Áslaug Friðriksdóttir bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna á Ísafirði

Fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík verður bæj­ar­stjóri í Ísa­fjarð­arbæ ef flokk­ur­inn nær að mynda meiri­hluta þar eftir rúma viku.

Áslaug Friðriksdóttir.
Áslaug Frið­riks­dóttir. Mynd: Oddur Atlason

Áslaug María Frið­riks­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er bæj­ar­stjóra­efni Sjálf­stæð­is­flokks í Ísa­fjarð­arbæ kosn­ing­unum sem fara fram eftir rúma viku. Frá þessu er greint á vef Bæjarins besta.

Þar er haft eftir Áslaugu að hún hafi ekki þurft að hugsa sig lengi um þegar leitað var til hennar. „Eftir stuttan umhugs­un­ar­frest fann ég að bæði hugur og hjarta sögðu já, enda eru taug­arnar vestur afar sterkar og hlýjar. Mér finnst líka að fram­bjóð­enda­hóp­ur­inn sé að slá á nýja strengi, er ferskur og fram­sæk­inn en skilur einnig að gott sam­starf er for­senda fram­fara enda leggja þau áherslu á bætt sam­skipti og sam­ráð við íbúa á svæð­inu. Ég er þess full­viss að ég geti lagt margt gott til mál­anna.“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sem stendur í meiri­hluta­sam­starfi við Fram­sókn­ar­flokk­inn í Ísa­fjarð­arbæ. Flokk­ur­inn er með þrjá af níu bæj­ar­full­trúum. Sá meiri­hluti réð Guðmund Gunn­ars­son, nú við­skipta­rit­stjóra Frétta­blaðs­ins, sem bæj­ar­stjóra eftir síð­ustu kosn­ingar en sagði honum upp störfum 2020. Núver­andi bæj­ar­stjóri er Birgir Gunn­ars­son. Hann réð sig sem fram­kvæmda­stjóra rekstr­ar­stofu Þjóð­kirkj­unnar fyrr á þessu ári og hefur þar störf eftir kom­andi kosn­ingar.

[adspot]Áslaug var á meðal þeirra sem sótt­ist eftir því að verða odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík fyrir kosn­ing­arnar 2018, en laut í lægra haldi fyrir Eyþóri Arnalds. Hún sótt­ist í kjöl­farið eftir sæti neðar á fram­boðs­list­anum en var ekki boðið neitt sæti.

Í við­tali við Mann­líf vorið 2018 sagð­ist Áslaug hafa orðið fyrir von­brigð­um, en hún hafði talað fyrir þétt­ingu byggð­ar, lýst vilja til að ræða borg­ar­línu og viljað starfa með meiri­hlut­anum í Reykja­vík að þeim málum sem hún hefur getað séð sam­eig­in­legan flöt á. „Með þessu tekur flokk­ur­inn þá áhættu að höfða til þrengri hóps en hann hefði ann­ars gert nema að ein­hverjir á fram­boðs­list­anum tali til þess hóps. Ég er ekki sú eina sem er á þess­ari mál­efna­línu og veit að meðal nýrra fram­bjóð­enda er fólk sem er sam­mála mér um margt. Ég vona að þeir fram­bjóð­endur fylgi sann­fær­ingu sinni og láti ekki þagga niður í sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár