Haustið 2018 var sótt um lista­manna­laun til að gera verk um kart­öflur. Ekki fékk hóp­ur­inn lista­manna­launin, en hug­myndin var engu að síður komin á flug og náði á end­anum far­sælli lend­ingu ásamt tveimur öðrum verk­efnum á hinu nýja til­rauna­sviði Borg­ar­leik­húss­ins.

Hópurinn vildi „kafa í lægsta sam­nefn­ara Íslend­inga, kart­öfl­una“, svo vitnað sé til bréfs frá einum með­lima hóps­ins í bréfi til und­ir­rit­aðs. Hópurinn leit­aði í sögu­legar heim­ildir um kart­öflur og fann þar m.a. afar merki­lega sögu um Helgu Gísla­dóttur kart­öflu­bónda, sem mun vera eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur fengið kart­öflu­yrki nefnt eftir sér, hann leit­aði til afkom­enda Helgu og ann­arra kart­öflu­bænda, leitað var sam­starfs við kart­öflu­fram­leið­endur í Þykkvabæ og rætt við Hildi Hákon­ar­dóttur, lista­konu og rit­höf­und. Öllu þessu efni og meira til var síðan mokað upp á sviðið og hóp­ur­inn fór að skapa úr því sýn­ingu.

Og hvernig hefur þá til tek­ist? Hvað segir fjöl­lista­sýn­ingin Kart­öflur um Íslend­inga og þennan algenga og hvers­dags­lega rót­ar­á­vöxt sem við leggjum okkur til munns? Fáum við að vita eitt­hvað nýtt, eitt­hvað bylt­ing­ar­kennt, eitt­hvað sem hingað til hefur verið hulið sjónum okkar?

Það skal fyrst tekið fram, að und­ir­rit­aður er yfir­leitt vel stemmdur fyr­ir­fram gagn­vart verkum þar sem til stendur (eða það heldur und­ir­rit­aður að minnsta kosti) að taka fyrir eitt­hvert fyr­ir­bæri úr sögu og/eða menn­ingu þjóðar eða und­ir­hóps og varpa á það nýju ljósi og setja í nýtt sam­hengi. Það fylgir því ávallt ein­kenni­legur léttir að upp­götva með hjálp list­rænnar frá­sagnar nýtt og óvænt sam­hengi hlut­anna, það er líkt og hug­ur­inn losni úr spenni­treyju og fái að draga að sér ferskara loft, hann verður frjáls­ari og víð­sýnni og finnur sig allt í einu reiðu­bú­inn að takast á við veru­leik­ann haf­andi öðl­ast nýjan styrk. Þetta er sú blessun sem fylgir allri list þar sem tek­ist er á við grund­vall­ar­spurn­ingar, leitað undir yfir­borðið og kafað eftir dýpri merk­ingu. Það, að takast á við kart­öflur, getur einmitt falið í sér slík átök með til­heyr­andi frels­is­til­finn­ingu þegar ný þekk­ing festir rætur í til­finn­inga­líf­inu.

Og svo vikið sé að spurn­ing­unni – fáum við að sjá kart­öflur í nýju ljósi? – þá er svarið beggja blands. Í upp­hafi sýn­ing­ar­innar er sagt frá konu að nafni Helga Gísla­dóttir. Hún var á sínum tíma kart­öflu­bóndi sem rækt­aði kart­öflu­yrki sem hlaut á end­anum þann sess að vera flokkað sem sjálf­stætt yrki og fékk eigið nafn: Helga, eftir bónd­anum sem hafði tek­ist að rækta það. Kartaflan Helga þótti víst fyr­ir­taks rót­ar­á­vöxtur og átti sann­ar­lega skilið þennan sess. Og það hefði verið gaman að heyra meira af Helgu og örlögum hennar, ekki síst í ljósi þess að leik­hóp­ur­inn gerði þrjósku­lega og ástríðu­fulla til­raun til að leið­rétta upp­lýs­ingar á heima­síðu þar sem Helga var rang­feðruð.

En ein­hvers staðar í ferl­inu er eins og hafi vaknað spurn­ingin um beikon­bugður. Og þá fer af stað önnur saga, miklum mun lít­il­væg­ari en sagan af Helgu, sem var veru­lega spenn­andi. Beikon­bugður hafa þann eina skyld­leika við kart­öflur að vera fram­leiddar í Þykkva­bænum, þær munu á sínum tíma hafa verið flokk­aðar sem Þykkva­bæj­ar­snakk, og þeirri spurn­ingu er varpað fram, óljóst að vísu, hvort beikon­bugður hafi verið fram­leiddar úr sama hrá­efni og kart­öflu­flögur. Það kemur svo í ljós að beikon­bugður eru hvorki kart­öflur né beikon heldur í raun veganísk fram­leiðsla. Það er í sjálfu sér athygl­is­verð upp­götvun og það má vel halda því fram að það segi sitt um mat­ar­menn­ingu Íslend­inga og vest­rænna þjóða almennt. Það er líka vel hugs­an­legt að það hefði mátt nota sem einn sögu­þráð af mörgum í fjöl­lista­sýn­ingu.

Það er auð­vitað ætlun hóps­ins. En hér verður úr það sem Þór­bergur Þórð­ar­son hefði á sínum tíma kallað rugl­anda; með beikon­bugð­unum er eins og sýn­ing­unni fat­ist flugið, tengslin milli þeirra og kartafl­anna er óskýr og ekki hirt um að hlúa að tengsl­unum þannig að áhorf­andi sé áreynslu­laust með á nót­unum. Og það sem verra er, sagan af Helgu kart­öflu­bónda gufar upp og birt­ist ekki fyrr en í lokin með frá­sögn af gjörn­ingi þegar Land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu er fært mál­verk af Helgu og þá er eig­in­lega búið að skop­gera sög­una af Helgu og smækka hana og sögu hennar. Sem er synd, Helga kart­öflu­bóndi á það tæp­ast skilið.

Hópurinn hefði unnið á því að fá til liðs við sig tvo krafta: drama­t­úrg, sem hugs­an­lega hefði getað komið nokkru skikki á frá­sögn­ina, gert hana heil­steypt­ari, og svo leik­stjóra, sem hefði getað sam­ræmt krafta leik­ar­anna. Leik­ar­arnir eru mis­jafnir að tækni­legri kunn­áttu en það sem einkum truflar við leik­inn er, að það tekst hvergi að byggja karakter í sýn­ing­una, engum leik­ar­anna tekst raun­veru­lega að kom­ast frá sjálfum sér og inn í þá sögu sem þó er verið að segja. Fyrir vikið verður sýn­ingin eins konar blend­ingur gjörn­ings og leik­sýn­ingar og miðað við efnið og þó þau efn­is­tök sem lagt er upp með hefði verið eðli­leg­ast að vinna að því að vinna sýn­ing­una í átt að hefð­bund­inni leik­sýn­ingu. Leik­hóp­ur­inn hefur hér sjálfur ann­ast þá leik­stjórn sem við er höfð og vissu­lega segir mál­tækið að sjálfs sé höndin holl­ust, en hér á það ekki við.

Það getur einatt verið styrkur að utan­að­kom­andi þekk­ingu og það sést vel þegar hóp­ur­inn beitir öguðum sviðs­hreyf­ingum. Þótt þær séu ein­faldar í sniðum eru þær hann­aðar og æfðar af Mörtu Áka­dóttur og þau atriði lyfta sýn­ing­unni veru­lega og verða merk­ing­ar­ber­andi; hið sama má segja um tón­list og hljóð­mynd Halldórs Eldjárns, sem er á köflum afburða­góð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár