Eftirlit með blóðmerahaldi dásamað í umsögnum til þingsins fyrr á árinu

Í umsögnum við frum­varp Ingu Sæland og þriggja ann­arra þing­manna fyrr á árinu var allt eft­ir­lit með blóð­töku úr fyl­fullum hryssum hér á landi sagt til mik­ils sóma. Nú hefur verið kallað eftir ræki­legri nafla­skoðun á starf­sem­inni og eft­ir­lit­inu.

Þessi mynd er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Þessi mynd er úr safni og teng­ist efni frétt­ar­innar ekki með beinum hætti. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þingmenn úr þremur flokkum sem vildu fyrr á árinu breyta lögum um dýra­vel­ferð og banna blóð­töku úr fyl­fullum merum hér á landi voru harð­lega gagn­rýndir af hálfu ýmissa umsagn­ar­að­ila og sagðir fara með rang­indi um það hvernig blóð­tök­unni og eft­ir­liti með henni væri háttað hér á landi.

Í umsögnum sem bár­ust um frum­varp Ingu Sæland var eft­ir­lit með blóð­tök­unni meðal ann­ars sagt strangt, lög og reglur um dýra­vel­ferð með þeim ströng­ustu í heimi og það sér­stak­lega tekið fram í engri annarri búgrein hér­lendis væru sér­stakir dýra­vel­ferð­ar­samn­ingar í gildi.

Sláandi myndskeið

Um helg­ina birtu dýra­vernd­un­ar­sam­tökin Animal Welfare Foundation í Þýska­landi og Tierschutzbund Zürich í Sviss hins vegar tutt­ugu mín­útna mynd á YouTube sem sýnir slá­andi með­ferð íslenskra hryssa við blóð­töku, sem vakið hefur hneykslan og jafn­vel sorg frá­far­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Mat­væla­stofnun seg­ist líta málið alvar­legum augum og Félag hrossa­bænda segir að þá hafi verið for­svars­mönnum félags­ins áfall að verða vitni að þeirri með­ferð sem sést í mynd­band­inu.

„Hvorki aðbún­aður, umgjörð og hvað þá heldur sú illa með­ferð sem hryss­urnar eru beittar er á nokkurn hátt rétt­læt­an­leg. Það er ský­laus krafa Félags hrossa­bænda að rann­sakað verði það sem fram kemur í mynd­band­inu og upp­lýst af hálfu Mast hvernig eft­ir­liti með þess­ari starf­semi sé og hafi verið háttað og hver beri ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er," segir í yfir­lýs­ingu frá stjórn Félags hrossa­bænda.[links]

Einu dýravelferðarsamningarnir á Íslandi

Þegar þetta frum­varp Ingu Sæland var til með­ferðar á Alþingi fyrr á árinu setti Arnþór Guð­laugs­son fram­kvæmda­stjóri Ísteka fram umsögn þar sem sagði meðal ann­ars að grein­ar­gerð sem fylgdi frum­varpi þing­mann­ana fjög­urra væri „gerð af svo mik­illi van­þekk­ingu“ að því miður væri ekki hægt að svara henni efn­is­lega af neinu viti.

Þess í stað gerði fram­kvæmda­stjór­inn, sem er í mynd­skeiði evr­ópsku nátt­úru­vernd­ar­sam­tak­anna tveggja sagður hafa reynt að koma í veg fyrir að myndir væru teknar af blóð­töku, grein fyrir starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins.

Hann sagði unnið eftir „ítar­legri gæða­hand­bók“ fyrir blóð­gjafir og að gerður hefði verið sér­stakur dýra­vel­ferð­ar­samn­ingur við hvern og einn bónda sem seldi afurðir sínar Ísteka, sem væri ein­stakt á Íslandi. Þá kom fram að hjá fyr­ir­tæk­inu starf­aði sér­stakur dýra­vel­ferðar- og gæða­full­trúi sem hefði aðgengi að hrossum og aðstöðu hjá bændum til ráð­gjafar og eft­ir­lits.[box]

Dýra­vel­ferð­ar­samn­ing­arnir voru í umsögn Ísteka sagðir byggðir á skil­yrðum Mat­væla­stofn­unar og Fagráðs um dýra­vel­ferð, sem sett væru í sam­ræmi við nýj­ustu lög og reglu­gerðir. Þar væri meðal ann­ars að finna sér­stök ákvæði um nær­gætni í umgengni við hryss­urnar.

Í annarri umsögn frá Svavari Hall­dórs­syni, sem auk ann­ars verið hefur ráð­gjafi í land­bún­að­ar­málum, var Ísteka sagt vera til „mik­illar fyr­ir­myndar þegar kemur að dýra­vel­ferð“ – enda væri blóð­takan öll undir eft­ir­liti dýra­lækna og Mat­væla­stofn­unar og áhersla lögð á að fyr­ir­tækið væri það eina hér á landi sem hefði það að reglu að gera sér­staka dýra­vel­ferð­ar­samn­inga við bændur.

Dýralæknar ósáttir við framsetninguna

Dýra­lækna­fé­lag Íslands útli­staði leið­bein­andi reglur Mat­væla­stofn­unar í umsögn sinni um þing­málið og reif­aði svo að Ísteka væri sjálft með „virkt innra eft­ir­lit með starf­sem­inni“ – og að það eft­ir­lit ásamt eft­ir­liti Mat­væla­stofn­unar mið­aði að því að tryggja vel­ferð bæði hryssnanna og fol­ald­anna.

„Fyr­ir­tækið Ísteka er með á sínum snærum dýra­lækni sem sinnir gæða- og vel­ferð­ar­eft­ir­liti með blóð­söfn­un­inni. Heim­sækir hann megin þorra blóð­gjafa­starfs­stöðva/bæja á blóð­gjafa­tíma­bil­inu. Gerir hann úttekt á aðstæðum á blóð­töku­stað svo sem að meta slysa­hættu, að blóð­töku­básar séu traustir og rétt hann­aðir, vinnu­brögð séu fum­laus og nær­gætin og rétt staðið að sjálfri blóð­tök­unni,“ sagði í umsögn Dýra­lækna­fé­lags­ins.

Einnig sagði þar að Dýra­lækna­fé­lagið teldi að skil­yrðin sem Mat­væla­stofnun setti um starf­sem­ina og það eft­ir­lit sem haft væri með starf­sem­inni tryggði vel­ferð dýr­anna. Umsagnir frá all­nokkrum dýra­læknum bár­ust við málið og sumir sök­uðu flutn­ings­menn frum­varps­ins um aðför að starfs­heiðri stétt­ar­innar.

[adspot]

Dýra­læknir sem sagð­ist hafa starfað við blóð­söfnun allt frá árinu 2013 sagði að henni þætti „afar leið­in­legt“ að þurfa að færa rök fyrir því að vinna sín sner­ist um að virða dýra­vel­ferð og sagði eft­ir­litið með þess­ari vax­andi land­bún­að­ar­grein mikið.

Í umsögn­inni kom fram að dýra­læknir sem tæki blóð hefði viku­legt eft­ir­lit með hross­unum og aðstöðu, innra eft­ir­lit Ísteka væri „mjög virkt“ og þar væri starf­andi dýra­læknir sem hefði eft­ir­lit með dýra­læknum, bændum, hrossum, aðstöðu og fleiru.

„Síðast en ekki síst er eft­ir­lit MAST sem er mjög virkt og hefur eft­ir­lit með dýra­læknum, bændum, hrossum, aðstöðu ofl.. Tekin eru blóð­sýni og blóð­próf­ill met­inn reglu­lega, auk þess und­ir­rita allir bændur sem halda hryssur til blóð­söfn­unar þar til gerðan dýra­vel­ferð­ar­samn­ing,“ sagði í umsögn dýra­lækn­is­ins.

Hrossa­bændur á Norð­ur­landi sem halda hryssur til blóð­töku sögðu síðan, í sam­eig­in­legri umsögn sinni, að eft­ir­litið væri mikið og það gripi inn í ef þörf væri á, en slíkt væri afar fátítt.

„Bændum, sem halda hryssur til blóð­fram­leiðslu, er að fullu treystandi til að gera það á þann hátt að vel­ferð þeirra sé tryggð og ef svo ólík­lega vildi til að ein­hverju væri ábóta­vant þá er[u] dýra­læknar sem ann­ast blóð­töku meira en vel hæfir til að óska úrbóta eða ann­arra aðgerða ef þörf er á. Mat­væla­stofnun er síðan með sitt eft­ir­lit og þar með er umgjörð þess­arar búgreinar í góðu horfi,“ sagði í umsögn hrossa­bænd­anna.

Fimm starfsstöðvum lokað frá 2014

Þrátt fyrir þessar glimr­andi umsagnir um eft­ir­lit með blóð­mera­haldi á Íslandi virð­ist ein­hvers­staðar pottur hafa möl­brotnað. Ísteka hefur sagt vinnu­brögðin og aðferðir sem sum­staðar sjást í mynd evr­ópsku dýra­vernd­un­ar­sam­tak­anna bæði óvið­eig­andi og ólíð­andi.

„Stjórn­endum og starfs­fólki Ísteka mis­líkar veru­lega þessi vinnu­brögð við fram­leiðslu á vöru fyrir okkur. Þau upp­fylla ekki ströng skil­yrði okkar til dýra­vel­ferðar. Við höfum nú þegar hafið innri rann­sókn á birgj­unum og atvik­unum,“ segir í yfir­lýs­ingu sem Ísteka birti um helg­ina.

Í til­kynn­ingu Mat­væla­stofn­unar vegna þessa máls kemur fram að reglu­bundið eft­ir­lit stofn­un­ar­innar felist í því að heim­sækja um 20 pró­sent starfs­stöðva árlega á meðan á blóð­töku standi og að önnur 20 pró­sent starfs­stöðva fái heim­sóknir eft­ir­lits­manna yfir vetr­ar­tím­ann. Alls séu því um 40 pró­sent af starfs­stöð­unum, voru 119 tals­ins í ár, heim­sóttar árlega.

Frá árinu 2014 hefur starf­semi á fimm starfs­stöðvum verið stöðvuð vegna alvar­lega frá­vika sem komu í ljós við eft­ir­lit. Mat­væla­stofnun segir að rann­sóknir á blóð­bú­skap hryssnanna sýni fram á að blóð­takan, eins og hún er fram­kvæmd hér á landi, sé „innan ásætt­an­legra marka fyrir heilsu þeirra og vel­ferð“ og hryss­urnar eigi auð­velt með að vega upp blóð­tapið.

Mat Mat­væla­stofn­unar er að blóð­taka úr fyl­fullum hryssu, sem fram­kvæmd er sam­kvæmt skil­yrðum stofn­un­ar­innar, sam­ræm­ist lögum um dýra­vel­ferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár