„Svo kem ég bara heim og tek af þér djobbið“

Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Ísafirði segir að hann hafi aldrei notið stuðn­ings Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Eftir snjó­flóðin í síð­asta mán­uði hafi verið rif­ist á bæj­ar­stjórn­ar­fundi um „kjána­lega hluti eins og hver ætti að taka á móti for­sæt­is­ráð­herra.“

Guð­mundur Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæjar, segir í við­tali við Mannlíf í dag að hann hafi orðið þess mjög fljótt áskynja eftir að hafa verið ráð­inn í starfið að hann nyti ekki stuðn­ings Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem var stærri flokk­ur­inn í meiri­hlut­anum í sveit­ar­fé­lag­inu.

Ágrein­ing­ur­inn, sem leiddi til skyndi­legra starfs­loka Guð­mundar í síð­asta mán­uði, hafi ekki snú­ist um ákveðin mál heldur nálgun og aðferðir. Meiri­hlut­inn hafi litið á hann sem starfs­mann sem ætti fyrst og síð­ast að taka við skip­unum en hann sjálfur hefði litið á vinn­una sem teym­is­vinnu. Það sem sitji mest í honum frá bæj­ar­stjóra­ferl­inum sé sím­tal sem hann fékk frá Noregi í des­em­ber 2019 frá Daníel Jak­obs­syni, for­manni bæj­ar­ráðs Ísa­fjarð­ar­bæjar í starfs­leyfi og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra, sem þá var á leið­inni aftur heim til Ísa­fjarðar. „Hann end­aði sím­talið á því að segja svona í fram­hjá­hlaupi: „Svo kem ég bara heim og tek af þér djobbið.“ Ég man að mér fannst þetta furðu­legt og takt­laust og skrýtið. Hver segir svona í gríni eða alvöru?“

Rifist um hver ætti að taka á móti forsætisráðherra

Í við­tal­inu við Mannlíf segir Guð­mundur að það hafi líka skap­ast sér­stakur ágrein­ingur um hlut­verk bæj­ar­stjór­ans og sýni­leika í kjöl­far snjó­flóð­anna á Flateyri og í Súg­anda­firði um miðjan jan­úar. Sá ágrein­ingur varð til þess að upp úr sauð.

[adspot]Guð­mundur segir að meiri­hlut­inn hafi lýst yfir óánægju með það hvernig hann hefði komið upp­lýs­ingum til þeirra og að hann hefði ekki sinnt kjörnu full­trú­unum nægi­lega mikið á þessum tíma. Til átaka kom á bæj­ar­stjórn­ar­fundi 17. jan­úar þar sem Guð­mundur rauk á end­anum á dyr. Hann segir við Mannlíf að honum hafi þótt fund­ur­inn ótíma­bær, þar sem enn var allt í hers höndum vegna snjó­flóð­anna, vegna þess að hann hefði snú­ist um að fara í saumana á því hvað hefði verið hægt að gera betur. „Að fá þetta yfir sig … að við gerðum ekki nóg. Ég var búinn að leggja allt sem ég átti í að vera til staðar. En það var ekki nóg. Plantan í Litlu hryll­ings­búð­inni var enn þá svöng. Svo fór þetta að snú­ast um kjána­lega hluti eins og hver ætti að taka á móti for­sæt­is­ráð­herra og hver ætti að fara í þyrl­una og eitt­hvað svona bull.“

Nokkrum dögum síðar var hald­inn sátta­fundur þar sem tals­menn meiri­hlut­ans lýstu yfir óánægju sinni með Guðmund og störf hans. Í kjöl­farið var samið um starfs­lok hans og nýverið til­kynnti Guð­mundur að hann myndi flytja frá Ísafirði með fjöl­skyldu sinni. Í stöðu­upp­færslu á Facebook sagði hann meðal ann­ars: „Hér líður okkur ekki lengur vel. Atburðir síð­ustu vikna hafa gert það að verkum. Ekki síst þær furðu­skýr­ingar sem grass­erað hafa í kjöl­far starfs­lokanna. En þetta er eins og það er. Við sjáum sæng okkar upp reidda og viljum ekki vera hluti af sam­fé­lagi þar sem fyr­ir­ferða­miklar stjórn­mála­hreyf­ingar umbera fanta­brögð freka kalls­ins og dreifa svo róg­burði til að rétt­læta þau.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár