Allir þurfa að hafa sömu skoðanir í flokknum

Áslaug Frið­riks­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins fékk ekki sæti á lista flokks­ins fyrir kosn­ingar í vor. Hún varð fyrir von­brigðum með vinnu­brögðin við upp­still­ingu list­ans og segir skort á umburð­ar­lyndi fyrir mis­mun­andi skoð­unum innan flokks­ins.

Áslaug Frið­riks­dóttir borg­ar­full­trúi sjálf­stæð­is­manna verður ekki meðal fram­bjóð­enda flokks­ins í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Eftir að hafa tapað í odd­vita­kjöri gegn Eyþóri Arnalds sótt­ist hún eftir sæti neðar á fram­boðs­list­anum en var ekki boðið neitt sæti. Áslaug hefur talað fyrir þétt­ingu byggðar, lýst vilja til að ræða borg­ar­línu og viljað starfa með meiri­hlut­anum í Reykja­vík að þeim málum sem hún hefur getað séð sam­eig­in­legan flöt á. Í ítar­legu við­tali í nýj­ustu útgáfu Mannlífs seg­ist Áslaug hafa orðið fyrir von­brigðum.

„Með þessu tekur flokk­ur­inn þá áhættu að höfða til þrengri hóps en hann hefði ann­ars gert nema að ein­hverjir á fram­boðs­list­anum tali til þess hóps. Ég er ekki sú eina sem er á þess­ari mál­efna­línu og veit að meðal nýrra fram­bjóð­enda er fólk sem er sam­mála mér um margt. Ég vona að þeir fram­bjóð­endur fylgi sann­fær­ingu sinni og láti ekki þagga niður í sér.“

Hún seg­ist hafa orðið meira og meira vör við þá kröfu að allir þurfi að hafa sömu skoð­anir til að vera gjald­gengir innan flokks­ins í Reykja­vík. „Ég tel að í gegnum tíð­ina hafi það verið einn helsti styrk­leiki flokks­ins að hafa umburð­ar­lyndi fyrir blæ­brigðum skoð­ana innan hans. Þetta umburð­ar­lyndi hefur verið ein for­senda þess að flokk­ur­inn hefur verið jafn stór og raun ber vitni. Skortur á þessu umburð­ar­lyndi mun ekki stækka heldur þvert á móti minnka flokk­inn í Reykja­vík.“

Hún telur að til dæmis Borg­ar­línu­verk­efnið eigi vel við þá áherslu sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggur á frelsi til að velja bæði á lands­vísu og í borg­ar­málum. „Frelsi til að velja er ein aðal­á­hersla flokks­ins. Í sveit­ar­stjórnum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er í for­ystu fram­bæri­legt sjálf­stæð­is­fólk sem er að vinna á mjög svip­uðum nótum og við vorum að gera í borg­inni hjá flokknum fyrir nokkrum árum. Þessar sveit­ar­stjórnir sem hafa Sjálf­stæð­is­menn í broddi fylk­ingar eru að vinna með meiri­hlut­anum í Reykja­vík þegar kemur að Borg­ar­línu”, segir Áslaug. Henni kemur hins vegar á óvart að í ljósi þessa sé ekki eitt orð að finna um Borg­ar­línu í glæ­nýrri Lands­fund­ar­á­lyktun Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Frí­blaðið Mann­líf kom inn um bréfalúgur íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í sjö­unda sinn í morg­un. Blað­inu er dreift frítt í 80 þús­und ein­tök­um. Um er að ræða sam­starfs­verk­efni útgáfu­­fé­lags­ins Birt­ings og Kjarn­ans miðla.

Í Mann­­lífi er lagt mikið upp úr gæðum efnis úr mörgum átt­­um. Rit­­stjórn Kjarn­ans sér um vinnslu frétta, frétta­­skýr­inga, úttekta, skoð­ana­­greina og frétta­tengdra við­tala á meðan að rit­­stjórnir Gest­gjafans, Hús og híbýla og Vik­unnar vinna áhuga­vert og skemmti­­legt efni inn í aft­­ari hluta blaðs­ins.

Efn­is­tök eru því afar fjöl­breytt. Í Mann­­lífi er að finna lífstílstengt efni um heim­ili, hönn­un, ferða­lög, mat og drykk í bland við vand­aðar frétta­­skýr­ingar og við­­töl við áhuga­vert fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár