600 tonn af merablóði þarf til að framleiða 20 kíló af efni í frjósemislyf fyrir húsdýr

Ísteka hyggst opna nýja starfs­stöð og auka fram­leiðslu sína á lyfja­efni sem notað er í frjó­sem­is­lyf fyrir hús­dýr. Til að auka fram­leiðsl­una úr um 10 kílóum á ári í 20 kíló þarf um 600 tonn af blóði úr fyl­fullum merum.

Blóð er tekið úr um 5.000 merum á ári hér á landi til framleiðslu á frjósemislyf fyrir önnur húsdýr, fyrst og fremst svín.
Blóð er tekið úr um 5.000 merum á ári hér á landi til fram­leiðslu á frjó­sem­is­lyf fyrir önnur hús­dýr, fyrst og fremst svín. Mynd: Anton Brink

Líf­tækni­fyr­ir­tækið Ísteka fram­leiðir nú um 10 kíló á ári af efni sem notað er í lyf til að auka frjó­semi svína og fleiri hús­dýra í land­bún­aði. Til stendur að auka fram­leiðsl­una um 100 pró­sent á næstu árum en til að fram­leiða 20 kíló af lyfja­efn­inu þarf um 600 tonn af blóði úr fyl­fullum merum.

Þetta er meðal þess fram kemur í grein­ar­gerð fyr­ir­tæk­is­ins sem fylgir til­kynn­ingu þess til Skipu­lags­stofn­unar vegna fyr­ir­hug­aðrar stækk­unar. Lyfja­fram­leiðsla Ísteka, auk rann­sókn­ar­stofu, lag­ers og skrif­stofu er nú til húsa að Grens­ás­vegi en verið er að bæta við starfs­stöð á Eirhöfða. Þar verður mót­taka hrá­efnis, mera­blóðs­ins, for­vinnsla þess auk rann­sókn­ar­stofu. Skipu­lags­stofnun hefur kom­ist að því að fram­kvæmdin, þ.e. hin nýja starfs­stöð, sé ekki lík­leg til að hafa í för með sér umtals­verð umhverf­is­á­hrif og því ekki háð mati á umhverf­is­á­hrifum.

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, lagði fram frum­varp á Alþingi í vetur um að bannað verði að taka blóð úr fyl­fullum merum í þeim til­gangi að selja það eða vinna úr því vöru til sölu. Frum­varpið, ekki síst grein­ar­gerð þess, vakti hörð við­brögð sem birt­ist m.a. í umsögnum nokk­urra dýra­lækna og ann­arra sem að blóð­mera­haldi koma.

[adspot]

Fyl­fullar hryssur fram­leiða hormón sem kall­ast equine chorion gona­dotropin (eCG), áður kallað pregn­ant mare serum gona­dotropin (PMSC). Blóðtaka úr fyl­fullum merum, sem horm­ónið er svo unnið úr, hefur farið fram hér á landi allt frá árinu 1979 eða í rúm­lega 40 ár. Um 100 bændur eru í sam­starfi við Ísteka og halda þeir sam­an­lagt um 5.000 merar til blóð­töku. Í maí er stóð­hestum sleppt „ í mátu­lega stóra hryssu­hópa“, líkt og fram kemur í umsögn Dýra­lækna­fé­lags Íslands um fyr­ir­komu­lagið og teknir úr þeim á til­skildum tíma þannig að sem flestar hryssur toppi í með­göngu­horm­ón­inu ECG á blóð­söfn­un­ar­tíma­bil­inu. Blóð­takan, sem dýra­læknar fram­kvæma, fer fram í blóð­töku­bási á búinu, að und­an­geng­inni stað­deyf­ingu, á viku fresti. Að hámarki fimm lítrar eru teknir úr hverri meri í hvert sinn. Tekið er blóð úr hverri hryssu að jafn­aði fimm sinnum að sumri og aldrei oftar en átta sinnum. Miðað við þessar upp­lýs­ingar af síðu Ísteka má reikna með að 25-40 lítrar af blóði séu teknir úr hverri fyl­fullri meri.

Í dag er nán­ast allt lyfja­efnið sem unnið er úr hryssu­blóð­inu hjá Ísteka flutt út. Úr því eru svo unnin frjó­sem­is­lyf sem notuð eru um allan heim í land­bún­aði „til með­ferðar frjó­sem­is­vanda­mála í hús­dýrum og sam­still­ingar gang­mála,“ líkt og segir íumsögn Félags atvinnu­rek­enda um frum­varp Ingu Sæland.

Verðmæti úr hreinni náttúru

Á heima­síðu Ísteka segir að fyr­ir­tækið sé líf­tækni­fyr­ir­tæki sem skapi „vel­ferð og verð­mæti með skyn­sam­legri nýt­ingu hug­vits og hreinnar íslenskrar nátt­úru“. Það hafi verið stofnað árið 2000 og þar starfi nú um 40 starfs­menn. Ísteka starfar sam­kvæmt leyfi frá Lyfja­stofnun.

Á nýlega birtu upp­lýs­inga­blaði sem finna má á vef Ísteka segir að svo­kall­aðir vel­ferð­ar­samn­ingar hafi verið gerðir við þá 99 bændur sem eru í sam­starfi við fyr­ir­tækið. Í þessum samn­ingum er að finna ýmis ákvæði, s.s. hvað varðar gæði beit­ar­lands hryss­anna og að Ísteka hafi eft­ir­lits­heim­ild á bæjum þeirra. Í samn­ing­unum eru auk þess bann­á­kvæði. Bannað er að eyða fóstrum hryssa sem blóð er tekið úr og blóð­taka er ekki heimil á þeim bæjum þar sem „vel­ferð­ar­frá­vik“ hafa komið upp sam­kvæmt Mat­væla­stofnun.

„Verðið á gjafa­blóð­inu hefur hækkað langt umfram aðrar land­bún­að­ar­vörur síð­ustu 20 ár,“ skrifar Arnþór Guð­laugs­son, fram­kvæmda­stjóri Ísteka,í nýlegri grein á vef fyr­ir­tæk­is­ins. „Bændum í sam­starfi við Ísteka hefur jafn­framt fjölgað mikið og eru þeir dreifðir um allt landið og hjálpa víða til við að tryggja búsetu í brot­hættum byggðum. Í tengslum við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn ákvað Ísteka að greiða sam­starfs­bændum sínum sér­staka ein­greiðslu eftir sein­asta tíma­bil. Nam auka­greiðslan 6% af verð­mæti inn­lagðra afurða 2020.“ Velta fyr­ir­tæk­is­ins á ári er um 1, 7 millj­arður króna.

Í grein­ar­gerð með frum­varpi Flokks fólks­ins, sem lagt var fram á Alþingi í febr­úar og er nú á borði atvinnu­vega­nefndar, segir að blóð­taka úr lif­andi hrossum sé „virkur iðn­aður“ á Íslandi og að á nokkrum stöðum sé hann orð­inn að „stór­bú­skap“ þar sem haldnar séu allt að 200 merar í blóð­fram­leiðslu. „Blóð­merar eru látnar ganga með folöld eins oft og mögu­legt er þar til horm­ónið fyr­ir­finnst ekki lengur í blóði þeirra og þá er þeim slátrað,“ segir í grein­ar­gerð­inni. „Folöldin fara að jafn­aði beint í slátur.“ Þá segir að það brjóti gegn „öllum sjón­ar­miðum um vel­ferð dýra að rækta hross til blóð­fram­leiðslu í gróða­skyni“.

Ekki frábrugðið öðru búrfjárhaldi

Blóðtaka úr fyl­fullum hryssum til fram­leiðslu á frjó­sem­is­lyfjum fyrir önnur hús­dýr er í „meg­in­dráttum ekki frá­brugðin öðru afurða­gef­andi búfjár­haldi,“ segir í umsögn Dýra­lækna­fé­lags Íslands um frum­varpið. Á blóð­söfn­un­ar­tíma­bil­inu meti dýra­læknar heilsu­far hryss­anna. Folöldum þeirra sé ýmist slátrað, sett á sem „fram­tíðar blóð­gjafar“ eða sem reið­hestar.

Það er mat félags­ins að þau skil­yrði sem Mat­væla­stofnun setji um starf­sem­ina og það eft­ir­lit sem haft er með henni í dag tryggi vel­ferð dýr­anna. „Dýra­lækna­fé­lagið getur því alls ekki tekið undir það sem kemur fram í grein­ar­gerð­inni [með frum­varp­inu] að starf­semin hafi slæm áhrif á líf og líðan þeirra dýra sem notuð eru.“

Flutningsmönnum og þingi til vansa

Í umsögn tveggja dýra­lækna, Gests Júl­í­us­sonar og Elfu Ágústs­dóttur, segir að frum­varpið sé aðför að starfs­heiðri stétt­ar­innar og „flutn­ings­mönnum og þing­inu til vansa“. Þá er það þeirra mat að blóð­takan úr hryss­unum sé ekki „mikið inn­grip í líf eða vel­ferð“ þeirra og sé „á pari við mjólkun, járn­ingar eða rún­ing og aug­ljós­lega minna inn­grip en slátrun“.

[adspot]

Gestur og Elfa telja engin vís­inda­leg rök hníga að því að hryssum verði meint af blóð­tök­unni. „Stærsta ógn við dýra­ríkið,“ segja þau svo, „má ekki vera öfga­full dýra­vel­ferð þar sem vel­ferðin er svo mikil að ekki verði nein dýr eftir“.

Guðmar Auberts­son dýra­læknir, sem kemur að því að taka blóð úr hryss­unum, skrifar í sinni umsögn að það blóð sé tekið í hóf­legu magni og seg­ist ekki hafa orðið var við að gengið sé of nærri hryss­unum. Nefnir hann að blóð­mera­hald hafi haldið lífi í mörgum bændum og „stuðlað að því að sveitir lands­ins hald­ist í byggð“.

Í umsögn Helga Sig­urðs­sonar dýra­læknis, sem kom að blóð­töku úr hryssum fyrir fjöru­tíu árum en fylgd­ist með þeim aftur síð­asta sumar, kemur fram að segja megi að eina þving­unin sem mer­arnar séu beittar í dag sé múll sem á þær er settur til að festa þær í blóð­töku­bás­inn. Þeirri þvingun aðlag­ist þær fljótt. „Þá er það mikil breyt­ing frá því fyrir 40 árum að nú er notað deyfi­lyf á stungu­stað þannig að blóð­takan verður sárs­auka­laus,“ skrifar Helgi. „Ef það er þessi þvingun sem fer í bága við dýra­vernd­ar­lög má með sömu rökum banna það að temja hesta. Þar er ögunin og þving­unin marg­falt meiri auk þess sem mað­ur­inn situr klof­vega á hest­unum og lætur hann lúta sínum vilja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár