Sigmar: Bit- og tannlausar eftirlitsstofnanir eru lítils virði

Þing­maður Við­reisnar segir að blóð­merar og brott­kast færi Íslend­ingum heim sann­inn um að bit- og tann­lausar eft­ir­lits­stofn­anir séu lít­ils virði. Ábyrgðin liggi hins vegar hjá þeim sem stjórna land­inu.

Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar.
Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar fjall­aði um eft­ir­lits­mál undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær. Hann hóf mál sitt á að segja að ekki hefði verið fal­legt að sjá myndefni á dög­unum þar sem níðst var á hryssum þegar tekið var blóð úr þeim.

„Þetta var ekk­ert annað en óhugn­an­legt dýra­níð. Enn og aftur vakna upp spurn­ingar á Íslandi um slæ­legt eft­ir­lit. Mat­væla­stofnun hefur sjálf í umsögn til þings­ins vottað eigið eft­ir­lit með þessum iðn­aði og sagt að þar stang­ist ekk­ert á við lög. Mynd­bandið segir okkur aðra sögu,“ benti hann á.

Beindi Sigmar sjónum sínum að brott­kasti en Kjarninn greindi frá því byrjun vik­unnar að í upp­hafi þessa árs hefði verið byrjað að not­ast við dróna í eft­ir­liti og von­að­ist Fiski­stofa eftir því að sjá úr lofti góða umgengni við sjáv­ar­auð­lind­ina. Þann 25. nóv­em­ber voru málin, þar sem ætlað var að afla bæði stórra og smárra skipa hefði verið kastað í sjó­inn, aftur á móti orðin að minnsta kosti 120 tals­ins. Alls fjögur mál varða brott­kast af skipum af stærstu gerð, sem veiða með botn­vörpu.

[links]„Með því að nýta dróna hefur Fiski­stofa fjölgað brott­kasts­málum úr um það bil tíu á ári að jafn­aði í 120 það sem af er ári. Fiski­stofa, sem oft hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir slæ­legt eft­ir­lit, hefur með breyttum vinnu­brögðum fært okkur aðra sýn á umgengni við sjáv­ar­auð­lind­ina,“ sagði Sigmar.

Hann benti enn fremur á að stundum stæðu eft­ir­lits­stofn­anir „í lapp­irnar“, til að mynda þegar Per­sónu­vernd hefði slegið á fingur fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra „sem reyndi að fela sig á bak við per­sónu­vernd­ar­lög þegar upp­lýsa átti þingið um mik­il­vægt mál. For­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hefur vakið máls á því að hann telji að stjórn­völd standi ekki með eft­ir­lits­stofn­unum. Þau orð voru nán­ast eins og fyrri partur í vel ortri vísu sem seðla­banka­stjóri botn­aði stuttu síðar með þeim fleygu orðum að Íslandi væri að miklu leyti stýrt af sér­hags­muna­hópum.“

Sagðist Sigmar hafa nefnt þetta á þingi vegna þess að ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni hefðu á stjórn­mála­ferli sínum talað gegn virku eft­ir­liti og meðal ann­ars sagt galið að for­gangs­raða í þágu eft­ir­lits­iðn­að­ar­ins eins og það var kallað.

„Það er mikið talað um að efla eft­ir­lit í stjórn­ar­sátt­mál­anum en það væri oflof og jafn­vel háð að segja að það end­ur­spegl­að­ist í fjár­laga­frum­varp­inu. Blóð­merar og brott­kast færa okkur heim sann­inn um að bit- og tann­lausar eft­ir­lits­stofn­anir eru lít­ils virði. Ábyrgðin liggur hins vegar hjá þeim sem stjórna land­inu,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár