Blóðtöku hætt á átta bæjum vegna vanfóðrunar og slæms aðbúnaðar

Á fimm ára tíma­bili hefur blóð­töku fyl­fullra hryssa verið hætt á átta bæjum vegna van­fóðr­unar og slæms aðbún­aðar dýr­anna. Að auki hafa þrír blóð­mer­ar­bændur á sama tíma­bili ákveðið að hætta blóð­töku vegna væg­ari athuga­semda Mat­væla­stofn­unar.

Blóðtaka úr fylfullum merum var stunduð á 119 bæjum á Íslandi í fyrra.
Blóðtaka úr fyl­fullum merum var stunduð á 119 bæjum á Íslandi í fyrra. Mynd: Pexels

Aðeins einu sinni hefur komið til þess að Mat­væla­stofnun hefur stöðvað blóð­töku úr hryssum á blóð­töku­stað vegna dýra­vel­ferðar en það gerð­ist í sept­em­ber 2018. „Í því til­felli kom ábend­ing frá dýra­lækni um að í við­kom­andi hjörð væri tölu­vert um of grannar hryssur sem ekki upp­fylltu skil­yrði fyrir blóð­töku,“ segir Einar Örn Thorlacius, lög­fræð­ingur MAST. Hann segir starfs­menn MAST sam­stundis hafa farið á vett­vang og stöðvað blóð­töku úr allri hjörð­inni. „Sú stöðvun var var­an­leg.“

[links]Kjarninn óskaði í byrjun des­em­ber eftir marg­vís­legum upp­lýs­ingum um eft­ir­lit MAST með blóð­mera­haldi í kjöl­far harðrar gagn­rýni á stofn­un­ina, bændur sem halda blóð­merar og fyr­ir­tækið Ísteka sem nýtir blóðið til fram­leiðslu á frjó­sem­is­lyfjum til svína­ræktar. Gagn­rýnin spratt upp eftir að erlend dýra­vernd­un­ar­sam­tök birtu í nóv­em­ber upp­tökur sem sýndu hroða­lega með­ferð á fyl­fullum hryssum sem not­aðar eru til blóð­tök­unnar hér á landi.

MAST, sem hefur eft­ir­lit með þess­ari umdeildu atvinnu­grein, sagði í til­kynn­ingu í kjöl­far birt­ing­ar­innar að það verk­lag sem þar kæmi fram virt­ist „stríða gegn starfs­skil­yrðum starf­sem­innar sem eiga að tryggja vel­ferð hryssnanna“. Kom fram að stofn­unin liti málið alvar­legum augum. Gerði hún sjálf­stæða rann­sókn á mál­inu og vís­aði því svo í byrjun árs til lög­reglu til frek­ari rann­sóknar og aðgerða.

MAST sagði eftir birt­ingu mynd­bands­ins að eft­ir­lit með blóð­töku úr fyl­fullum hryssum væri „áhættu­miðað og í for­gangi“ hjá stofn­un­inni. Frá gild­is­töku reglu­gerðar um vel­ferð hrossa árið 2014, hefðu „skýr skil­yrði fyrir blóð­töku úr fyl­fullum hryssum“ verið sett og eft­ir­lit með starf­sem­inni aukið jafnt og þétt. Greinin hefur síðan þá verið í miklum vexti og í fyrra voru 5.383 hryssur nýttar í þessa starf­semi á 119 bæjum.

[adspot]

Eftirlit MAST er tví­þætt. Annars vegar er eft­ir­lit með vel­ferð, aðbún­aði og ástandi hrossa sem tengj­ast blóð­tök­unni hjá umráða­mönnum þeirra. Hins vegar er um að ræða sér­stakt eft­ir­lit með vel­ferð hryssa við blóð­töku. Sjálf blóð­takan er á ábyrgð líf­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Ísteka ehf, sem nýtir blóðið og dýra­læknar á vegum þess sjá um fram­kvæmd blóð­tök­unnar.

Brotalamir þekktar í mörg ár

Í svörum Einars Arnar Thorlacius, lög­fræð­ings MAST, sem bár­ust í síð­ustu viku, meira en tveimur mán­uðum eftir að Kjarninn sendi fyr­ir­spurn sína, kemur fram að í kjöl­far reglu­bund­ins, áhættu­mið­aðs eft­ir­lits með fóðrun og aðbún­aði blóð­töku­stóða að vetr­ar­lagi og/eða vori hafi Mat­væla­stofnun gert alvar­legar athuga­semdir á sex bæjum og upp­lýst Ísteka um að fyr­ir­tæk­inu sé þar með óheim­ilt að stunda blóð­töku á þeim bæjum. „Ísteka hefur í öllum til­fellum tekið þessa bæi af lista yfir sína við­skipta­vini og hætt blóð­töku,“ skrifar Einar Örn. Um var að ræða tvo bæi árið 2017, þrjá bæi árið 2019 og einn árið 2020. Ekki kom til vörslu­svipt­ingar á þeim bæjum.

Málunum var fylgt eftir með kröfum um úrbætur sam­kvæmt verk­ferlum stofn­un­ar­innar og við­un­andi úrbætur feng­ust án þess að koma þyrfti til vörslu­svipt­ingar. „Á einum þess­ara bæja hafði stofn­unin þó afskipti af hesta­hald­inu árið eftir að blóð­töku var hætt og hafði for­göngu um að fækka þar hrossum veru­lega í sam­ráði við ábú­anda. Einn bær hefur fengið að hefja starf­semi á ný í kjöl­far úttektar.

Einu sinni hefur eft­ir­lit í kjöl­far ábend­ingar frá almenn­ingi (nágranna) leitt í ljós „alvar­legt frá­vik við fóðrun og aðbúnað blóð­töku­hryssna að vetri og þar með var starf­sem­inni hætt á þeim bæ,“ segir í svörum Einars Arnar. Þetta var árið 2018.

Samtals hefur blóð­töku verið hætt á átta bæjum síð­ast­liðin fimm ár vegna „alvar­legra frá­vika við fóðrun og aðbúnað blóð­töku­hryssna,“ skrifar Einar Örn. Auk þess hafi ábyrgð­ar­menn hesta­halds á þremur bæjum til við­bótar ákveðið sjálfir að hætta blóð­töku í kjöl­far væg­ari athuga­semda frá Mat­væla­stofnun, einn 2017, einn 2019 og einn 2020.

Ísteka fram­leiðir um 10 kíló á ári af efni sem notað er í lyf til að auka frjó­semi svína og fleiri hús­dýra í land­bún­aði. Til stendur að auka fram­leiðsl­una um 100 pró­sent á næstu árum en til að fram­leiða 20 kíló af lyfja­efn­inu þarf um 600 tonn af blóði úr fyl­fullum merum.

40 lítrar af blóði teknir úr hverri hryssu

Fyl­fullar hryssur fram­leiða hormón sem kall­ast equine chorion gona­dotropin (eCG), áður kallað pregn­ant mare serum gona­dotropin (PMSC). Blóðtaka úr fyl­fullum merum, sem horm­ónið er svo unnið úr, hefur farið fram hér á landi allt frá árinu 1979 eða í rúm­lega 40 ár.

Blóð­takan fer fram í svoköll­uðum „blóð­töku­bási“ á búinu á viku fresti. Samkvæmt þeim skil­yrðum sem MAST hefur sett má aldrei taka meira en 5 lítra af blóði viku­lega úr hverri hryssu og að hámarki í átta vikur sem gerir 40 lítra af blóði úr hverri hryssu.

Tvöfalt magn miðað við alþjóðlega staðla

Tveir sviss­neskir dýra­læknar og áhuga­fólk um íslenska hest­inn, sem birtu opið bréf um málið í íslenskum fjöl­miðlum í upp­hafi árs, segja magn blóðs sem tekið er af fyl­fullum merum viku­lega hér á landi við blóð­mera­bú­skap vera rúm­lega tvö­falt magn miðað við við­ur­kennda, alþjóð­lega staðla um hámark þess blóð­magns sem má taka á eins til tveggja mán­aða fresti.

Þau Barla Barandun, dýra­læknir með sér­hæf­ingu í hesta­lækn­ingum, og Prof. Dr. med. vet. Ewald Isen­bügel, stofn­fé­lagi, fyrsti for­maður og heið­urs­fé­lagi FEIF og pró­fessor emeritus við dýra­lækna­deild háskól­ans í Zürich, fóru í grein sinni hörðum orðum um blóð­mera­hald á Íslandi. Samkvæmt útreikn­ingum þeirra á með­al­blóð­magni blóð­mera hér á landi má gera ráð fyrir um 24,5 lítrum. Ef tekið er dæmi um mjög þunga hryssu í góðu standi og með óvenju­hátt blóð­hlut­fall er blóð­magn hennar í mesta lagi 32 lítrar, skrif­uðu þau. „Þetta þýðir að hryss­urnar þurfa að end­ur­nýja allt blóð­magn sitt og gott betur (8 – 15 lítrum meira) innan tveggja mán­aða tíma­bils.“

[adspot]

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, lagði fram frum­varp á Alþingi í fyrra­vetur um að blóð­mera­hald yrði bannað. Hún hlaut nokkuð bágt fyrir á þeim tíma sem birt­ist til dæmis í harðri gagn­rýni í umsögnum við frum­varpið, m.a. frá dýra­læknum og öðrum sem að blóð­mera­haldi koma.

Í kjöl­far afhjúp­unar þýsku dýra­vernd­ar­sam­tök­unnar, sem sýndi hrotta­lega með­ferð á hryssum, var nokkuð annar tónn kom­inn í strokk­inn. Frum­varpið var lagt fram að nýju í des­em­ber og umsagn­irnar voru þá fleiri og í mörgum þeirra var tekið undir að banna ætti þessa iðju. Aðrir umsagn­ar­að­ilar lýstu hins vegar stuðn­ingi við áfram­hald­andi blóð­töku úr fyl­fullum merum, gagn­rýndu til­lög­una harð­lega og sögðu hana byggja á „tómum róg­burði“ og „fölsuðu áróð­ursefni“ erlendra „öfga­sam­taka“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blóðmerar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár