Ætla að gelda selina í garðinum með lyfjum

Borg­ar­yf­ir­völd fundu enga lausn á óvið­un­andi aðstöðu sel­anna í Hús­dýra­garð­inum aðra en að stækka laug­ina. Þeir yngstu gætu átt 3-4 ára­tugi eftir ólif­aða. 20-30 kópum sem fæðst hafa í garð­inum hefur verið lógað frá opnun hans.

Selur í sínu náttúrulega umhverfi.
Selur í sínu nátt­úru­lega umhverfi. Mynd: Selasetrið/Hafró

Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garð­ur­inn og borg­ar­yf­ir­völd stóðu frammi fyrir nokkrum kostum til að tryggja „við­un­andi“ aðstæður sel­anna fjög­urra sem eru þar til sýnis. Að sleppa þeim í hafið var ekki einn þeirra. Að flytja þá annað, t.d. í Kletts­vík við Vest­manna­eyjar líkt og ein­hverjir hafa stungið upp á, reynd­ist ómögu­legt og að halda þá áfram við „óvið­un­andi aðstæður“ í núver­andi laug óásætt­an­legt.

Að aflífa þá var einn mögu­leiki en ákveðið var hins vegar að gera það ekki heldur stækka laug­ina og þar með það rými sem þeir hafa til að athafna sig. Það er að mati starfs­fólks garðs­ins sem og borg­ar­stjórnar það „mann­úð­leg­asta í stöð­unni.“

[adspot]

Sumarið 1990 er Hús­dýra­garð­ur­inn var opn­aður með pompi og prakt, með því yfir­lýsta mark­miði að leyfa reyk­vískri æsku að kynn­ast lífs­háttum dýra og sveita­störfum, voru að minnsta kosti þrír selir í sela­laug­inni. Þeir höfðu allir verið veiddir sér­stak­lega í því skyni. Áratug síðar voru þeir orðnir sjö. Allt frá opnun hafa dýra­vernd­un­ar­sam­tök gagn­rýnt þetta dýra­hald en segja má að aðeins á allra síð­ustu árum hafi almenn­ingur og svo stjórn­mála­menn farið að setja við það spurn­ing­ar­merki.

Á átján ára tíma­bili frá 1997, er selir í garð­inum fóru að kæpa, hafa 1-2 kópar verið aflífaðir árlega. Því var hætt árið 2016 og þeir þrír ókyn­þroska brim­lar sem þar svamla nú um eru allir fæddir eftir það. Auk þeirra er í laug­inni ein nokkuð öldruð urta sem veidd var árið 1989, ári áður en garð­ur­inn var opn­aður. Hún er kölluð Særún og er elsta dýrið í Hús­dýra­garð­inum, orðin 33 ára og enn við góða heilsu.

Ekki er hægt að sleppa dýr­unum út í nátt­úr­una, það þykir full­reynt og lög banna enn­fremur slíkt í dag, enda dýrin upp­alin meðal manna og gætu ólík­lega bjargað sér upp á eigin spýtur. Og þar sem mark­miðið með nýju laug­inni er að leyfa sel­unum fjórum að njóta meira rýmis og eyða því sem þeir eiga eftir ólifað í Hús­dýra­garð­inum – en án þess að fjölga sér – þarf að grípa til aðgerða.

„Á liðnum árum hafa komið fram bættar aðferðir við aft­ur­kræfa lyfja­geld­ingu sela með lág­marks inn­gripi í líf þeirra,“ segir Þorkell Heið­ars­son, deild­ar­stjóri hjá Dýra­þjón­ustu Reykja­víkur. „Ætlunin er að nýta slíkar aðferðir til þess að koma í veg fyrir að sel­irnir fjölgi sér og er það í und­ir­bún­ingi.“

Tímaskekkja

Borg­ar­ráð sam­þykkti í byrjun maí að heim­ila útboð á fram­kvæmdum vegna nýrrar sela­laugar og þjón­ustu­húss í Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garð­inum. Í til­kynn­ingu frá borg­inni sagði að nýja laugin myndi „marg­falda það rúm­mál sem sel­irnir hafa til sunds“. Þá yrði aðstaða til almennrar umhirðu og aðhlynn­ingar dýra í þjón­ustu­hús­inu og stórir gluggar neðan vatns­borðs laug­ar­innar gæfu gestum garðs­ins „tæki­færi til að sjá sel­ina með nýjum hætti“.

Áætlað er að fram­kvæmd­irnar hefj­ist fljót­lega og kosti 125 millj­ónir króna. Hvorki var leitað ráð­gjafar sér­fræð­inga Nátt­úru­fræði­stofn­unar né Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar varð­andi áformin en grunnur þess að stækka laug­ina og með hvaða hætti byggir á ráð­legg­ingum og við­miðum frá EAZA (European Association of Zoos and Aquarium), segir í svörum borg­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

„Það er tíma­skekkja í dag að halda villt dýr til sýn­ingar, en þegar aðstæður eru þannig að ekki er hægt að sleppa dýr­unum, þá er mik­il­vægt að búa þeim líf­væn­legt umhverfi og stækkun og dýpkun laug­ar­innar er mjög mik­il­vægur þáttur í því,“ sagði í bókun meiri­hluta borg­ar­ráðs á fund­inum.

Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem fyrir nokkrum árum var á því að ekki ætti að halda seli í garð­inum sagði í sinni bókun að betra væri að garð­ur­inn héldi ein­göngu hús­dýr heldur en að stækka laug­ina. „Villt dýr þríf­ast best í villtri nátt­úru“.

Hefur mikla rýmisþörf

Og það þarf eng­inn að velkj­ast í vafa um hvorum hópnum land­selir til­heyra, þessi stóru sjáv­ar­spen­dýr sem Nátt­úru­fræði­stofnun setti árið 2018 á válista – þar sem teg­undin var komin í bráða útrým­ing­ar­hættu hér við land.

„Land­selur hefur mikla rým­is­þörf og fer yfir tals­vert stórt svæði til fæðu­öfl­unar og ann­arra athafna,“ segir í svörum sér­fræð­inga Nátt­úru­fræði­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið. „Þeir setj­ast upp á landi til að þurrka sig, fella hár, til hvíldar og kæp­inga en kópar eru „geymdir“ á landi milli mjólk­ur­gjafa.“

Einnig bendir stofn­unin á að urtur sæki í frið­sæla staði til að kæpa því kóp­arnir eru varn­ar­lausir meðan þeir eru skildir eftir einir þegar mæður þeirra afla sér fæðu. „Svo merki­legt sem það er þá hafa sel­irnir í Hús­dýra­garð­inum parast og eign­ast afkvæmi við þau skil­yrði sem þeir búa nú við; lítil laug, ónátt­úru­legt umhverfi og tals­verð truflun.“

Áherslan á dýptina

Gamla laugin er um 100 m3 og sú nýja verður nálægt 400 m3. Eftir stækkun verður laugin alls nálægt 500 m3, eða um 125 m3 á hvern sel, segir Þorkell hjá Dýra­þjón­ust­unni sem var til svara fyrir hönd borg­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans um áformin.

Í nýrri laug verður „meg­in­á­herslan lögð á dýpt­ina fremur en flat­ar­mál“ en gamla sela­laugin er ein­ungis um 1,6 metra djúp þar sem hún er dýpst. Sú nýja verður að stórum hluta meira en 4 metra djúp. „Í eldri laug­inni var lengsti hringur sem sel­irnir gátu synt um 35 lengd­ar­metrar en verður um 90 í báðum laugum til sam­ans,“ segir í svörum Þorkels.

Hann segir starfs­fólk garðs­ins lengi hafa talað fyrir bættri aðstöðu fyrir sel­ina og laug í sam­ræmi við nútíma­við­mið, enda núver­andi laug teiknuð 1989 þegar allt önnur við­mið voru um dýra­hald.

Auk þeirra sela sem eru með lög­heim­ili í Hús­dýra­garð­inum hefur átta selum í hremm­ingum verið komið tíma­bundið fyrir í sela­laug­inni. Þekkt­astur er lík­lega hann Kári sem kom árið 2020, þá nokk­urra mán­aða og hor­aður. Honum var sleppt nokkru síðar með stað­setn­ing­ar­búnað límdan við bakið og synti rak­leiðis tugi kíló­metra að Græn­landi. Síðan hefur ekk­ert til hans spurst.

Þorkell segir að meiri­hluta veiku eða slös­uðu sel­anna hafi verið sleppt aftur en suma þurfti að aflífa.

Með netadræsur um hálsinn

Haf­rann­sókn­ar­stofnun berst að sögn Söndru M. Granquist, deild­ar­stjóra sela­rann­sókn­ar­sviðs hjá Sela­setr­inu, tölu­vert af til­kynn­ingum um seli í hremm­ingum, m.a. dýrum sem finn­ast með net í kringum háls­inn. Nátt­úru­fræði­stofnun ber­ast árlega 1-2 til­kynn­ingar um seli í vanda.

Engin sér­stök aðstaða er í land­inu til að sinna selum í neyð en þjón­ustu­húsið sem byggt verður við sela­laug­ina í Hús­dýra­garð­inum mun að mati Þorkels stór­bæta mögu­leika til aðhlynn­ingar þeirra í fram­tíð­inni. Þeim verði sinnt í innilaug og ekki standi til að þeir verði til sýnis. Innilaugin er tæp­lega 10 fer­metrar á stærð.

Með til­komu laga um dýra­vel­ferð árið 2013 var sveit­ar­fé­lögum sett sú skylda að sjá til þess að villtum dýrum í hremm­ingum sé komið til bjargar. Nátt­úru­fræði­stofnun segir að til að standa undir slíkum kröfum sé athvarf nauð­syn­legt. Aldrei ætti að hafa særð eða veik dýr til sýnis og með­ferð þeirra verður að fara fram þar sem þau fái næði og frið, bæði frá öðrum dýrum og gestum garðs­ins.

Brim­l­arnir þrír sem fæddir eru og upp­aldir í sela­laug­inni gætu átt 3-4 ára­tugi eftir ólif­aða. Nýja laugin gæti orðið heim­ili þeirra þann tíma, finn­ist ekki önnur og betri lausn. „Hús­dýra­garð­ur­inn leit­ast ekki eftir að fanga seli til sýn­ingar en hins vegar viljum við tryggja núver­andi dýrum í okkar umsjón full­nægj­andi vel­ferð,“ segir Þorkell.

[adspot]

„Ósk okkar væri að þeim selum sem nú búa í hús­dýra­garð­inum væru komið fyrir í sjáv­ar­dýra­at­hvarfi við nátt­úru­legri aðstæður,“ segir í við­brögðum Samtaka um dýra­vel­ferð á Íslandi við áformunum. Áfram ætti að leita slíkrar lausnar í stað þess að stækka sela­laug­ina og verja því fé sem áætlað var í fram­kvæmd­irnar frekar til dýra­vel­ferð­ar­mála. Núver­andi aðstöðu í Hús­dýra­garð­inum ætti að nýta fyrir villt dýr í vanda „en ekki til þess að halda sjáv­ar­spen­dýrum föngnum ein­ungis til afþrey­ingar manna“.

Starf­semi dýra­garða hefur lengi verið umdeild en „ekk­ert sér­stak­lega síð­ustu árin í sjálfu sér, þótt sú umræða hafi verið áber­andi hér­lendis á köflum,“ segir Þorkell. „Tegundir sjáv­ar­spen­dýra eru margar og afar mis­mun­andi hvernig ein­stakar teg­undir aðlag­ast í haldi manna. Sér­stak­lega hefur þó verið deilt á það síð­ari árin að haldin séu stór sjáv­ar­spen­dýr eins og hvalir í dýra­görðum. Mjög erfitt er að búa slíkum dýrum við­un­andi aðstæður. Land­selir þykja hins vegar almennt séð aðlag­ast vel í haldi. Hvort það sé í takti við tíð­ar­and­ann að halda dýr yfir höfuð er svo spurn­ing sem afar skiptar skoð­anir eru á.“

Hann segir stefnu Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garðs­ins að leggja aukna áherslu á dýra­vel­ferð­ar­mál og end­ur­hæf­ingu dýra í fram­tíð­inni. „Þetta er í sam­ræmi við það sem er að ger­ast í lönd­unum í kringum okkur og í sam­ræmi við breyttan tíð­ar­anda.“

Rask verði sem minnst fyrir selina

Þessi þáttur í starf­semi garðs­ins er þegar vax­andi og teng­ist starf­semi Dýra­þjón­ust­unnar sem sam­rekin hefur verið með Hús­dýra­garð­inum frá 2021.

Fram­kvæmdum við stækkun sela­laug­ar­innar verður háttað þannig að sel­irnir dvelja í gömlu laug­inni þar til sú nýja hefur verið steypt upp. Þá verða þeir fluttir í þá nýju á meðan gengið er frá teng­ingu á milli laug­anna. „Að sjálf­sögðu er lögð áhersla á að sel­irnir verði fyrir eins litlu raski og mögu­legt er á meðan á fram­kvæmdum stendur,“ segir Þorkell.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár