Viljayfirlýsing um byggingu þjóðarhallar var samþykkt einróma í borgarráði

Vilja­yf­ir­lýs­ing ríkis og borgar um nýja þjóð­ar­höll er dag­sett 3. maí. Hún var hins vegar ekki gerð opin­ber fyrr en í gær, eftir sam­þykkt borg­ar­ráðs á fimmtu­dag og rík­is­stjórnar á föstu­dag.

Í tillögunni sem lögð var fram í borgarráði sagði að yfirlýsingin taki af skarið um undirbúning og byggingu þjóðarhallar í Laugardal.
Í til­lög­unni sem lögð var fram í borg­ar­ráði sagði að yfir­lýs­ingin taki af skarið um und­ir­bún­ing og bygg­ingu þjóð­ar­hallar í Laug­ar­dal. Mynd: Bára Huld Beck

Vilja­yf­ir­lýs­ing íslenska rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar um bygg­ingu þjóð­ar­hallar í inn­an­hús­í­þróttum í Laug­ar­dal, sem dag­sett er 3. maí, var lögð fram í borg­ar­ráði Reykja­víkur til sam­þykktar á fimmtu­dag. Afgreiðsla máls­ins var hins vegar færð í trún­að­ar­bók ráðs­ins vegna þess að rík­is­stjórn tók hana ekki til sam­þykktar fyrr en dag­inn eftir, föstu­dag­inn 6. maí.

Kjarninn hefur fengið það stað­fest hjá Reykja­vík­ur­borg að vilja­yf­ir­lýs­ingin hafi verið sam­þykkt ein­róma af öllum full­trúum flokka sem sitja í borg­ar­ráði. Fundinn á fimmtu­dag sátu, auk Dags. B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra, Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar, Heiða Björg Hilm­is­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, Alex­andra Briem, borg­ar­full­trúi Pírata, Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna, Eyþór Laxdal Arnalds, sem leiddi lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kosn­ing­unum 2020 og Jórunn Pála Jón­as­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks. Þá tók Hildur Björns­dóttir, núver­andi odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni, sæti á fund­inum í gegnum fjar­fund­ar­búnað. Auk þess sátu þrír áheyrn­ar­full­trúar minni flokka fund­inn, en þeir hafa, eðli máls­ins sam­kvæmt, ekki atkvæð­is­rétt.

Viðræður staðið yfir frá áramótum

Í til­lög­unni sem lögð var fram í borg­ar­ráði sagði að yfir­lýs­ingin taki af skarið um und­ir­bún­ing og bygg­ingu þjóð­ar­hallar í Laug­ar­dal. „Form­legar við­ræður hafa staðið yfir frá sl. ára­mótum. Að þeim hafa komið Ómar Ein­ars­son fram­kvæmda­stjóri ÍTR, Halldóra Kára­dóttir sviðs­stjóri fjár­mála og áhættu­stýr­ing­ar­sviðs og Þór­hildur Lilja Ólafs­dóttir lög­maður hjá emb­ætti borg­ar­lög­manns, auk borg­ar­stjóra. Í Þjóð­ar­höll og upp­gerðri Laug­ar­dals­höll verður, auk þarfa lands­liða og alþjóð­legra krafna til þjóð­ar­leik­vanga, gert ráð fyrir fram­úr­skar­andi afstöðu fyrir æfingar barna- og ung­linga í Laug­ar­dal og félag­anna Þróttar og Ármanns og verður haft sam­ráð við full­trúa félag­anna í frek­ari þarfa­grein­ingu og hönnun.“

[links]Vilja­yf­ir­lýs­ingin var svo lögð fyrir rík­is­stjórn­ar­fund í gær og und­ir­rituð síð­degis sama dag af Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, Ásmundi Einari Daða­syni mennta- og barna­mála­ráð­herra og Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóri. Stefnt er að því að fram­kvæmdum ljúki árið 2025 og kostn­að­ar­skipt­ing milli ríkis og borgar á að taka mið af nýt­ingu mann­virk­is­ins. Það þýðir að ríkið borgar fyrir þann hluta sem snýr að þörfum sér­sam­banda og alþjóð­legra krafna til keppn­is­að­stöðu lands­liða og Reykja­vík­ur­borg þann hluta sem snýr að þörfum Þróttar og Ármann ann­ars vegar og íþrótta­kennslu skóla í Laug­ar­dalnum hins veg­ar. ­Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans verður fullt aðgengi íþrótta­fé­lag­anna að æfinga­völlum tryggt í þeirri þarfa­grein­ingu.

Til stendur að byggja höll­ina á svæði sem liggur milli Laug­ar­dals­hallar og skrif­stofu­mann­virkja Íþrótta­sam­bands Íslands, og að Suð­ur­lands­braut.

Í til­kynn­ingu segir að Ríki og borg muni standa sam­eig­in­lega að hug­mynda­sam­keppni um hönnun mann­virkis og útlit og séu „sam­mála um að leggja kraft í verk­ið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár