Guðmundur genginn í Viðreisn og sækist eftir oddvitasæti á heimaslóðum

Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Ísafirði ætlar í stjórn­mál og sæk­ist eftir því að leiða lista Við­reisnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir kom­andi alþing­is­kosn­ingar. Hann seg­ist hafa skoðað fleiri kosti, en innst inni hafi hann vitað að Viðreisn yrði fyrir val­inu.

Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði.
Guð­mundur Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Ísafirði. Mynd: Facebook-síða Guðmundar Gunnarssonar.

Guð­mundur Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Ísafirði, sæk­ist eftir því að leiða lista Við­reisnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í kom­andi alþing­is­kosn­ingum, sem eiga að fara fram næsta haust. Frá þessu var fyrst greint á Vísi í dag en Guð­mundur stað­festir þetta í sam­tali við Kjarnann.

„Ég er alla­vega geng­inn í flokk­inn,“ segir Guð­mundur, sem segir það stórt skref fyrir mann sem hafi ekki verið hluti af stjórn­mála­afli áður. Hann seg­ist bjóða fram krafta sína og að hann hafi lýst yfir vilja til þess að fara í fram­boð í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, en svo muni upp­still­ing­ar­nefnd Við­reisnar leggj­ast yfir það „hverjir gefa sig í bar­dag­ann“ og hvernig list­inn eigi að vera.


Hann seg­ist treysta upp­still­ing­ar­nefnd­inni algjör­lega til þess að meta hvernig árangri verði best náð. „Ég er með metnað og ef það væri í mínum höndum að ráða þessu þá myndi ég fara sem efst,“ segir Guð­mundur.

Guð­mundur hefur látið nokkuð til sín taka í opin­berri umræðu frá því að hann lét af störfum sem bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar og orðrómar verið á kreiki um að hann ætl­aði sér að bjóða sig fram til stjórn­mála­starfs.

Kaus Viðreisn í síðustu kosningum

Spurður hvort aðrir stjórn­mála­flokkar en Viðreisn hafi komið til greina eftir að hann ákvað að stíga það skref segir Guð­mundur að hann hafi talið heið­ar­legt gagn­vart sjálfum sér og öðrum að skoða þau mál gaum­gæfi­lega. Hann hafi þannig bæði skoðað stefnur flokka og rætt við fólk.

Innst inni hafi hann þó alltaf vitað að Viðreisn yrði fyrir val­inu. „Þetta er nú flokk­ur­inn sem ég kaus í síð­ustu kosn­ingum,“ segir Guð­mundur við blaða­mann.

Hraktist frá Ísafirði eftir starfslok í kjölfar snjóflóða

Starfs­lok Guð­mundar sem bæj­ar­stjóra á Ísafirði fyrr á árinu vöktu mikla athygli, ekki síst þar sem hann hafði verið áber­andi í fjöl­miðlum í aðdrag­anda þeirra vegna snjó­flóð­anna sem féllu á Flateyri og Súg­anda­firði í febr­úar.

Í við­tölum við fjöl­miðla lýsti hann því yfir að sjálf­stæð­is­menn í meiri­hluta bæj­ar­stjórnar Ísa­fjarðar hefðu ekki stutt hann í starfi, en hann var ráð­inn þangað sem ópóli­tískur bæj­ar­stjóri. Í sam­tali við Mann­líf sagði Guð­mundur að það hefði skap­ast sér­stakur ágrein­ingur um hlut­verk sitt sem bæj­ar­stjóra og sýni­leika í kjöl­far snjó­flóð­anna á Flat­eyri og í Súg­anda­firði um miðjan jan­ú­ar. Sá ágrein­ingur varð til þess að upp úr sauð.[links]

Guð­mundur sagði að meiri­hlut­inn hefði lýst yfir óánægju með það hvernig hann hefði komið upp­lýs­ingum til þeirra og að hann hefði ekki sinnt kjörnu full­trú­unum nægi­lega mikið á þessum tíma. Til átaka kom á bæj­ar­stjórn­ar­fundi 17. jan­úar þar sem Guð­mundur rauk á end­anum á dyr. Hann sagði að hlut­irnir hefðu farið að „snú­ast um kjána­lega hluti eins og hver ætti að taka á móti for­sæt­is­ráð­herra og hver ætti að fara í þyrl­una og eitt­hvað svona bull.“

Í kjöl­farið á starfs­lok­unum flutti Guð­mundur frá Ísafirði með fjöl­skyldu sinni og búa þau nú í Kópavogi, þrátt fyrir að eiga sínar rætur fyrir vestan, en Guð­mundur er upp­al­inn í Bol­ung­ar­vík.

Í stöðu­upp­færslu á Face­book sagði hann meðal ann­ars: „Hér líður okkur ekki lengur vel. Atburðir síð­ustu vikna hafa gert það að verk­um. Ekki síst þær furðu­skýr­ingar sem grass­erað hafa í kjöl­far starfs­lokanna. En þetta er eins og það er. Við sjáum sæng okkar upp reidda og viljum ekki vera hluti af sam­fé­lagi þar sem fyr­ir­ferða­miklar stjórn­mála­hreyf­ingar umbera fanta­brögð freka kalls­ins og dreifa svo róg­burði til að rétt­læta þau.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár