Niðurstaða um þjóðarhöll kynnt á föstudag

Ríki og borg hafa kom­ist að nið­ur­stöðu um hvort þjóð­ar­höll fyrir inni­í­þróttir rísi í Laug­ar­dal. Hún verður kynnt í borg­ar­ráði á fimmtu­dag og fyrir rík­is­stjórn á föstu­dag. Í kjöl­farið fær almenn­ingur að vita hvort ráð­ist verður í fram­kvæmd­ina.

Það styttist í að fyrir liggi hvort ný þjóðarhöll rísi í Laugardalnum eða ekki.
Það stytt­ist í að fyrir liggi hvort ný þjóð­ar­höll rísi í Laug­ar­dalnum eða ekki. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Síðustu daga, sér­stak­lega um liðna helgi, áttu sér stað stíf sam­töl milli for­svars­manna Reykja­vík­ur­borgar og ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands um hvort ráð­ist yrði í bygg­ingu svo­kall­aðrar þjóð­ar­hallar í Laug­ar­dal. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, hafði gefið rík­inu frest fram í byrjun maí til að leggja fram fé í verk­efnið. Næðist það ekki myndi borgin taka tvo millj­arða króna sem hún hefur sett til hliðar fyrir það og nota þá til að byggja nýtt íþrótta­hús fyrir iðk­endur Þróttar og Ármanns í Laug­ar­dal.

Í sam­tali við Kjarnann segir Dagur að nið­ur­staða liggi fyrir. Hún verði kynnt í borg­ar­ráði Reykja­víkur á fimmtu­dag og í rík­is­stjórn á fundi hennar á föstu­dag. Í kjöl­farið verður sú nið­ur­staða gerð opin­ber. Hann vill ekki greina frá henni sem stendur.

Gæti kostað hátt í níu milljarða

Laug­ar­dals­höllin hefur verið heim­ili lands­liða Íslands í körfu­bolta og hand­bolta í ára­tugi. Hún er barn síns tíma og er rekin á und­an­þágu þar sem hún upp­fyllir ekki alþjóð­lega staðla.

Til að upp­­­fylla alþjóð­­legar kröfur þarf að byggja nýtt mann­­virki. Verkís verk­fræð­i­­stofa var fengin til þess að gera kostn­að­­ar­­mat á bygg­ingu mann­­virkis á sínum tíma ásamt því að leggja mat á rekstr­­ar­­kostn­að. Heild­­ar­­kostn­aður við bygg­ingu þjóð­­ar­­leik­vangs fyrir inn­i­í­­þróttir var áætl­­að­ur á bil­inu 7,9 til 8,7 millj­­arðar króna. Mun­­ur­inn fólst í því hvort húsið eigi að taka fimm þús­und eða 8.600 áhorf­end­­ur.

[adspot]Vilji hefur verið fyrir því að byggja þetta mann­virki, svo­kall­aða þjóð­ar­höll, í Laug­ar­dalnum þar sem aðrir þjóð­ar­leik­vangar eru sem stendur.

Á sama tíma er sú staða uppi að gríð­ar­lega fjöl­mennar iðk­enda­deildir hverf­is­fé­lag­anna Þróttar og Ármanns eiga ekk­ert íþrótta­hús. Mikill þrýst­ingur hefur verið frá félög­unum og íbúum hverf­is­ins um að ráða þar bót á. Hug­myndin um þjóð­ar­höll felur í sér að þau félög gætu nýtt hana undir sína starf­semi og þannig yrðu tvö úrlausn­ar­efni leyst með einni fram­kvæmd. Sá hagur á að vera á þeirri leið fyrir Þrótt og Ármann að í þjóð­ar­höll verði fjórir æfinga­vellir fyrir börn og ung­menni en í íþrótta­húsi fyrir félögin yrðu vell­irnir tveir.

Borgarstjóri gaf tímafrest

Ráðamenn þjóð­ar­innar hafa ítrekað lofað því að ráð­ist yrði í verk­efnið, sem yrði að vera sam­vinnu­verk­efni ríkis og borgar. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna­mála­ráð­herra, sagði í des­em­ber síð­ast­liðnum að hans hugur stæði til þess að á þessu kjör­tíma­bili yrði hægt að fara á heima­leiki á nýjum þjóð­ar­leik­vangi.

[links]Svo gerð­ist lítið sem ekk­ert, þangað til á opnum íbúa­fundi borg­ar­stjóra í Laug­ar­nes­skóla 2. mars síð­ast­lið­inn. Þar sagði Dagur að Reykja­vík­ur­borg hefði tekið frá fjár­muni í upp­bygg­ingu íþrótta­húss og að hún héldi því enn opnu hvort þeim yrði best varið í þjóð­ar­höll eða í sér­stakt íþrótta­hús. Skil­yrðið væri að pen­ing­arn­ir, um tveir millj­arðar króna, myndu nýt­ast fyrir börn og ung­menni í Laug­ar­dal.

Borg­ar­stjór­inn sagði á fund­inum að því yrði gefin mjög skammur tími að láta á þetta reyna. „Við erum búin að taka frá pen­inga fyrir öðrum hvorum kost­in­um. Þannig að það verður að skýr­ast á þessu vori, og ég hef rætt það síð­ast í gær við fleiri en einn ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands, að ríkið ætli sér raun­veru­lega að fara í þetta og setji pen­ing á borð­ið. Ef að það ger­ist ekki þá förum við í sér­stakt hús fyrir Þrótt og Ármann.“

Hann fékk spurn­ingu úr sal um hversu skammur tími yrði gefin og sagði að slaki yrði gef­inn fram að birt­ingu nýrrar fjár­mála­á­ætl­unar rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árin 2023-2028. „Ég segi að ef það verða ekki pen­ingar í þetta þar þá meina þau ekk­ert með þessu. Þannig að fyrir 1. maí þarf þetta að liggja fyr­ir. Ann­ars legg ég til­lögu fyrir borg­ar­ráð 5. maí.“

Ekki var gert ráð fyrir sér­stökum fjár­munum í upp­bygg­ingu þjóð­ar­leik­vanga í áætl­un­inni þegar hún var birt í lok mars.

Bjarni vildi að borgin borgaði meira

Þann 24. apríl mætti Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, svo í útvarps­þátt­inn Sprengisand á Bylgj­unni. Þar gagn­rýndi hann Reykja­vík­ur­borg harð­lega fyrir hennar afstöðu í þjóð­ar­hall­ar­mál­inu. „Mér finnst töl­urnar sem REykja­vík hefur verið að nefna í þessu sam­bandi mjög lágar. Tveir millj­arðar í hús sem gæti kostað sjö til níu millj­arða sem mér finnst ekki há fjár­hæð. Garðabær var að reisa íþrótta­mann­virki um dag­inn sem kost­aði fjóra millj­arða.“

Bjarni sagði að það væri sinn skiln­ingur að borgin hefði ákveðið að for­gangs­raða með öðrum hætti. „Ég verð að segja að ég varð eig­in­lega hálf orð­laus eftir að stofnað hafði verið hluta­fé­lag til að ræða þetta, að hafa verið í góðri trú um að við værum að fara að ræða ein­hverja alvöru kostn­að­ar­skipt­ingu. Þá var það þannig sem sá fundur end­aði.“

Nú liggur fyrir nið­ur­staða í mál­inu sem verður kynnt á föstu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár